Morgunblaðið - 16.12.2019, Page 16

Morgunblaðið - 16.12.2019, Page 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2019 ✝ Sævar Brynj-ólfsson fæddist 15. febrúar 1942 í Messíönuhúsi á Ísa- firði. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 1. des- ember 2019. For- eldrar hans voru Guðný Kristín Hall- dórsdóttir, f. 16. september 1910, d. 8. febrúar 1991, og Brynjólfur Ágúst Albertsson, f. 10. ágúst 1902, d. 14. júní 1987. Systkini Sævars eru: Sigríður Guðmunda, f. 29. maí 1931, d. 21. maí 2009, Halldór Albert, f. 22. nóvember 1932, d. 16. ágúst 2013, Sesselja Guðrún, f. 5. jan- úar 1934, d. 16. ágúst 1956 og Sigurður Hlíðar, f. 1. maí 1936. Uppeldisbróðir Sævars er Brynjólfur Garðarsson, f. 26.8. 955. Sævar kvæntist Ingibjörgu Kolbrúnar Hjartardóttur eru: a) Ingibjörg Ýr, f. 1992, sambýlis- maður Jón Steinn Vilhelmsson, dóttir þeirra er Indíana Rún, fædd 2018, og b) Viggó Ýmir, f. 2002. 3) Brynjólfur Ægir, f. 5. mars 1976, maki Áslaug Ár- mannsdóttir. Börn þeirra eru a) Sævar Þórir, f. 2012 og b) Berg- lind Helga, f. 2014. Sævar ólst upp á Ísafirði til tíu ára aldurs. Þá flutti hann með fjölskyldu sinni til Keflavík- ur. Hann stundaði sjómennsku frá fjórtán ára aldri og varð skipstjóri eftir útskrift frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík ár- ið 1962 aðeins tvítugur að aldri, yngstur skipstjóra í flotanum. Árið 1983 flutti fjölskyldan til Vestmannaeyja þar sem Sævar stundaði skipstjórn og útgerð í yfir tuttugu ár. Árið 2000 flutt- ust þau hjónin til Reykjavíkur. Hann lauk vélstjórnarprófi frá Vélskólanum árið 2008 og starf- aði um tíma á hafnsögubátum Faxaflóahafna. Síðustu starfs- árin sín var hann skipstjóri á smærri bátum frá Keflavík. Útför Sævars fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 16. des- ember 2019, kl. 13. Hafliðadóttur 25. nóvember 1961. Hún er fædd 25. nóvember 1940 í Reykjavík. Foreldr- ar hennar voru Ingibjörg Jóhanns- dóttir, f. 8. desem- ber 1905, d. 3. nóv- ember 1992 og Haf- liði Ólafsson, f. 5. maí 1894, d. 29. júní 1941. Börn Sævars og Ingibjargar eru: 1) Bryndís, f. 9. október 1961, gift Einari Þ. Magnússyni. Börn þeirra eru: a) Sævar Magnús, f. 1986, unnusta Telma Rut Eiríksdóttir, synir þeirra eru Einar Þór, Eiríkur Óli og Óðinn Orri. b) Unnar Geir, unnusta Karólína Vilborg Torfadóttir og c) Einar Sveinn, unnusta Snjólaug Ösp Jóns- dóttir. 2) Hafliði, f. 3. ágúst 1965, sambýliskona Jenný Lovísa Þor- steinsdóttir. Börn Hafliða og Elsku pabbi, það sem við sökn- um þín nú þegar, þó fjarvera þín á sjónum hafi verið hluti af æsk- unni. Samveran í seinni tíð var þeim mun sætari. Að fylgjast með þér njóta hlutverks afa og langafa. Hlýja þín mun ylja okkur áfram. Sterkari manni höfum við ekki kynnst. Munum ekki kynnast. Viljastyrkurinn slíkur að þú fékkst þitt jafnan fram. Þegar stór rússneskur togari var í þann mund að keyra yfir torfuna sem þú ætlaðir að kasta á, miðaðir þú á hann úr tómum riffli, hann vék. Það sem þú ætlaðir þér varð. Stundum þurfti mamma líka á sínu æðruleysi að halda. En allt sem þú gerðir var fyrir þitt fólk. Kappið að stækka bústaðinn svo hann yrði enn betri griðastaður fyrir fjölskylduna eftir þinn dag. Öll höfðum við systkinin þig sem fyrirmynd í mannaforráðum. Traustið sem ríkti milli þín og karlanna var einstakt. Það þurfti ekki að hafa hátt til að hlutirnir gerðust. Þú stóðst með þínu fólki. Til marks um það eru brosin sem við fáum þegar við hittum þá, kveðjurnar. Skipsfélaginn sem kom að færa þér fullan poka af vandlega verkaðri skötu, daginn eftir að þú kvaddir, var með þér í tvö ár fyrir næstum fjörutíu árum. Tryggðabönd þín trosnuðu ekki. Tvítugur fékkstu pláss sem stýrimaður á Tý, sem Einar Sig- urðsson átti. Leystir skipstjórann af í veikindum og tókst fljótlega við Kópnum. Blaðaúrklippur um yngsta skipstjórann í flotanum og aflahæsta bátinn bera vitni um ár- angurinn. Traust Einars „ríka“ á þér var slíkt að þú sóttir tvö ný skip fyrir hann. Það höfðu ekki allir trú á að bátaskipstjóri gæti verið með togara, en blöðin skrif- uðu um unga aflaskipstjórann: „Jafnvígur á öll veiðarfæri“. Sem skipstjóri á Breka varstu jafnan aflahæstur í Eyjum og stundum víðar. Þú áttir þína bletti sem aðr- ir gátu ekki nýtt. Hafðir þínar að- ferðir, en aldrei einn. Þú varst einstakur frum- kvöðull. Hvort sem það voru nýj- ungar við síldarlöndun eða að vera fyrstur að gera út á túnfisk við landið, þá tókstu engu sem gefn- um hlut. Kræklingarækt og bý- flugnarækt komu seinna. Alltaf einhver verkefni í gangi. Æðruleysið var algjört. Þegar trillan sökk undan þér á þrett- ándanum 2004 varstu rúman klukkutíma í sjónum. Þú bast þig við stefni bátsins, sem flaut upp úr sjónum, svo þú fyndist þó þrekið þyrri. Horfðir upp í stjörnurnar, á tunglið og hugsaðir til okkar. Þú hafðir það líka af þegar ósæðin sprakk úti á sjó ári síðar. Þrauk- aðir fjórar risaaðgerðir, svæfingu í þrjá mánuði, ellefu mánuði á spítala. Þitt svar var að skella þér í vélskólann og opna ný tækifæri. Þú kunnir líka að njóta lífsins. Hvort sem það var sopi af saft fyr- ir svefninn eða safarík steik með köldum bjór. Uppáhaldið var buff tartar, góðar sögur og samvera með þínu fólki. Best var kannski að þegja saman. Það þurfti ekki alltaf að færa hlutina í orð. Við elskum þig og munum áfram lýsa upp tilveruna með sög- um og minningum af ástkærum pabba, afa, langafa, sem gerði allt fyrir sitt fólk. Verndaðu pabba minn vinnuna við vinurinn Jesús, þess ég nú bið. Í höfn leið þú bátinn hans heilan nú svo heima við gleðjumst, sjá allt megnar þú. Bryndís Sævarsdóttir, Hafliði Sævarsson og Brynjólfur Ægir Sævarsson Mín fyrstu kynni af Sævari voru þegar ég, nýbúinn að kynn- ast Bryndísi, kom á kagganum mínum til þess að bjóða henni á rúntinn. Sævar var úti að þvo bíl- inn sinn og sagði mér að Bryndís væri ekki heima. Það kom svo á daginn seinna að hún var heima en Sævar var ekki alveg tilbúinn að sjá á eftir henni með þessum hárprúða stráklingi. Sem betur fer breyttist þetta fljótt og við höfum átt góðar stundir í meira en fjörutíu ár. Ég kom úr sjómannsfjölskyldu þar sem faðir minn var skipstjóri. Ég hafði tekið ákvörðun um að feta í fótspor hans og verða skip- stjóri. Mér þótti því tilkomumikið að kynnast fjölskyldu Sævars, sérstaklega vegna þess að þar voru svo margir sjómenn og flest- ir þeirra skipstjórar. Bræður hans tveir voru skipstjórar og systursonur hans og uppeldis- bróðir var í skipstjórnarnámi. Systir Sævars var gift skipstjóra og sonur þeirra var skipstjóri. Þeir voru allir miklir aflamenn og mikill fengur fyrir ungan mann sem hafði brennandi áhuga á sjó- mennsku að kynnast þeim. Sævar var farsæll skipstjóri og mikill aflamaður. Hvort sem var á línu, netum, nót eða togveiðum. Ekkert vafðist fyrir honum, hann var traustur og þolinmóður og hafði þann einstaka eiginleika að halda ró sinni hvað sem á gekk. Ég var svo heppinn að fá að vera með honum á sjó um tíma á ár- unum sem hann var skipstjóri á Breka VE. Ég lærði margt gott af honum sem ég setti í mína „verkfærakistu“ og hef reynt að tileinka mér. Árið 2005 veiktist Sævar skyndilega þar sem hann var að störfum úti á sjó. Eftir erfið veik- indi og marga mánuði á sjúkra- húsi sýndi það best þrautseigju hans og dugnað að í stað þess að leggja árar í bát fór hann í vél- stjórnarnám og náði sér í vél- stjórnarréttindi. Eftir þetta höfum við Sævar eytt miklum tíma saman bæði til sjós og lands í ýmsum verkefnum. Við höfum átt margar góðar og ánægjulegar stundir í leik og starfi. Vinátta okkar var einstök. Ég hef litið á Sævar sem minn eig- in föður eftir að pabbi lést árið 1988. Elsku Sævar, takk fyrir að taka á móti mér í fjölskylduna, takk fyrir þína einstöku dóttur, takk fyrir allt. Takk, takk. Þinn tengdasonur, Einar Þ. Magnússon. Þú magnaði afi og tengdapabbi. Minning mín er ég kom fyrst í mat til þín og Ebbu á Klapparstíg- inn er eitthvað svo lifandi og skýr. Þið buðuð upp á ljúffengan sól- kola, fisk sem ég hafði aldrei heyrt minnst á áður en ég kynntist ykk- ur. Mér leist ekki alveg á blikuna enda borðaði ég nánast eingöngu ýsu fyrir þennan tíma. Ég man líka að mér fannst svo merkilegt að sjá eldri mann við eldavélina og hrista fram úr erminni þennan bragðgóða mat. Í dag þekki ég ótalmargar teg- undir fiska vegna þess að Sævar Þórir virðist hafa erft áhuga þinn á sjónum og fiskum. Það gat verið kostulegt að fylgjast með samtali ykkar um þessi hjartans mál ykk- ar tveggja. Í gegnum tíðina hefur mikið verið talað um staðfestuna og seigluna sem í þér bjó. Ég hef nokkrum sinnum orðið vitni að þessum eiginleikum hjá þér og óhjákvæmilega kemur varmadæl- an upp í huga minn. Þótt flestir væru á móti þessari varmadælu, upp skyldi hún fara. Enda er þessi dæla alveg frábær því að það er svo notalegt að geta gengið inn í hlýjan bústað, jafnvel um miðjan vetur. Sumt vissir þú einfaldlega betur. Það hefur verið gott að dvelja með ykkar Ebbu í Mýrakoti. Því- líkur sælureitur sem þið hafið komið upp í sameiningu og fyrir tilstilli ykkar er Borgarfjörðurinn orðinn af einn af mínum uppá- haldsstöðum hér á landi. Það hafa einnig verið mikil forréttindi fyrir Berglindi Helgu og Sævar Þóri að geta verið með ykkur í sveitinni. Þakklæti er mér efst í huga og eftir lifa fallegar minningar um góðan afa og tengdapabba. Áslaug Ármannsdóttir. Elsku afi. Þú settir þig í skipstjórasætið í öllum þeim verkefnum sem þú tókst að þér og sigldir skipinu allt- af í höfn. Nema í þetta skiptið. Nú er kominn tími á sjóferðina löngu. Þú varst skipstjóri af lífi og sál og varðst alltaf að sjá til sjávar. Þú varst hryllilega þrjóskur sem sýndi sig í öllu því sem lífið bauð þér upp á. Við áttum ekki alltaf skap sam- an, enda bæði þrjósk og með dass af trega í okkur. Framan af hafði ég mjög gaman af því að standa upp á móti þér og vera ósammála öllu sem þú sagðir. Þú hafðir líka mjög gaman af því að rengja mig og ýttum við þannig á alla punkta hvort annars þangað til annað okkar gaf sig. Í seinni tíð höguðum við okkur þó aðeins betur og náðum betur saman. Þú varst maður fárra orða og sóttist ekki eftir athyglinni, en þú vildir að fólk sýndi þér virðingu. Minningar síðustu ára eru mér dýrmætar. Ég er svo þakklát fyrir að Ind- íana Rún hafi fengið að hitta þig og kynnast þér. Hún var nýfædd þegar þú varst á leiðinni heim eftir eina spítala- ferðina en þú tókst ekki annað í mál en að kíkja við hjá okkur og sjá nýjasta erfingjann. Ég mun alltaf vera þakklát fyr- ir þessi 27 ár sem ég fékk með þér og veit að þér líður betur núna. Takk fyrir allt og allt, elsku afi. Fallega farðu í friði sjaldan er ein báran stök. Úti á sjávarins miði rugga skipabrök. Lífsins bröttu öldur léku þig alls konar litum. Nú engar eru höldur í þínum sjávarhnitum. Ingibjörg Ýr Hafliðadóttir, Jón Steinn Vilhelmsson, Indíana Rún Jónsdóttir. Elsku besti afi okkar. Sterki, hugrakki, æðrulausi afi Sævar. Takk fyrir allt sem þú hefur kennt okkur. Þú þurftir ekki að segja mikið, en varst leiðtogi í lífi og starfi. Nú þegar þú ert farinn í þinn síðasta róður er margs að minnast. Okkar gæfa er að eiga allar góðu minningarnar um þig. Um þig sem varst ekki bara venju- legur, heldur litríkur frumkvöðull og tókst þér fyrir hendur mörg verkefni sem þú fylgdir eftir af lífi og sál og náðir öðrum með. Það var lærdómsríkt að fylgjast með og stundum líka að fá að vera með. Þú stóðst stoltur með okkur, spáð- ir alltaf í hvað við vorum að gera, alltaf sterkur eins og klettur og kvartaðir aldrei hvað sem á gekk. Við munum sakna þín enda- laust mikið og kveðjum þig með miklum söknuði og virðingu, minningin um þig mun alltaf lifa í hjörtum okkar. Góða ferð, elsku afi. Sævar Magnús, Unnar Geir og Einar Sveinn. Við æskuvinir Brynjólfs Ægis minnumst Sævars Brynjólfssonar með miklu þakklæti og hugsum þessa dagana með hlýju til þeirra fjölmörgu góðu stunda sem við áttum með honum og Ingibjörgu á Illugagötunni í gegnum árin. Allir áttum við öruggt og gott athvarf hjá þeim hjónum, sama hvenær við leituðum á þeirra náðir eða í hvaða ástandi við vorum. Það gat verið ansi misjafnt á unglingsárunum en hjá þeim hjón- um mættum við aldrei öðru en miklum skilningi, umburðarlyndi, gjafmildi og almennum höfðings- skap. Sævar var ætíð áhugasamur um það sem allir aðrir voru að gera. Hann var í senn hógvær og sjálfsöruggur þannig að það var ómögulegt annað en að líða vel í kringum hann. Þótt líklega hafi fáir menn sopið fleiri fjörur í lífinu en Sævar lét hann okkur velmegunarþegana af yngri kynslóðinni aldrei finna fyr- ir því hversu miklir kjúklingar við vorum. Alvörukarlmenn finna ekki hjá sér þörf til þess að vera með mannalæti. Og Sævar var hin þögula karl- mennska uppmáluð, ætíð traustur og yfirvegaður og tilbúinn að sækja fram í ný ævintýri hvernig svo sem aðstæður og lífið sjálft reyndu að berja á honum. Það sem við lærðum af Sævari kom ekki fram í háfleygum fyrirlestrum, ræðuhöldum eða karlagrobbi – heldur í því að fylgjast með lífs- starfi manns sem aldrei gafst upp, kvartaði aldrei, fylgdist ætíð með nýjungum og hafði óbilandi trú á sjálfum sér og framtíðinni hvað sem gekk á. Við, æskuvinir Brynjólfs Ægis, þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast góðum fjölskylduföður, athafnamanni og vini. Guð blessi minninguna um Sævar Brynjólfs- son skipstjóra. Birgir Hrafn, Eggert Þór, Torfi og Þórlindur. Sævar Brynjólfsson ✝ Gyða HjaltalínJónsdóttir fæddist í Reykjavík 29. apríl 1920. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Eir 1. desember 2019. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Egilsdóttir f. 27. september 1879, d. 18. apríl 1964 og Jón Hjaltalín Há- konarson, f. 21. desember 1880, d. 13. ágúst 1933. Systkini Gyðu voru Hákon Hjaltalín Jónsson, f. 17. ágúst 1910, d. 7. júní 1977, Kristinn Hjaltalín Jónsson, f. 12. júní 1912, d. 1914, Þórdís Hjaltalín Jónsdóttir, f. 27. júlí 1915, d. 5. júlí 2008, Sigríður Þórdís Hjaltalín, f. 11. október 1917, d. 1918, og Guðrún Hjalt- alín Jónsdóttir, f. 27. apríl 1922 Eiginmaður Gyðu var Ólafur september 1993. Sambýliskona: Ólöf Lovísa Jóhannsdóttir, f. 18. júní 1992. Barn þeirra er Jóna Rebekka, f. 26. janúar 2017. b) Ólafur, f. 23. mars 1980. Sam- býliskona: Rakel Ýr Sigurðar- dóttir, f. 18. maí 1984. c) Hall- dór Guðjón, f. 2. október 1984. Maki: Erna Guðmundsdóttir, f. 29. janúar 1979. Börn: Sindri Steinn, f. 10. desember 2012, og Mattea Milla, f. 29. ágúst 2014. 2) Jón Hjaltalín Ólafsson, f. 13. október 1952. Gyða ólst upp í Reykjavík og gekk í Miðbæjarskóla. Hún hóf snemma störf hjá Kexverk- smiðjunni Esju en vann einnig lengi í verslun Haraldar Árna- sonar sem og í eldhúsi Land- spítalans. Eftir að Gyða og Ólafur gengu í hjónaband árið 1949 bjuggu þau á Skólavörðu- stíg en fluttust nokkrum árum síðar í Álfheima þar sem Gyða bjó allt þar til hún flutti í íbúð á Eir og síðar á hjúkrunarheim- ilið Eir. Útför Gyðu fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 16. des- ember 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. G. Einarsson, f. 25. apríl 1913, d. 14. september 1974. Foreldrar Ólafs voru Einar Guð- mundur Ólafsson, f. 10. ágúst 1887, d. 18. nóvember 1918, og Kristín Sigurð- ardóttir, f. 28. ágúst 1893, d. 21. mars 1962. Börn Gyðu og Ólafs eru 1) Kristín Ólafsdóttir, f. 23. mars 1950. Maki: Magnús Kristján Halldórsson, f. 2. maí 1947. Börn Kristínar og Magn- úsar eru: a) Unnur Gyða, f. 10. nóvember 1976. Maki: Maron Kristófersson, f. 23. október 1975. Börn: Thelma Kristín, f. 22. febrúar 2001, Elísa Björk, f. 26. apríl 2007, og Magnús Andri, f. 30. ágúst 2009. Fyrir átti Maron Kristófer Má, f. 27. Amma Gyða er fallin frá. Amma fæddist í Reykjavík árið 1920 og bjó þar alla sína ævi. Það er erfitt fyrir mína kynslóð að ímynda sér þær breytingar á heimaslóðunum sem hún varð vitni að á næstum heilli öld á meðan Reykjavík breyttist úr bæ í borg. Ömmu þótti líka ósköp vænt um borgina sína, sérstaklega Vesturbæinn, þar sem hún ólst upp, sem og Laugardalinn en þau afi keyptu íbúð í Álfheim- unum á sjötta áratugnum og þar bjó amma þar til hún flutti í íbúð á Eir um aldamótin. Lífið í borginni var ekki alltaf auðvelt. Amma fékk takmarkaða menntun og fór ung að vinna eins og tíðkaðist á þessum tíma. Ung greindist hún með berkla og dvaldi á Vífilsstöðum í tvö ár. Hún náði fullri heilsu á ný, giftist og eign- aðist tvö börn en varð ekkja 54 ára gömul. Nánasta fjölskyldan var lítil; tvö börn og þrjú barnabörn, þar til barnabarnabörnin fóru að bætast í hópinn. Fyrir vikið voru tengslin náin, samveran mikil og minning- arnar margar. Það var alltaf gott að koma til ömmu. Oftar en ekki voru pönnu- kökur á boðstólum og amma leyfði okkur að leika okkur að því sem tiltækt var hvort sem það voru kápur og hattar eða pottarnir í eldhússkápunum. Hún spilaði við okkur Svarta-Pétur og las um Fóu og Fóu feykirófu. Á hverju ári fann amma góð- viðrisdaga til að fara með okkur systkinin niður í Grasagarð eða Indíánagil. Oftar en ekki voru þetta með allra bestu dögum sum- arsins en árleg bæjarferð okkar ömmu hinn 1. desember var þó í algeru uppáhaldi. Við röltum Laugaveginn, keyptum jólagjafir og settumst á kaffihús. Mér þykir svolítið vænt um að amma hafi val- ið 1. desember til að kveðja og halda í sína hinstu ferð. En amma gat líka verið stríðin. Mér er sérstaklega minnisstætt atvik sem átti sér stað þegar hún var á bæjarrölti með okkur frænk- unum, nýskriðnum á táningsald- urinn. Við gengum meðfram búð- argluggum, amma nokkrum skrefum á undan okkur, þegar hún tók sig til og bankaði í gluggann á einni versluninni en fyrir innan voru menn að mála. Síðan stökk hún fram fyrir gluggann og eftir stóðum við frænkurnar eins og álfar út úr hól þegar málararnir litu upp. Við vonuðumst til þess að jörðin myndi gleypa okkur en fyrir fram- an okkur stóð amma og skellihló. Það vildi svo skemmtilega til að á sama tíma og amma flutti í Eir- arhúsin festum við Maron kaup á okkar fyrstu íbúð sem var í næstu götu. Ég er þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman í Graf- arvoginum. Við vorum duglegar að hittast enda áttu amma og eldri dóttir mín einstaklega fallegt sam- band og ekki að ástæðulausu að Thelma Kristín tilkynnti okkur það þriggja ára að hún langamma væri besta vinkona sín. Systkinin syrgja nú bestu langömmuna, sem að sjálfsögðu bakaði bestu pönnu- kökurnar og eldaði besta grjóna- grautinn. Vertu sæl, amma mín, og takk fyrir samveruna. Takk fyrir gleðina, hreinskilnina og um- hyggjuna. Takk fyrir að kenna mér að sletta á dönsku og þekkja konfilottur, altan og pískúranta. Takk fyrir vinskapinn, við tökum upp þráðinn er við hittumst á ný. Unnur Gyða. Gyða Hjaltalín Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.