Morgunblaðið - 16.12.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.12.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2019 Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞAÐ VANTAÐI HNAPPINN SVO ÉG KLIPPTI GATIÐ Í BURTU.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hafa margt að hugsa um. STUNDUM LÆT ÉG HUGANN REIKA … ÞAÐ ER EINS NÁLÆGT LÍKAMS RÆKT OG ÉG KEMST JÁ! ÉG KALLA ÞETTA PÍPU- HREINSARA- AÐFERÐINA! HRÓLFUR, ERTU VISS UM AÐ ÞAÐ EIGI AÐ HREINSA SKORSTEINA SVONA? „ÞAKKA ÞÉR FYRIR ÁBENDINGUNA – EN EINS OG MÁLIN STANDA HELD ÉG AÐ ÞETTA SKIPTI EKKI MÁLI.” Brimar, f. 11.10. 1999, nemi, unnusta Embla Wigum. Börn Jóhönnu með fyrri maka eru María, f. 2.7. 2000, og Jakob, f. 13.10. 2002. Stjúpdóttir Braga og dóttir Ingibjargar Ástu er Ásta Sigrún Erlingsdóttir, f. 19.10. 1957. Sonur Ástu er Jón Helgi, f. 1.4. 1997. Börn Laufeyjar, eiginkonu Braga, með fyrri eiginmanni sínum, Kjartani Stefánssyni, eru: 1) Árdís, f. 1.1. 1966, ljósmóðir og hjúkrunar- fræðingur. Maki: Hjörleifur Jóhann- esson, f. 9.5. 1961, flugstjóri hjá Ice- landair. Synir þeirra eru Stefán Haukur, f. 13.6, 1992, lögreglumaður, sambýliskona er Johanna Akimowicz, f. 14.9. 1992, starfsmaður í bakaríi; Þorsteinn Ingi, f. 21.12. 1994, þjón- ustufulltrúi, unnusta Gabriella Vals, f. 13.7. 1997, förðunarfræðingur; 2) Kristín Þóra, f. 8.5. 1970, sagn- og fé- lagsfræðingur og framkvæmdastýra í Flóru á Akureyri. Maki: Hlynur Hallsson, f. 25.9. 1968, safnstjóri í Listasafninu á Akureyri. Börn þeirra eru Hugi, f. 15.5. 1991, vefhönnuður, sambýliskona Júlía Róbertsdóttir, f. 12.7. 1993, grafískur hönnuður. Börn: Vakur, f. 26.4. 2016, og Eyja, f. 25.1. 2019; Lóa Aðalheiður, f. 5.4. 1997, deildarritari; Númi, f. 8.10. 2008, og Árni, f. 11.3. 2010. Systkini Braga: Sigurður verk- stjóri, f. 21.9. 1936, maki: Anna Jóna Guðmundsdóttir, f. 5.10. 1931 d. 23.1. 2015, barnlaus; Ástmar auglýsinga- teiknari, f. 16.7. 1938, ógiftur; Mar- grét, f. 21.8. 1941, d. 31.1. 1964, Hug- rún, f. 5.1. 1948, gift Skúla Bjarna- syni, börn: Grétar, Sigrún og María. Foreldrar Braga voru hjónin Sig- rún Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 4.7. 1905 í Króksseli í Skagahreppi, A- Hún., d. 20.6. 1984, og Ólafur Sigurðs- son verkamaður, f. 8.5. 1905 í Vindási í Hvolhreppi, Rang., d. 29.4. 1986. Bragi Ingiberg Ólafsson Gísli Sigurðsson bóndi á Vindási Sigurður Gíslason verktaki í Hafnarfi rði Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja í Harrastaðakoti Eiríkur Guðlaugsson bóndi í Harrastaðakoti á Skagaströnd María Eiríksdóttir húsfreyja í Hvammkoti Sigrún Guðmundsdóttir húsmóðir í Vestmannaeyjum Guðmundur Kristjánsson bóndi í Hvammkoti á Skagaströnd Ásta Hjálmarsdóttir húsfreyja á Skeggjastöðum Kristján „stutti“ Kristjánsson bóndi á Skeggjastöðum á Skaga Bjarni Theódór Guðmundsson sjúkrahúsráðsmaður á Akranesi Páll Bjarnason íslenskufræðingur Sigurður Gíslason bóndi á Vindási í Hvolhreppi, Rang. Styrgerður Filippusdóttir húsfreyja á Stóra-Hofi Gísli Felixson bóndi á Stóra-Hofi á Rangárvöllum Úr frændgarði Braga Ingibergs Ólafssonar Elín Steindórsdóttir vinnukona í Flóa Gísli Gíslason vinnumaður í Vestmannaeyjum, fór til Vesturheims Margrét Gísladóttir húsfreyja á Vindási Ólafur Sigurðsson verkamaður í Vestmannaeyjum Ég hef í höndum nýútkomna bókeftir Helga Ingólfsson, „Enn af kerskni og heimsósóma ásamt barnasögum fyrir fullorðna“. Eins og heitið ber með sér kennir þar ýmissa grasa og er margt vel kveð- ið. Eins og við mátti búast festi ég mig við þriðja kafla bókarinnar, „Lausavísur allskonar“. Fyrsta stakan er afmæliskveðja til kon- unnar og fer vel á því: Þú ert líf mitt, gæfan gleðin, gull og æðra stig. Öll mín ljóðin eru kveðin aðeins fyrir þig. Hér yrkir Helgi um óendanleika heimskunnar: Þunnt í minni byttu er blekið, í böguræfil trautt mun nóg. Eyðist það sem af er tekið. Aldrei minnkar heimskan þó. Og hér er ort um „vasaspeki“: Nær ævilokum tel ég tímabært að tilkynna hvar kynnst ég hafi slíku: Á minni vegferð langri hef ég lært að lífið – það er ætlað hinum ríku. Svo er „Fersk eytla“: Horni í, við skrum og skraf, skrykkjóttur hans jarmur, hrumur styðst við höfuðstaf hagyrðingagarmur. Og löngu er tímabært að yrkja „limru um ferskeytlu“: Ferskeytlan ort er á Fróni og fer vel í munni hjá Jóni, hjá Helgu og Sigga og Halldóru og Bigga, frá Hornbjargi austur að Lóni. Og með sama hætti „ferskeytlu um limru“: Limran, hún er líka góð. Lipur æ hún renni þótt nokkrir yrki nöpur ljóð og nöldri yfir henni. Hér kemur „Limran um Pega- sus“: Ekki mun ótemjan hamin, enn síður þótt hún sé lamin. Ef vinnan er rétt við vísuna sett þá vængjaða bikkjan er tamin. Enn er limra: Hún Gróa á Ási er löguleg og ljúf stund með henni er möguleg. þó finnst engum rætni að fara með gætni því ferilskrá hennar er söguleg. Og svo er „limra um kynferð- isáreitni ytra fyrir 2000 árum“: Hér áður, í allt öðru landi, var áreitt hún Maja á Sandi. Það var hvorki Patti né Pési, né Matti, heldur prakkarinn „Heilagur andi“. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af kerskni og heimsósóma Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is Fallegir ljósakrossar • Ljósakrossar á leiði og duftreiti • Stór glær akrýlkross með glóandi köntum fyrir leiði • Minni krossar fyrir duftreiti • Engin þörf á innstungu • Íslensk hönnun og framleiðsla • Rafhlöður lifa yfir jólin (seldar sér) • Möguleiki á mynd og texta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.