Morgunblaðið - 16.12.2019, Page 24

Morgunblaðið - 16.12.2019, Page 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2019 England Manchester United – Everton................ 1:1  Gylfi Þór Sigurðsson lék ekki með Ever- ton vegna veikinda. Burnley – Newcastle ............................... 1:0  Jóhann Berg Guðmundsson er frá vegna meiðsla hjá Burnley. Liverpool – Watford................................. 2:0 Chelsea – Bournemouth .......................... 0:1 Leicester – Norwich................................. 1:1 Sheffield United – Aston Villa ................ 2:0 Southampton – West Ham ...................... 0:1 Wolves – Tottenham ................................ 1:2 Arsenal – Manchester City ..................... 0:3 Staðan: Liverpool 17 16 1 0 42:14 49 Leicester 17 12 3 2 40:11 39 Manch.City 17 11 2 4 47:19 35 Chelsea 17 9 2 6 31:25 29 Tottenham 17 7 5 5 32:24 26 Manch.Utd 17 6 7 4 26:20 25 Sheffield Utd 17 6 7 4 21:16 25 Wolves 17 5 9 3 24:21 24 Arsenal 17 5 7 5 24:27 22 Crystal Palace 16 6 4 6 14:18 22 Newcastle 17 6 4 7 17:24 22 Burnley 17 6 3 8 22:29 21 Brighton 16 5 4 7 20:24 19 Bournemouth 17 5 4 8 19:24 19 West Ham 17 5 4 8 19:28 19 Everton 17 5 3 9 20:29 18 Aston Villa 17 4 3 10 23:30 15 Southampton 17 4 3 10 18:36 15 Norwich 17 3 3 11 18:35 12 Watford 17 1 6 10 9:32 9 B-deild: Derby – Millwall ...................................... 0:1  Jón Daði Böðvarsson lék fyrstu 67 mín- úturnar hjá Millwall. KNATTSPYRNA HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Grill 66-deildin: Valur U – Stjarnan U........................... 19.45 Enski boltinn á Síminn Sport Crystal Palace – Brighton ................... 19.45 Í KVÖLD! HANDBOLTI Olísdeild karla Fram – Afturelding.............................. 22:23 HK – ÍR................................................. 26:34 FH – ÍBV .............................................. 32:33 Stjarnan – Haukar ............................... 31:24 KA – Fjölnir.......................................... 35:32 Selfoss – Valur ...................................... 31:33 Staðan: Haukar 14 10 3 1 385:355 23 Afturelding 14 10 2 2 387:359 22 Valur 14 9 1 4 382:334 19 ÍR 14 8 2 4 427:391 18 Selfoss 14 8 1 5 431:427 17 ÍBV 14 7 2 5 391:375 16 FH 14 7 2 5 407:388 16 Stjarnan 14 3 5 6 369:380 11 KA 14 5 1 8 386:405 11 Fram 14 3 2 9 336:366 8 Fjölnir 14 2 1 11 370:429 5 HK 14 1 0 13 350:412 2 Þýskaland Bergischer – Magdeburg ................... 23:24  Arnór Þór Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir Bergischer en Ragnar Jóhannsson komst ekki á blað. Minden – Erlangen.............................. 26:29  Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen. Stuttgart – Kiel.................................... 21:29  Elvar Ásgeirsson skoraði ekki fyrir Stuttgart.  Gísli Þorgeir Kristjánsson er frá vegna meiðsla hjá Kiel. Leipzig – Wetzlar ................................ 26:29  Viggó Kristjánsson skoraði fimm mörk fyrir Wetzlar. Göppingen – Nordhorn....................... 28:26  Geir Sveinsson þjálfar Nordhorn. 1. deild kvenna Tindastóll – ÍR...................................... 62:64 Keflavík b – Grindavík b ...................... 87:70 Fjölnir – Hamar ................................... 82:46 Staðan: Keflavík b 11 8 3 800:751 16 Fjölnir 11 8 3 829:708 16 Tindastóll 12 8 4 813:781 16 ÍR 11 7 4 699:612 14 Njarðvík 11 6 5 699:625 12 Hamar 11 1 10 606:767 2 Grindavík b 11 1 10 589:791 2 Spánn Zaragoza – Fuenlabrada.................... 75:65  Tryggvi Snær Hlinason tók tvö fráköst fyrir Zaragoza á þeim níu mínútum sem hann lék. Þýskaland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Alba Berlín – Mitteldeutscher ........... 82:77  Martin Hermannsson skoraði sjö stig, tók fjögur fráköst og gaf fjórar stoðsend- ingar fyrir Alba Berlín á þeim 17 mínútum sem hann lék. KÖRFUBOLTI að líta beint rautt spjald og vítakast réttilega dæmt, sem Abbingah skor- aði úr. Þetta voru fyrstu gullverðlaun hol- lenska liðsins á stórmóti en liðið fékk bronsverðlaun á HM 2017 og EM 2018. Þá fékk liðið silfurverðlaun á HM 2015 og EM 2016. Spánverjar hafa aldrei unnið til gullverðlauna á stórmóti en liðið fékk brons á HM 2011 og silfur á EM 2008 og EM 2014. Í fyrsta sinn síðan Þórir tók við Þá töpuðu Þórir Hergeirsson og lærimeyjar hans í norska landsliðinu með fimm marka mun gegn Rússlandi í leik um þriðja sætið á HM. Norska liðið byrjaði betur en eftir fimmtán mínútna leik tóku Rússar frum- kvæðið í leiknum og létu forystuna ekki af hendi það sem eftir lifði leiks. Þetta voru fyrstu verðlaun Rússa á HM frá því árið 2009 en þetta er í fyrsta sinn sem norska liðið vinnur ekki til verðlauna eftir að hafa komist í undanúrslit á stórmóti undir stjórn Þóris, sem tók við liðinu árið 2009. Gull til Hollands í fyrsta sinn  Rússland sterkara en Þórir og lærimeyjar hans í Noregi í baráttunni um bronsið AFP Sögulegt Fyrirliðinn Danick Snelder lyftir heimsmeistarabikarnum í fyrsta sinn í sögu hollensks handknattleiks. HANDBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Holland er heimsmeistari kvenna í handknattleik í fyrsta sinn eftir afar dramatískan eins marks sigur gegn Spáni í úrslitaleik í Kumamoto í Jap- an í gær. Leiknum lauk með 30:29- sigri Hollands en það var Lois Abb- ingah sem skoraði sigurmark hol- lenska liðsins með marki úr víti þegar sex sekúndur voru til leiksloka. Hollenska liðið leiddi með þremur mörkum í hálfleik, 16:13, og var með frumkvæðið nánast allan seinni hálf- leikinn. Þegar tvær mínútur voru til leiksloka jafnaði Marta Lopez metin fyrir Spánverja í 29:29 með marki úr hraðaupphlaupi. Hollenska liðið fór upp í sókn, tap- aði boltanum og Spánverjar fengu tækifæri til þess að skora sigurmark leiksins. Tess Wester, markmaður hollenska liðsins, varði lokaskot Alex- andrinu Cabral, og þegar markmað- urinn reyndi að senda frá marki stillti Ainhoa Hernández, leikmaður Spán- ar, sér upp fyrir framan vítateig Hol- lendinga og blokkeraði sendinguna. Í handboltareglunum er skýrt kveðið á um að leikmaður verði að leyfa boltanum að fara út úr teignum áður en hann reynir að koma í veg fyrir sendingu og því fékk Hernández Íslenska karlalandsliðið í íshokkíi er úr leik í baráttunni um að kom- ast á Ólympíuleikana í Peking 2022 eftir 10:1-tap gegn Rúmeníu í Bra- sov í Rúmeníu í gær. Bæði lið voru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína í 2. umferð undankeppn- innar og því um hreinan úrslitaleik að ræða um hvort liðið færi áfram í 3. umferðina. Rúmenar komust í 10:0 í leiknum en Egill Birgisson skoraði eina mark Íslands undir lok þriðja leikhluta. Ísland vann stór- sigra gegn Kirgistan og Ísrael og lauk keppni í öðru sæti riðilsins. Draumurinn fékk skjótan endi Ljósmynd/ihi.is Markaskorari Egill Birgisson skor- aði eina markið gegn Rúmeníu. Lið Bandaríkjanna vann sögulegan sigur í Forsetabikarnum í golfi um helgina gegn alþjóðlega liðinu en leikið var í Melbourne í Ástralíu. Alþjóðlega liðið leiddi með tíu vinningum gegn átta fyrir fjórða og síðasta keppnisdaginn. Fyrir keppni helgarinnar hafði það aldrei gerst í sögu Forsetabikarsins að liðinu sem var undir fyrir lokadaginn tækist að vinna bikarinn. Bandaríkin fögnuðu hins vegar samanlögðum 16:14-sigri en þetta var áttunda árið í röð sem Bandaríkin hampa Forsetabik- arnum. bjarnih@mbl.is Sögulegur sigur Bandaríkjanna AFP Leiðtogi Tiger Woods var spilandi fyrirliði bandaríska liðsins. chester United náði hins vegar ekki að fylgja eftir góðum sigri á Man- chester City í síðustu umferð. United hefur fengið 14 stig úr sex leikjum gegn sex efstu liðunum, en aðeins tólf stig úr tólf leikjum gegn öðrum lið- um. Því miður fyrir lærisveina Oles Gunnars Solskjærs fá þeir ekki að spila við toppliðin í hverri umferð. José Mourinho gat fagnað afar góðum 2:1-útisigri Tottenham á Wolves. Tapið var það fyrsta hjá Wolves síðan 14. september og hefur unni. Það þarf margt að breytast hjá Arsenal og að fá nýjan stjóra í brúna ætti að vera í forgangi. Ótrúleg tölfræði United Gylfi Þór Sigurðsson var frá vegna veikinda er Everton gerði fína ferð til Manchester og gerði 1:1-jafntefli við United á Old Trafford. Everton hélt áfram að spila mun betur eftir komu Duncans Fergusons, en hann er tímabundinn stjóri liðsins eftir að Marco Silva fékk reisupassann. Man- ENSKI BOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Manchester City vann afar sannfær- andi 3:0-útisigur á Arsenal er liðin mættust í lokaleik gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fyrsta markið kom eftir tæpar 90 sekúndur og réð City ferðinni eftir það. Kevin De Bruyne var óstöðvandi hjá City; skoraði tvö mörk og lagði upp hitt. Hann var óheppinn að skora ekki þriðja markið, en Bernd Leno í marki Arsenal sá mjög vel við honum í eitt skipti. De Bruyne er einn allra besti leikmaður deildarinnar þegar hann er í stuði. Miðju- og varnar- menn Arsenal gerðu hins vegar lítið til að koma í veg fyrir að Belginn fengi að leika listir sínar. Það er löngu komin krísa hjá Ars- enal. Liðið hefur unnið einn leik af síðustu tólf í öllum keppnum og ekki hefur koma Freddies Ljungbergs tímabundið í stjórastólinn gert mikið fyrir skytturnar. Arsenal er í níunda sæti með 22 stig, jafnmörg og Crystal Palace og Newcastle og virðist liðið ekki ætla að berjast um fjögur efstu sætin á næst- liðið verið eitt það hættulegasta í deildinni síðustu mánuði. Mourinho er orðinn „sá skemmtilegi“ og er liðið búið að vinna fimm leiki og tapa tveimur í öllum keppnum undir hans stjórn. Mourinho nennir ekki jafn- teflum. Liverpool finnur alltaf leið Á laugardag vann Liverpool enn og aftur. Toppliðið þurfti að hafa fyrir 2:0-sigri á Watford, en sem fyrr tókst liðinu að ná í þrjú stig. Liverpool finn- ur alltaf leið til að vinna, alveg sama hvernig leikir þróast og hversu vel liðið spilar. Þar sem Leicester mis- steig sig gegn Norwich á heimavelli er Liverpool með tíu stiga forskot á toppnum og eflaust einhverjir stuðn- ingsmenn farnir að setja kampavínið í kæli. Næst á dagskrá hjá Liverpool er deildabikarleikur gegn Aston Villa og svo heimsbikar félagsliða, þar sem liðið ætlar sér að verða heimsmeist- ari. Hlutirnir eru fljótir að breytast í ensku úrvalsdeildinni og því er Frank Lampard að kynnast. Eftir glæsilegt gengi hafa lærisveinar hans í Chelsea verið í vandræðum og tapaði liðið fyr- ir Bournemouth á heimavelli. Chelsea hefur aðeins unnið einn af síðustu fimm í deildinni. AFP Krísa Það gengur ákaflega fátt upp hjá Mesut Özil og Arsenal. Hvað er í gangi hjá Arsenal?  Arsenal átti ekki möguleika í meistarana  Liverpool finnur alltaf leið að sigri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.