Morgunblaðið - 16.12.2019, Síða 29

Morgunblaðið - 16.12.2019, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2019 Í febrúarmánuði árið 1997 var stol- ið úr Ricci Oddi-samtímalistasafn- inu í Piacenza á Ítalíu málverki eft- ir austurríska málarann Gustav Klimt. Málvekið, sem kallað er Portrett af dömu, málaði Klimt árið 1917. Talið er að þjófarnir hafi beitt girni og öngli þegar þeir drógu það upp um þakglugga í safninu, þar sem þeir tóku það úr rammanum. Síðan hefur ekkert spurst til þeirra eða málverksins fyrr en í liðinni viku að garð- yrkjumenn sem unnu við Ricci Oddi-safnið ruddu runnaþykkni frá einum útvegg safnsins, sáu þar stál- hlera sem þeir opnuðu og þar inni í einskonar skáp var böggull sem í var málverk. Sérfræðingar telja næsta víst að þar sé komið meist- araverk Klimts, þótt það hafi enn ekki verið staðfest. Safnstjórinn hefur þó sagt að stimplar á bakhlið verksins séu upprunalegir. Málverkið hefur lengi verið núm- er tvö á lista yfir þau listaverk sem helst er leitað, á eftir málverki Caravaggios sem var stolið úr kirkju á Sikiley árið 1968. Heimildir segja fund verksins í veggnum hafa komið mjög á óvart, því eftir að verkið hvarf hafi bygg- ingin verið rannsökuð hátt og lágt og það hafi ekki verið þarna þá. AFP Gersemi Í myndbandi sem ítalska lög- reglan dreifði má sjá málverkið á trönum. Málverk eftir Klimt sem stolið var 1997 líklega fundið » Karlakór Reykjavík-ur hélt sína árlegu aðventutónleika í Hall- grímskirkju um helgina, eina á laugardegi og tvenna á sunnudegi. Að- algestur kórsins í ár var Sigrún Pálmadóttir sópran sem sungið hef- ur fjölda óperuhlut- verka bæði hér á landi og erlendis. Friðrik S. Kristinsson stjórnaði kórnum en hann hefur gegnt stöðu kórstjóra í 30 ár. Hátíðlegt Fjöldi gesta safnaðist saman í Hallgrímskirkju þar sem karlakór- inn flutti í þrígang hátíðlega tónlist rétt eins og hæfir á aðventunni. Tónlistarunnendur Björg Haraldsdóttir og Ágústa Ragnars. Stemning Friðrik S. Kristinsson stjórnaði kórnum á sívinsælum jólatónleikunum, rétt eins og undanfarin ár. Gestir Gréta Ágústsdóttir, Grétar Jón Magnússon, Arndís Eva Bjarnadótt- ir, Aleta Cerisano, Julia Parrack Cerisano og Rósa Maggý Grétarsdóttir. Karlakór Reykjavíkur hélt þrenna tónleika í Hallgrímskirkju um helgina Morgunblaðið/Sigurður Unnar Reffilegir Kórfélagar tóku sig vel út í sparifötunum í Hallgrímskirkju. ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambíó.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.