Morgunblaðið - 28.12.2019, Side 2
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Aragata Heimili Kristjáns Gunnars Valdimarssonar þar sem konunum var haldið og misbeiting höfði frammmi.
Ragnhildur Þrastardóttir
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Sigurður Bogi Sævarsson
Kristján Gunnar Valdimarsson, lekt-
or við Háskóla Íslands, sem grun-
aður er um að hafa svipt unga konu
frelsi sínu í tíu daga hið minnsta og
brotið á henni kynferðislega, verður
í gæsluvarðhaldi til morgundagsins,
29. desember. Lektorinn var hand-
tekinn á heimili sínu við Aragötu í
Reykjavík á jóladag og þá strax úr-
skurðaður í varðhald.
Látinn laus eftir skýrslutökur
Forsaga þessa máls er sú að að-
faranótt laugardags, 21. desember,
var Kristján Gunnar handtekinn
vegna gruns um að hann hefði haldið
ungri konu nauðugri á heimili sínu í
tíu daga og brotið gegn henni kyn-
ferðislega. Var hann svo látinn laus á
aðfangadag að skýrslutöku lokinni.
Strax á aðfangadagskvöld bauð
Kristján Gunnar aftur í partí á heim-
ili sínu og þangað komu tvær ungar
konur sem grunur leikur á um að
hann hafi svipt frelsi og brotið gegn.
„Hann er sakaður um að hafa svipt
konurnar frelsi, haldið þeim í gísl-
ingu og brotið á þeim þarna um nótt-
ina, aðfaranótt jóladags, þar til önn-
ur þeirra nær að komast í síma,“
segir Leifur Runólfsson, réttar-
gæslumaður annarrar kvennanna, í
samtali við mbl.is í gærkvöldi.
Alvarlegar ásakanir
Yfirstjórn HÍ hefur fylgst með
framvindu mála Kristjáns Gunnars
og sett þau í farveg innan skólans.
„Þetta eru alvarlegar ásakanir
sem fram koma í fjölmiðlum. Ég get
þó ekki tjáð mig um málið opinber-
lega,“ segir Jón Atli Benediktsson
háskólarektor.
Í gær kom fram á mbl.is að Krist-
ján Gunnar hefði verið boðaður á
fund í HÍ rétt fyrir jól til þess að
ræða þar starfsmannamál. Kristján
mætti ekki til þess fundar.
Vinnubrögð lögreglunnar í málum
þessum gagnrýnir Saga Ýrr Jóns-
dóttir, réttargæslumaður konunnar
sem grunur leikur á að hafi verið í
haldi Kristjáns Gunnars í tíu daga.
Saga Ýrr segir að lögreglan hefði
getað stigið inn í atburðarásina sól-
arhring fyrr en gert var, en þá fóru
lögreglumenn og foreldrar konunnar
að leita hennar í húsi Kristjáns
Gunnars við Aragötuna. Þá sagði
Kristján allt vera í stakasta lagi og
með það var haldið á brott. Þó munu
fíkniefni hafa sést í húsinu og það
segir Saga að hefði átt að vera næg
ástæða fyrir lögreglu til afskipta.
Sólarhring síðar komst konan út
úr húsinu og var færð á bráða-
móttöku í annarlegu ástandi. Í kjöl-
far þess var látið til skarar skríða;
konurnar voru leystar úr prísund-
inni og sakborningurinn handtekinn.
Vond vinnubrögð
„Það hefði verið hægt að bjarga
stelpunni sólarhring fyrr. Lögreglan
hafði fullt tilefni til að fara inn. Hún
horfði á fíkniefni þarna inni og fólk
að neyta þeirra en neitaði samt að
fara inn. Við hljótum öll að vera sam-
mála um að ekkert afsakar þetta,“
sagði Saga Ýrr í samtali við mbl.is í
gær.
„Ímyndaðu þér hvernig foreldrun-
um leið og hvernig stelpunni leið, að
vera þarna inni í þessum aðstæðum,“
segir Saga Ýrr sem velti upp þeirri
spurningu hvers vegar lögreglan
hikaði við að fara inn á heimili lekt-
orsins, sem hún hefði væntanlega
ekki gert hefði „Jón Jónsson“ átt í
hlut. „Ég vona að þetta séu vinnu-
brögð sem lögreglustjórinn á höfuð-
borgarsvæðinu leyfir sér aldrei aft-
ur. Ástæðan fyrir því að þeir fara
ekki inn er ekki sú að lögin heimili
það ekki, ástæðan er einhver allt
önnur,“ segir hún.
Leifur Runólfsson, réttargæslu-
maður annarrar kvennanna tveggja,
er rétt eins og Saga Ýrr gagnrýninn
á vinnu lögreglunnar í þessum at-
burðum. Telur hann að hægt hefði
verið að koma í veg fyrir að Kristján
Gunnar bryti gegn konunum.
Spyr hvort staða Kristjáns
Gunnars hafi haft áhrif
„Ef hann hefði strax verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald, sem að
mínu mati var fullt tilefni til, hefði
verið hægt að koma í veg fyrir þetta.
Ég held að lögreglan verði að svara
fyrir það,“ segir Leifur, sem líkt og
Saga Ýrr spyr hvort staða Kristjáns
Gunnars sem lögfræðings og há-
skólakennara hafi spilað inn í.
„Það á ekki að skipta máli hvort
þetta sé lektor, lögmaður eða bara
Jói glæpon. Það eiga að gilda sömu
lög um okkur öll,“ segir Leifur.
Lögregla rannsakar nú mál þessi
og hefur heimili Kristjáns Gunnars
við Aragötuna í svonefndu prófess-
orahverfi í Reykjavík verið innsiglað
með borða, eins og sést á myndinni
hér að ofan.
Grunur um brot á þremur konum
Maðurinn sem grunaður er um að hafa svipt konu frelsi og brotið á henni kynferðislega er lektor við
HÍ Einnig grunaður um brot gegn tveimur konum eftir handtöku Vinnubrögð lögreglu gagnrýnd
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
HITABLÁSARAR
ertu tilbúin í veturinn?
Þegar aðeins
það besta kemur
til greina
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Blaðinu í dag fylgir sérblaðið
Tímamót, sem unnið er í sam-
vinnu við The New York
Times, og kemur það í stað
Sunnudagsblaðsins.
Lykilorðakrossgátan fellur
þó ekki niður og er hana að
finna á síðu 40 í blaðinu í dag.
Sérblaðið Tímamót
Sigríður
Björk Guð-
jónsdóttir,
lögreglustjóri
á höfuðborg-
arsvæðinu,
segir emb-
ætti sitt ekki
geta tjáð sig
að svo
stöddu um
gagnrýni á að
lögreglan hafi ekki brugðist rétt
við þegar grunur lék á um að
kona svipt frelsi af manninum
sem situr í gæsluvarðhaldi væri
í húsi þar sem fíkniefni voru
höfð um hönd. Þau sjónarmið
hafa komið fram hjá Sögu Ýri
Jónsdóttur réttargæslumanni
og eru reifuð í fréttinni hér til
hliðar.
„Við erum með mann í gæslu-
varðhaldi, í einangrun. Málið er
á gríðarlega viðkvæmu stigi og
við getum ekki tjáð okkur efnis-
lega,“ sagði Sigríður Björk Guð-
jónsdóttir við mbl.is.
„Við munum fara í gegnum
málið frá a-ö og alla gagnrýni
sem hefur komið fram. Eins og
staðan er núna eru viðkvæmir
hagsmunir í húfi og við viljum
ekki spilla málinu með ótíma-
bærri umfjöllun.“
LÖGREGLAN TJÁIR SIG
EKKI UM GAGNRÝNI
Sigríður Björk
Guðjónsdóttir
„Er á gríð-
arlega við-
kvæmu stigi“
Búast má við rigningu víðast hvar á
sunnan- og vestanverðu landinu á
gamlárskvöld og hiti verður gjarn-
an á bilinu 7-9 stig. Suðlægar áttir
verða ríkjandi en ekki er á þessu
stigi hægt að segja til um hver
styrkur þeirra verður og þar með
hvernig muni viðra til flugelda-
skota. Þegar nýja árið gengur í garð
verður aftur á móti fremur bjart
yfir norðanlands og úrkomulaust.
Rigning um áramót
Heimili Innsiglisborði lögreglu er á húsinu vegna rannsóknar málsins.
Í gæsluvarðhaldi
» Háskólakennari er grunaður
um alvarleg brot gegn ungum
konum og um neyslu fíkniefna
á heimili hans.
» Var fyrst sleppt eftir yfir-
heyrslur en er nú í gæslu-
varðhaldi til morguns.
» Réttargæslumenn tveggja
kvenna gagnrýna lögreglu.
» Spyrja hvort staða manns-
ins hafi haft áhrif á að seint var
brugðist við.
Kristján Þór Júlíusson sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra
hefur ákveðið að aflamark Íslands
fyrir flökkustofna
kolmunna og
norsk-íslenskrar
síldar á næsta ári
fari eftir síðustu
strandríkjasamn-
ingum. Aflamark
fyrir makríl verði
16,5% af ráðlagðri
heildarveiði.
Ráðherrann
greinir frá þessu í
grein í Morgun-
blaðinu í dag og lýsir þar að ekkert
heildarsamkomulag um nýtingu
þessara stofna hafi náðst. Afleiðing-
ar þess geti orðið alvarlegar enda
séu stofnarnir ofveiddir sem nemur
30% umfram ráðgjöf fiskifræðinga.
Hætta sé á að ofveiðin hafi áhrif á af-
komu fólks og fyrirtækja.
„Samningamenn okkar leggja til
að send verði skýr skilaboð til hinna
strandríkjanna um að þessi óábyrga
hegðun við nýtingu stofna gangi
hreinlega ekki,“ segir Kristján Þór í
samtali við Morgunblaðið.
Tillaga Íslands segir hann að verði
að við veiðum 14,51% af norsk--
íslensku síldinni og 16,23% af kol-
munnanum. Aflamark fyrir makríl
verði 16,5% af ráðlagðri heildarveiði,
sem er í samræmi við þær kröfur
sem uppi hafa verið. Engin samn-
ingatala úr fortíðinni sé þó til. Gangi
þetta fyrirkomulag ekki upp þurfi að
endurmeta málin. »27
Flökkustofnar fylgi
síðustu samningum
„Skýr skilaboð til hinna strandríkjanna“
Kristján Þór
Júlíusson