Morgunblaðið - 28.12.2019, Side 27

Morgunblaðið - 28.12.2019, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019 Útreiðartúr Margir hafa nýtt jóladagana til útivistar af öllu tagi enda vel viðrað til þess flesta daga. Nú eru nokkrar breytingar á veðrinu í vændum með skúrum eða slyddu. Kristinn Magnússon Eins og kunnugt er rík- ir mikið ófremdarástand varðandi veiðistjórnun á makríl, norsk-íslenskri síld og kolmunna og allir stofnarnir hafa und- anfarin ár verið ofveiddir sem nemur um 30% um- fram ráðgjöf vísinda- manna. Ekkert heildar- samkomulag um skiptingu hefur verið í gildi síðustu árin og hver þjóð ákveðið einhliða sín- ar aflaheimildir. Ofveiðin mun að óbreyttu hafa ófyrirséðar afleiðingar fyrir afkomu fjölda fólks og fyrirtækja og grafa undan orðspori allra samningsaðila sem ábyrgra fiskveiðiþjóða. Ísland hefur um árabil reynt að ná samningum, á fjölmörgum strandríkja- fundum, auk sérstakra funda sem haldnir hafa verið að frumkvæði Íslands þar sem allir þrír stofnarnir hafa verið ræddir saman. Það er mat mitt að samningsleysi undanfarinna ára kalli enn á ný á viðbrögð af hálfu Íslendinga enda er nauðsynlegt að koma hlutum á hreyfingu. Nú liggur fyrir að ákveða heildaraflamark Íslands fyrir stofnana þrjá fyrir næsta ár. Á þessum tíma- punkti vil ég senda skýr skilaboð til hinna strandríkj- anna um að nú sé þörf á sameiginlegum aðgerðum, þessi óábyrga hegðun gangi ekki lengur. Ég hef því ákveðið að aflamark fyrir Ísland í stofnum norsk- íslenskrar síldar og kolmunna verði ákveðið á grund- velli síðustu strandríkjasamninga. Samhliða þessu mun samninganefnd okkar óska eftir fundum með hinum strandríkjunum til að ræða þá alvarlegu stöðu sem er uppi og hvetja til þess að aðilar setjist sem fyrst niður með það að markmiði að ná samningum um sjálfbæra veiðistjórn og sanngjarna skiptingu. Það er mikið í húfi. Skili þetta frumkvæði okkar ekki til- ætluðum árangri er augljóst að endurmeta þarf stöð- una. Eftir Kristján Þór Júlíusson » Ofveiðin mun að óbreyttu hafa ófyrirséðar afleiðingar á af- komu fjölda fólks og fyrirtækja og grafa undan orð- spori allra samn- ingsaðila. Kristján Þór Júlíusson Höfundur er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Skýr samningsvilji Að undanförnu hefur Morgunblaðið fjallað á margþættan hátt um vinnubrögðin sem hafa tíðkast við skipun nýrra dómara í landinu und- anfarin ár. Blaðið á þakkir skildar fyrir þessa um- fjöllun, sem blaðamað- urinn Baldur Arnarson hefur annast af vand- virkni. Komið hefur í ljós að hér er á ferðinni eitt- hvað sem kalla mætti glórulausa vitleysu, þar sem sjónarmið um mat á umsækj- endum og uppröðun þeirra hafa breyst við hvert tilvik. Ástæðan fyrir þessu rugli er að mínum dómi nokkuð augljós. Á árinu 2010 var gerð breyting á lögum sem færði fulltrú- um í matsnefnd vald til að ákveða hverjir skyldu verða fyrir valinu þegar skipað yrði í embætti. Með þessum hætti var valdið til þessara ákvarðana í reynd fært í hendur þeirra sem áhrifamestir eru í lögfræðingahópnum, sem ræður í dóms- kerfinu, en bera enga raunverulega ábyrgð á gjörðum sínum. Það er reyndar hæpið að þetta fyrirkomulag hafi staðist ákvæði 14. gr. stjórnarskrár, þar sem kveðið er á um að ráðherra skuli bera ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum. Enginn vafi er á að skipun dómara fellur þar undir. Sá sem ber ábyrgðina verður auðvitað einnig að hafa skipunarvaldið. Svo er ekki í reynd eftir að þessi laga- breyting var gerð. Það kemur endurtekið í ljós að dóm- araelítan er ekki að raða mönnum upp eftir hæfni. Það er einfaldlega verið að velja þá sem þetta fólk vill helst fá í hóp- inn. Þá eru alls konar kunningjatengsl og -gæska áhrifamesti þátturinn. Það er kominn tími til að binda endi á þessa vitleysu. Sjálfsagt er engin aðferð fullkomin, en sú er skást sem felur nefnd sérfróðra lögfræðinga að segja til um hvort umsækjendur uppfylli kröfur um hæfni án þess að raða þeim í forgangsröð og síðan ákveði ráðherra hvern skipa skuli. Sá ráðherra sem sannur verður að því að misfara með þetta skipunarvald verður þá að bera ábyrgð á því á þann stendur nema lögmaður gagnaðilans sé viðstaddur. Svo birtist á Þorláksmessu grein eftir lögmanninn Vilhjálm um samtal mitt við dómstjórann. Hann skiptir nú um hest í miðri á. Hann er sem sagt búinn að sjá að fyrri fullyrðing hans um að ég hafi talað við dómstjórann, áður en dómarar voru settir í málið, er röng. Tveir af upp- haflegum dómurum hurfu úr málinu vegna dóms MDE í mars á þessu ári. Þá var málinu frestað ótiltekið en síðar voru skipaðir tveir nýir í stað þeirra. Og nú segir Vilhjálmur að samtal mitt við dóm- stjórann hafi farið fram áður en það gerðist! Heldur hann að ég hafi í febrúar verið að tala við dómstjórann um skipan dómara í síðara skiptið? Hvaða rugl er þetta? Kannski ætti lögmaðurinn að rannsaka feril umbjóðanda síns, hæsta- réttardómarans Benedikts, í einka- samtölum við lögmenn málsaðila eftir að mál hefur verið flutt en er ódæmt. Það nefnilega rifjast upp tilvik sem upplýst var í fjölmiðlum meðan málið gegn Baldri Guðlaugssyni var til með- ferðar í Hæstarétti snemma árs 2012 (dómur gekk 19. febrúar það ár). Þá birt- ust í fjölmiðlum fréttir um að þeir hefðu farið saman á bíó, einn dómaranna í mál- inu og verjandi ákærða. Þetta voru Benedikt Bogason og Karl Axelsson. Þessu má slá upp á síðunni jonas.is í færslu frá 9. febrúar 2012. Þeir fé- lagarnir sáu myndina Contraband. Ég hef það fyrir satt, að Sigríður Friðjóns- dóttir ríkissaksóknari, sem sótti málið gegn Baldri, hafi ekki setið á milli þeirra á bíóhúsinu. Vonandi hafa þeir skemmt sér vel saman. Þar sem ég heiti Jón tel ég víst að Karl hafi verið séra Jón við þetta tækifæri og Benedikt þá kannski guðfaðir hans. Kannski kom dómsmorðið yfir Baldri undir í bíóhúsinu? Gleðilega hátíð. hátt sem hið lýðræðislega stjórnkerfi okkar ráðgerir. __________ Þankinn að framan gefur til- efni til að nefna þá undarlegu viðleitni margra að telja verst af öllu að kjörnir stjórnmála- menn skuli taka ákvarðanir um málefni ríkisins. Þá sé betra að umboðslausir „sér- fræðingar“ ráði. Eins og þeir séu ólíklegri til að láta geð- þótta og kunningjagæsku ráða gjörðum sínum heldur en stjórnmálamenn? Auðvitað ekki. Reynslan sýnir að þeir eru, ef eitt- hvað er, mun verri en stjórnmálamenn- irnir. Þessir „fagmenn“ bera hins vegar, eins og áður sagði, enga ábyrgð gagnvart almenningi á ákvörðunum sínum. Stjórn- kerfi okkar byggist á því að við kjósum okkur fulltrúa til að taka svona ákvarð- anir. Þeir þurfa svo að standa ábyrgir gjörða sinna gagnvart almenningi í al- mennum kosningum. Við skulum reyna að halda okkur við þetta fyrirkomulag. __________ Hinn 18. desember birti ég í Morgun- blaðinu spá um hver myndi hljóta dóm- arambættið við Hæstarétt. Spáin gekk eftir. Hvað sem því líður sé ég ástæðu til að óska nýskipuðum hæstaréttardómara til hamingju. Ég þykist viss um að hér fer heiðarlegur og vandaður lögfræðingur sem vill fyrst og fremst sinna hinu ábyrgðarmikla embætti af heilindum og samviskusemi. Ég óska henni velfarnaðar í starfinu. __________ Það er svolítið skondið að sjá Benedikt Bogason, sýslumann dómstóla og hæsta- réttardómara, vilja byggja ósk sína á áfrýjun sýknudómsins yfir mér til Hæstaréttar, þar sem hann starfar sjálf- ur, á þeirri forsendu að ég hafi talað við dómstjóra Landsréttar áður en hann tók ákvörðun um skipun í dóminn. For- sendan er röng eins og ég hef fjallað um í grein hér í blaðinu. En Benedikt hefur byggt málflutning sinn um þetta á því að dómari og lögmaður megi ekki hafa neitt saman að sælda meðan á málsmeðferð Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson »Ég hef það fyrir satt að Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari, sem sótti mál- ið gegn Baldri, hafi ekki setið á milli þeirra á bíóhúsinu. Höfundur er lögmaður. Þankabrot Jón Steinar Gunnlaugsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.