Morgunblaðið - 28.12.2019, Page 29
Höfundur ókunnur
1. Hvítur leikur og mátar í 2. leik
Lausn: 1. Dg8
a) 1. … a4 2. Dg1 mát b) 1. … Ha3
2. bxa3 mát. c) 1. … Ha4 2. b4 mát
d) 1. … Hxb2 2. Bxb2 mát.
Albert Wolkman, 1950
2. Hvítur leikur og mátar í 2. leik
Lausn: 1. Rd4 – Hótun 2. Rxb3
mát.
a) 1. … Dd5 2. Db4 mát. b) 1. …
Kd5 2. Dxc6 mát. c) 1. … dxe2 2.
Dxc6 mát. d) 1. … Be6 2. Rxe6
mát.
Sam Lloyd, 1864
3. Hvítur leikur og mátar í 3. leik
Lausn: 1. Hf4
a) 1. … Kxg3 2. 0-0 Kh3 3. H1f3
mát. b) 1. … Kxh1 2. Kf2 Kh2 3.
Hh4 mát.
Fuss/Möller, 1928
4. Hvítur leikur og mátar í 3. leik
Lausn: 1. Kf1
a) 1. … Kd5 2. Re3+ Kc6 (eða 2. …
Ke4 3. Bf5 mát) 3. b5 mát. b) 1. …
Be5 2. Dg2+ Kd3 3. De2 mát. c)
1. … Bh8 2. Re7! og 3. Bg2 mát eða
3. Bf5 mát. d) 1. … Bf6 2. Re3 og 3.
Bf5 mát. e) 1. … c2 2. Rd2+ Kd5 3.
Dd6 mát. f) 1. … f6 2. Bg2+ Kxf5
3. Rd4 mát.
W. Shinkman, 1872
5. Hvítur leikur og mátar í 4. leik
Lausn: 1. Hb1
a) 1. … d3 2. Ba1 e5 3. Hb2 Kd4 4.
Hb4 mát. b) 1. … e5 2. Bd8 d3 3.
Bb6 Kd4 4. Hb4 mát.
Oleg Pervakov, 2019
6. Hvítur leikur og vinnur
Lausn: 1. Rf7+ Bxf7 2. c8(D)+ Bg8
3. He4! Hxe4 4. Df5! Dxg6+! 5.
Dxg6 He6 6. Re5! Hxg6 7. Rxg6
mát.
Lausnir á
jólaskákþrautum
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019
María Anna Pétursdóttir
fæddist 26. desember 1919 á
Ísafirði. Foreldrar hennar voru
hjónin Sigríður Elín Torfadótt-
ir og Pétur Sigurðsson.
María varð stúdent frá MR
1938, lauk prófi frá Hjúkr-
unarkvennaskóla Íslands 1943
og var í framhaldsnámi erlend-
is í barnahjúkrun, geðveikra-
hjúkrun og hjúkrunarkennslu.
María hóf hjúkrunarstörf
þegar hún kom heim til Íslands
frá námi 1945, stundaði berkla-
rannsóknir og var stundakenn-
ari við Hjúkrunarskólann. Hún
var skólastjóri Nýja hjúkr-
unarskólans frá stofnun 1972
og þar til skólinn var lagður
niður. Hún var í forystu þegar
námsbraut var stofnun í hjúkr-
unarfræði við HÍ og var náms-
brautarstjóri fyrstu árin.
María var gjaldkeri Hjúkr-
unarfélags Íslands 1945-58, rit-
ari 1958-60 og formaður 1964-
74, formaður Samtaka heil-
brigðisstétta frá stofnun
1969-72 og 1977-80. Hún var
formaður Kvenfélaga-
sambands Íslands 1979-87 og
sat í fjölmörgum ráðum og
nefndum og stjórn BSRB.
María ritaði bókina Hjúkr-
unarsögu, hlaut fálkaorðuna og
fleiri vegtyllur.
Eiginmaður Maríu var Finn-
bogi Guðmundsson, f. 1906, d.
1974, útgerðarmaður.
María lést 4.9. 2003.
Merkir Íslendingar
María
Pétursdóttir
Suðurgata 16, 245 Sandgerði
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Mikið endurnýjuð rúmgóð 6 herbergja efri hæð
í tvíbýli í Sandgerði
Stærð 138 m2 Verð 32.000.000,-
Júlíus M. Steinþórsson s. 899 0555 Jóhannes Ellertsson s. 864 9677
Löggiltur fasteignasali Löggiltur fasteignasali
BROTINN
SKJÁR?
Við gerum við
allar tegundir
síma, spjaldtölva,
og Apple tölva
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
Skömmu fyrir jól var
viðtal við Vilhjálm H.
Vilhjálmsson hæsta-
réttarlögmann í aðal-
fréttatíma Sjónvarps
RÚV, um þá meintu
ósvífni kollega hans
Jóns Steinars Gunn-
laugssonar að hafa
hringt í forseta Lands-
réttar í febrúar 2019 til
að ræða við forsetann
um skipan dómara til að dæma í
meiðyrðamáli, sem höfðað var gegn
Jóni. Í fréttinni sagði að rætt yrði við
Jón Steinar í síðari fréttatíma sjón-
varps sem er vægast sagt sér-
kennileg fréttamennska. Eðlilegt
hefði verið að aðilar hefðu átt þess
kost að koma sjónarmiðum sínum á
framfæri á sama tíma. Útilokað var
að einhver biði tjón vegna þess að
gullkorn Vilhjálms H. Vilhjálmssonar
hrytu ekki af vörum hans fyrr en koll-
egi hans ætti þess kost að kasta perl-
um sínum á móti.
Vilhjálmur telur að með símtali
Jóns Steinars til forseta Landsréttar,
hafi verið brotið gegn þeirri grund-
vallarreglu að málsaðilar eigi ekki að
hafa áhrif á það hvaða dómarar séu
valdir til að dæma mál og þess vegna
hafi ákvörðun forseta Landsréttar
um skipan dómara verið ólögmæt.
Skv. fréttinni hringdi Jón Steinar í
forseta Landsréttar í febrúar 2019 og
forsetinn skipaði dómara í málinu í
október 2019. Harla ólíklegt verður
því að telja að símtal Jóns Steinars til
forstans hafi haft hina minnstu þýð-
ingu varðandi skipan dómara til að
dæma í umræddu meiðyrðamáli.
Allavega sýnir lögmaðurinn ekki
fram á neitt orsakasamband milli
símtalsins og vals á dómurum. Þegar
af þeirri ástæðu er umfjöllun lög-
mannsins og brigslyrði í garð forseta
Landsréttar óréttmæt, gjörsamlega
ósönnuð og að engu hafandi. En RÚV
fannst þetta frétt, sem kemur í sjálfu
sér ekki á óvart miðað við það sem
landsmenn eiga að venjast varðandi
fréttamat þeirrar stofnunar. Þá koma
vinnubrögð RÚV við vinnslu fréttar-
innar þar sem aðilum er mismunað
ekki sérstaklega á óvart miðað við
það sem tíðkast á þeim bæ.
Ólíklegt verður að telja að Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður,
þekki ekki til þess að á
ýmsum tímum kunna
dómarar að vera þann-
ig riðnir við mál að vafi
getur leikið á því að
þeir geti lagt hlutlægt
mat á það ágreinings-
efni sem málið varðar. Í
slíkum tilvikum er rétt
að sá sem á hagsmuni
að gæta veki athygli
dómsins á því að svo
geti verið, en það er
dómara að meta það
hvort hann sé vanhæfur til meðferðar
máls eða ekki sbr. 5. og 6.gr. laga um
meðferð einkamála nr. 91/1991. Sjálf-
ur hef ég einstaka sinnum gert kröfu
um að dómari víki sæti þar sem hann
sé svo við málið riðinn að fyrir hendi
séu aðstæður sem séu til þess fallnar
að draga megi óhlutdrægni hans í efa.
Ekkert er athugavert við að lögmað-
ur geri slíka kröfu enda beinlínis hluti
af eðlilegri réttargæslu lögmannsins.
Varðandi skipan fjölskipaðs dóms,
þá er ekkert athugavert við það að
lögmaður geri grein fyrir því fyrir-
fram að hann telji að vafi geti leikið á
því að dómari sé hæfur til meðferðar
máls. Sjálfur hef ég komið slíkum
ábendingum til forseta Hæstaréttar
m.a. að forseti réttarins væri van-
hæfur til meðferðar viðkomandi máls.
Forseti Hæstaréttar taldi sig hins-
vegar hæfan til meðferðar málsins,
en skv. kenningu Vilhjálms hefði þá
sú ákvörðun forsetans um skipan
dómsins verið ólögmæt, en gagnaðili
vissi ekki af athugasemdinni.
Gagnaðila var svo ég muni aldrei
tilkynnt um þessar athugasemdir
kæmu þær ekki formlega fram eða
ástæða þætti til að bregðast við þeim.
Ég fæ ekki séð að annað hafi átt við
varðandi ábendingu Jóns Steinars í
þessu tilviki. Málatilbúnaður Vil-
hjálms H. Vilhjálmssonar er því í
besta falli tilraun til að þyrla upp
reyk, þar sem enginn eldur er fyrir
hendi.
Hlutdræg framsetning
Eftir Jón
Magnússon
Jón Magnússon
» Lögmaðurinn sýnir
ekki fram á orsaka-
samband milli símtals-
ins og vals á dómurum.
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
jm@ilog.is