Morgunblaðið - 28.12.2019, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019
Jól 2019
Aðstoð í móttöku
sjúkraþjálfunar óskast
Gigtarfélag Íslands óskar eftir áreiðan-
legum einstaklingi til starfa í móttöku
sjúkraþjálfunar. Um 90% starf er að ræða.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Helstu verkefni: Móttaka skjólstæðinga,
taka á móti greiðslum, símsvörun og
almennri aðstoð við störf sjúkraþjálfara.
Hæfniskröfur:
• Samskiptafærni, jákvætt viðmót og rík
þjónustulund
• Samviskusemi, snyrtimennska og
þagmælska
• Góð tölvukunnátta
• Góð kunnátta í ritaðri og talaðri íslensku
Umsókn ásamt ferilskrá sendist á
Emil Thoroddsen á netfangið
emilthor@gigt.is Nánari upplýsingar er að
fá í sima 863 9922. Umsóknarfrestur er til
og með 5. janúar næstkomandi.
Gigtarfélagið
Heilbrigðisfulltrúi óskast til
starfa, með aðsetur á Selfossi
Starfið felst í eftirliti með umhverfis- og mengunarvörnum, matvælum og
hollustuháttum í fyrirtækjum og stofnunum í samræmi við lög nr. 7/1998 um
hollustuhætti og mengunarvarnir, lög um matvæli nr. 93/1995, reglugerðum
samkvæmt þeim og samþykktum heilbrigðisnefndar. Útgáfu starfsleyfa,
umsögnum, fræðslu og að sinna kvörtunum, ásamt öðrum verkefnum, m.a. að eiga samskipti við
Matvælastofnun, Umhverfisstofnun og aðrar opinberar stofnanir. Framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
eftirlits Suðurlands er næsti yfirmaður.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði raunvísinda.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
• Geta unnið vel undir álagi.
• Jákvæðni, samviskusemi og vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfileikar.
• Færni til að setja fram ritað mál á greinargóðri íslensku.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Reynsla af eftirlitsstörfum samkvæmt gildandi lögum, reglum og leiðbeiningum og reynsla í
notkun á hugbúnaði til skráninga og eftirfylgni.
• Réttindi til að starfa sem heilbrigðisfulltrúi er kostur og viðkomandi verður að vera tilbúinn
til að afla sér slíkra réttinda.
• Ökuréttindi. Hrein sakaskrá.
Ath. að vinnustaðurinn er reyklaus.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Guðmundsdóttir í síma 861 8669 eða með því að
senda fyrirspurn á sigrun@hsl.is
Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og afrit af prófskírteini. Umsóknarfrestur er til og með
15. janúar n.k. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Launakjör eru
samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir skulu sendar á tölvupósti á netfangið: sigrun@hsl.is.
Raðauglýsingar
Tilboð/útboð
Ríkiskaup
Allar útboðsauglýsingar eru birtar á
utbodsvefur.is
Utbodsvefur.is er sameiginlegur auglýsingavettvangur opinberra
útboða. Á vefsvæðinu eru birtar auglýsingar og eða tilkynningar
um fyrirhuguð innkaup opinberra aðila sem falla undir lög og
reglugerðir um opinber innkaup.
Lagerstjóri í Garðabæ
Við hjá Kælismiðjunni Frost ehf. óskum eftir
lagerstjóra í starfstöð okkar í Garðabæ.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Skilyrði að viðkomandi hafi mikla þjónustulund og
framúrskarandi vald á íslensku og ensku í ræðu og
riti (vald á öðrum tungumálum er kostur).
Starfssvið:
• Dagleg umsjón með lager
• Móttaka og afhending á vörum
• Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
Hæfniskröfur:
• Búi yfir skipulagshæfileikum, sjálfstæðum vinnu-
brögðum og frumkvæði.
• Úrræðagóður starfsmaður, jákvæður og lipur í
mannlegum samskiptum.
• Hafi þjónustulund og sé laghentur.
• Góð tölvufærni.
• Reynsla af vöru- og lagerstjórnun er æskileg.
• Þekking á búnaði fyrir kælikerfi er kostur en ekki
skilyrði.
Umsóknir sendist á frost@frost.is
Snæfellsbær | Klettsbúð 4 | 433 6900 | snb.is
Kynning: Opið hús vegna breytingar
á aðalskipulagi Snæfellsbæjar
2015 - 2031
Mánudaginn 6. janúar 2020 kl. 15:00-18:00 verður haldið opið
hús í Ráðhúsi Snæfellsbæjar við Klettsbúð 4 á Hellissandi
þar sem drög breytingar aðalskipulags Snæfellsbæjar
vegna fyrirhugaðs golfvallar sunnan Rifs verða kynnt.
Breytingin fellst í að óbyggðu svæði er breytt í íþróttasvæði (ÍÞ-3)
þar sem fyrirhugaður golfvöllur mun verða. Breyting verður því á
þéttbýlisuppdrætti Hellissands og Rifs.
Íbúar og hagsmunaaðilar eru hvattir til að mæta og kynna sér
skipulagshugmyndir strax á frumstigi.
Eftir kynningu á opnu húsi verða skipulagsgögn lögð fyrir
bæjarstjórn til frekari afgreiðslu. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa
ofangreindar skipulagsbreytingar mun frestur til að gera
athugasemdir vera að minnsta kosti 6 vikur.
Davíð Viðarsson
skipulags- og byggingarfulltrúi
Tilkynningar
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Ýmislegt
SANDBLÁSTUR
www.blastur.is
Sími 555 6005
Helluhrauni 6, 220 Hf.
Húsviðhald
með
morgun-
nu
Skráðu fyrirtækið þitt á alfred.is