Morgunblaðið - 28.12.2019, Page 43
DÆGRADVÖL 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019
Gæðavörur
í umhverfisvænum
umbúðum
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com,
kajaorganic@gmail.com
Hollt, bragðgott og þæginlegt
Vegan - Keto - Pascaterian - Glutenlaust
Sölustaðir: Hagkaup, Melabúð, Fjarðarkaup og Matarbúr Kaju Akranes
1948, d. 6.4. 1982, er Ingibjörg, söng-
og leikkona og jógakennari, f. 31.8.
1972. Hálfbróðir hennar og stjúp-
sonur Stefáns er Ólafur Kjartansson
bílstjóri, f. 14.12. 1966, búsettur í
Svíþjóð. Sambýlismaður Ingibjargar
er Víðir Finnbogason lögfræðingur,
f. 2.9. 1973, og eru börn þeirra Elín,
f. 6.12. 2008, Ásta Lilja, f. 3.8. 2011
og Finnbogi Jökull, f. 22.6. 2013.
Sonur Stefáns og Sigurbjargar
Steinþórudóttur, kaupmanns og
listakonu, f. 23.12. 1954, d. 6.1. 2017,
er Stefán Jökull, viðskiptafræðingur
og MSc í nýsköpunar- og frum-
kvöðlafræðum, f. 20.3. 1988. Sam-
býliskona hans er Sara Snædís
Ólafsdóttir, viðskiptafræðingur og
jógakennari, f. 15.10. 1988. Dætur
þeirra eru Áróra Snædís, f. 18.3.
2015 og Sigurbjörg Sóley, f. 11.1.
2018. Eru þau búsett í Svíþjóð.
Hálfbróðir Stefáns Jökuls er Davíð
Arnar Stefánsson, MSc í landafræði,
f. 15.9. 1972.
Sambýliskona Stefáns 2000-2016
var Bergljót Baldursdóttir, frétta-
maður, BA í sálfræði og MA í mál-
vísindum, f. 7.1. 1954. Börn hennar
eru Baldur Bjarnason, PhD, raf-
bókasérfræðingur, f. 13.4. 1977, og
Brynhildur Jenný Bjarnadóttir,
myndlistarmaður með meistarapróf
í teiknimyndagerð, f. 10.12. 1980.
Bræður Stefáns Jökulssonar eru
Ingólfur Helgi málarameistari, f.
5.7. 1931, d. 7.11. 2004, og Garðar
listmálari, f. 26.3. 1935.
Foreldrar Stefáns voru Svava
Ólafsdóttir, húsmóðir og félagsmála-
kona, f. 14.2. 1912, d. 20.6. 1998, og
Jökull Pétursson, málarameistari og
ritstjóri tímaritsins Málarans, f.
13.11. 1908, d. 27.5. 1973.
Stefán Jökulsson
Guðrún Þorsteinsdóttir
vinnukona á Króki í Útskálasókn, Gull.
Bjarni Bjarnason
bóndi í Hreppskoti í Skorradal
Þóra Bjarnadóttir Snædal
húsfreyja á Siglufi rði
Svava Ólafsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Ólafur Kristján Valdimar Kárason
skipstjóri, kaup- og útgerðarmaður á Ísafi rði
Sigurborg Jónsdóttir
húsfreyja í Skálavík ytri
og á Gilsbrekku
Kári Ólafsson
bóndi í Skálavík ytri og á
Gilsbrekku í Súgandafi rði
Jórunn Erlendsdóttir
húsfreyja í Litlabæ
Þorvaldur Þorkelsson
bóndi í Litlabæ á Álftanesi
Ágústína Þorvaldsdóttir
ráðskona í Reykjavík
Pétur Georg Guðmundsson
bókbindari og verkalýðsfrömuður í Reykjavík
Jóhanna Guðrún Stefánsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðmundur Þorsteinsson
smiður og sjómaður á Akranesi
Úr frændgarði Stefáns Jökulssonar
Jökull Pétursson
málarameistari og hagyrðingur í Reykjavík
FRAMTÍÐAR INNSETNINGARLISTAMAÐUR. „ÞAÐ ER ANNAÐ GRILL Í VESTURBÆNUM. KANNSKI ÁTTIRÐU AÐ HITTA HANA ÞAR?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... í örum vexti.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
DÖNSUM Á
MEÐAN VIÐ
GETUM!
MEINARÐU ÁÐUR EN
HLJÓMSVEITIN HÆTTIR AÐ
SPILA?
NEI … ÁÐUR EN
KÆRASTINN MINN
BRÝTUR Á ÞÉR
LEGGINA!
HVAÐ KEMUR ÞAÐ
MÁLINU VIÐ?
SVANGUR,
GRETTIR?
HANS BESTA VERK
TIL ÞESSA.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Fagnaðarboðskap flytur sá,
fremstur hluti sporði á.
Einatt veginn vísar þér.
Vel í holu unir sér.
Guðrún Bjarnadóttir á þessa
lausn:
Prédikun hjá prestum.
Prestur við sporðinn er.
Vegprestur vísar gestum.
Vel prestfugl holu sker.
„Lausnin vill vera svona“ hjá
Helga R. Einarssyni:
Jólafriðarboðskap ber,
beinir leiðir gestum,
Á lúðusporði og lundi er.
Líkist þetta prestum.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Fræða um páska prestur má.
Prestur er sporði fremstur á.
Vegprestur þér vísar leið.
Vængjaður prestur í holu skreið.
Þá er limra:
Rafn mætti ríðandi séra,
rauk til og vildi nú þéra,
hann þéraði hestinn
og þúaði prestinn,
en það er að skandalísera.
Síðan kemur ný gáta eftir Guð-
mund:
Glitra ljós um borg og bý,
braga lifnar glóðin,
gerð í flýti gáta ný,
svo gleðjast megi þjóðin:
Kringum löndin liggur hann.
Litla svefnró gefur.
Jór, sem bera knapa kann.
Kolblátt auga hefur.
Helgi R. Einarsson lét þessar
fljóta með sinni lausn, - „Súpan“:
Í súpunni þú sast
er um diskinn dast,
í henni lást
og hana ást
því ekki annað gast.
Og að lokum frá Helga:
Hátíð nú að höndum ber,
hjónakornin spræk.
Nýja árið nálgast fer.
„Njótið, knús og læk.“
Þegar skólavarðan var rifin og
myndastytta af Leifi heppna sett í
staðinn orti Karl Friðriksson vega-
verkstjóri:
Vikið burt er vörðunni
– valt er heimsins gengi –
svo að ekki af henni
óorð Leifur fengi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Þegar rignir á prestinn
þá drýpur á djáknann