Morgunblaðið - 28.12.2019, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 28.12.2019, Qupperneq 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019 The Favourite „Hvert einasta smáatriði í The Favourite er úthugsað, óvænt og hlaðið og útkoman er frá- munalega heillandi bíómynd.“ BH Parasite „Kvikmyndataka, klipping og sviðsmynd eru algjörlega frábærar og styðja vel við hand- ritið, sem segja má að sé stjarna mynd- arinnar.“ BH Marriage Story „Stórkostlegar bíómyndir eins og Marriage Story eru ekki á hverju strái. Þetta er besta mynd Baumbachs og ein athyglisverðasta kvikmynd áratugarins sem lýkur brátt.“ BH KAF „KAF er algjör „feel-good“-mynd, kannski er þetta ný grein: vellíðunarheimildarmyndir.“ BH Spider-Man: Into the Spider-Verse „Útlitslega er Into the Spider-Verse ein flott- asta teiknimynd síðustu ára. Sérstaklega eru lokaatriðin ótrúleg að sjá; nánast eins og maður sé genginn inn á popplistasýningu.“ ÞGS Shoplifters „Búðarþjófar er fyrst og fremst mannleg saga en það verður ekki hjá því komist að lesa hana líka sem pólitískt verk.“ BH Shoplifters Hvítur, hvítur dagur „Hvítur, hvítur dagur er frábær mynd og með henni sanna Hlynur og teymi hans að þau eru ekki einungis rísandi stjörnur heldur listamenn á heimsmælikvarða.“ BH Little Joe „Myndin er algjört hlaðborð fyrir skilningar- Marriage Story vitin, sviðsmyndin og búningarnir eru stór- kostlegir, klippingin er snjöll og kvikmynda- takan algjörlega óaðfinnanleg.“ BH Jusqu‘à la garde „Fyrsta flokks kvikmynd eftir leikstjóra sem mun eflaust láta frekar að sér kveða í fram- tíðinni.“ HS The Lighthouse „The Lighthouse er rosaleg mynd, blýþung, ágeng og hávær og það er mögnuð upplifun að sjá hana í bíó.“ BH Kvikmyndir ársins Margar framúrskarandi kvikmyndir voru sýndar á árinu 2019. Tveir af kvikmyndagagnrýnendum Morgunblaðsins, Helgi Snær Sigurðsson og Brynja Hjálmsdóttir, völdu tíu og nokkrar til viðbótar af þeim bestu sem frumsýndar voru hér á landi á árinu og gagnrýndar í blaðinu. OG ÞESSAR LÍKA Eftirfarandi kvikmyndir komust einnig á blað yfir þær bestu á árinu: Once Upon a Time in … Hollywood, Bergmál, Agnes Joy, Knives Out, Us, Dronningen, Girl, Green Book og Synir Danmerkur. GAGNRÝNENDUR HSS: Helgi Snær Sigurðsson, BH: Brynja Hjálmsdóttir, ÞKS: Þorgrímur Kári Snævarr. The Favourite Parasite Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI SÉRSTÖK FORSÝNING 30. DES KL. 22.20

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.