Morgunblaðið - 11.12.2019, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2019 7FRÉTTIR
Fjarskiptafélagið Sýn kynnti á dög-
unum þá nýjung í sjónvarpsþjón-
ustu sinni að nú geta viðskiptavinir
keypt bíómyndir í gegnum mynd-
lykilinn heima í stofu. Áður var ein-
göngu hægt að leigja myndir.
„Þetta er framlenging af Leig-
unni, þar sem þú getur horft á
myndina í tvo sólarhringa. Með því
að kaupa myndina vistast hún óend-
anlega lengi á myndlyklinum,“ seg-
ir Þóra Björg Clausen, rekstr-
arstjóri nýmiðla hjá Sýn, í samtali
við ViðskiptaMoggann.
Magnús Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri sölu hjá Símanum,
segir að Síminn hyggist hleypa
samskonar þjónustu af stokkunum í
janúar.
Þóra segir að eftir að mynd er
keypt sé hægt að horfa á hana hve-
nær sem er en einungis sé greitt
eitt gjald í upphafi. Aðspurð segir
hún að kaupverð hverrar myndar
verði mismunandi. „Þetta fer eftir
því hvaða verð við fáum frá okkar
birgjum, en verðflokkarnir eru frá
990 kr. upp í 2.990 kr.“
Einn sjötti hluti í boði
Í dag eru að sögn Þóru um 500
kvikmyndir Leigunnar aðgengileg-
ar til kaups einnig. „Við erum að
semja við fleiri birgja. Við vildum
fara rólega af stað, meðan við vær-
um að hanna virknina, en við eigum
von á að titlum fjölgi mjög ört.“
Hægt verður einnig að horfa á
keyptar myndir í Stöð 2 appinu, og
á netinu, er fram líða stundir, að
sögn Þóru.
Hún segir að erlendis hafi sam-
bærileg þjónusta verið í boði í nokk-
ur ár og þetta hafi lengi verið á
verkefnalista Sýnar. „Fyrr á þessu
ári kom tilkynning frá Elko um að
fyrirtækið væri hætt að selja DVD-
diska. Þessi þjónusta okkar er þá
svarið við því. Ég held að þetta
muni koma sér sérstaklega vel fyrir
barnafólk, því ákveðnar barna-
myndir eru mjög vinsælar, og börn-
in vilja horfa á þær aftur og aftur.“
Einungis er í boði að kaupa kvik-
myndir eins og er en ekki sjón-
varpsþætti.
Hún segir að viðtökur hafi verið
mjög góðar og engin vandamál hafi
komið upp.
En hvað verður um myndirnar ef
viðskiptavinur hættir í viðskiptum
við fyrirtækið?
„Þá muntu samt geta nálgast þær
í gegnum appið. Myndin fylgir þér,
og streymið verður alltaf til stað-
ar.“
Línulegt áhorf ekki á útleið
Þóra Björg segir aðspurð að við-
skiptavinir kjósi mismunandi leiðir
til að horfa á sjónvarpsefnið sem í
boði er hjá Sýn. „Ákveðinn mark-
hópur vill bara horfa á línulega dag-
skrá, en aðrir vilja geta nálgast efn-
ið eftir sínum þörfum, og sá hópur
er að stækka, mest á kostnað línu-
legs áhorfs. „Við sjáum líka mikla
notkun í Stöð 2 appinu og vefvið-
mótinu okkar.“
Hún segir mikla samkeppni ríkja
á markaðnum, enda noti margir
Netflix, Amazon Prime eða aðrar
streymisveitur. „Okkar stefna fram
á við er að styrkja okkar innlenda
vöruframboð. Við erum með mjög
sterka innlenda dagskrárgerð.
Leikið íslenskt efni er leiðin fram á
við og talsett barnaefni.“
Spurð að því hvort línuleg dag-
skrá verði aflögð með tímanum,
segir Þóra að forsvarsmenn Sýnar
séu engan veginn á því að línulegt
sjónvarp sé búið að vera. Stór og
dyggur hópur viðskiptavina velji þá
leið, og línulegt og ólínulegt áhorf
styðji vel við hvert annað hjá Sýn.
VOD-leigur
bjóða kaup á
bíómyndum
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Vinsælt er að leigja kvik-
myndir og sjónvarpsþætti
á VOD-leigum Sýnar og
Símans, en nú hafa kaup
einnig verið gerð möguleg.
AFP
Teiknimyndin Frozen 2, sem fjallar um systurnar Elsu og Önnu, nýtur nú mikilla vinsælda í kvikmyndahúsum lands-
ins. Verður myndin vafalaust ein þeirra kvikmynda sem margir vilja kaupa og eiga um alla framtíð.
Þóra Björg
Clausen
Magnús
Ragnarsson