Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 10
Vignir segir að vel sé bætt við í aðdraganda jóla. Venjulega séu ríflega hundrað tegundir í kælinum við hliðina á sælkeraborðinu í versluninni í Kringlunni en fyrir jólin séu pantaðar inn tugir til viðbóta og þá reynt að stíla meira inn á hátíðarnar. Truffluostar hafa verið afskaplega vinsælir og fyrir jólin er hægt að fá sælgæti á borð við gorgonzola með trufflum, gráðaost með karmellulíkjör„Sælkeraborðið okkar er afrakstur áralangrar vinnu í að finna að hverju íslenski neytandinn er að leita, og svo kannski einmitt það sem hann vissi ekki að hann væri að missa af. Það er hluti af töfrunum – að geta komið fólki á óvart og boðið upp á eitthvað sem tekur upplifunina upp á næsta stig. Hér erum við með osta sem bókstaflega bráðna í munni og eru svo góðir að það er leitun að öðru eins. Osta sem byggjast á aldagamalli hefð og vinnsluaðferðum, sumir úr smiðju sömu fjölskyldnanna í gegnum árhundruðin. Gæðin eru í fyrirrúmi og það skilar sér vonandi til neytandans. Ostarnir koma aðallega frá fjórum löndum; Frakklandi, Hollandi, Wales og Danmörku. Úrvalið af kjötá- leggi er líka afar gott en þar má meðal annars nefna parma-hráskinku, crespone salami Milano, parma mattonela, panchetta, serrano- hráskinku (bæði 12 og 18 mánaða), mangalica-hráskinku auk nokkurra ís- lenskra tegunda á borð við raftaskinku og roastbeef. Vissir þú… …að í sælkeraborði Hagkaups er að finna yfir 80 tegundir af frönskum ostum … að hægt er að kaupa sérútbúnar gjafakörfur fullar af ostum … að elstu ostarnir eru yfir þriggja ára gamlir … að hægt er að fá bæði 12 og 18 mánaða serrano- hráskinku … að þú getur ráðið því í hversu þykkar sneiðar kjötið er skorið … að Hag- kaup fram- leiðir sína eigin gráða- ostasósu úr Bleu d. Auvergne … að hægt er að fá ferskan og nýrifinn par- mesan-ost? E itt best geymda leyndarmál matgæðinga hér á landi er að finna í Kringlunni – þar sem sælkeraborð Hagkaups er við það að svigna undan kræsingum og allt er að fyllast fyrir hátíðarnar. Hér kennir ýmissa grasa og við vorum við það að fá valkvíða og sælkerasótt ef svo skyldi kalla. Þarna leynast helstu perlur ostagerðarinnar, sérvaldar inn í sælkeraborðið, og við fengum Vigni Þór Birgisson, vörustjóra matvöru (lesist: sá sem velur inn kræsingarnar), til að fara með okkur í gegnum það helsta. Vignir byrjar á að útskýra fyrir okkur að það séu sælkeraostakælar í hverri Hagkaupsverslun þar sem sé að finna úrval innfluttra osta. „Síðan í Kringlunni erum við með sælkeraostaborð þar sem hægt er að kaupa eftir vigt. Þar erum við með rúmlega 80 osta í borðinu og yfir hundrað osta í kælinum. Margir hverjir eru búnir að fá að eldast svo árum skiptir og svo eru það hinir sem hafa afar stuttan líftíma, jafnvel bara tuttugu daga. Við leggjum áherslu á að hafa úrvalið sem fjölbreyttast og kaupum eingöngu af úrvalsframleiðendum. Þannig er það líka með áleggið okkar en við er- um með mikið af allskyns kjöti, að- allega frá Ítalíu og Spáni, sem sneitt er niður eftir óskum við- skiptavinarins. Sumir vilja sneiðarnar þykkari og aðrir þynnri. Það er allur gangur á því.“ Best geymda leyndarmál matgæðinganna Gráðaostur blandaður við Choco 21 súkkulaðiíkjör og toppaður með kakói og súkkulaði. Gráðaostur blandaður með karamellu líkjöri og hesli- hnetum. 10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 Fasani Það sem kom okkur Anítu mest á óvart við undirbúning blaðsins – að öðru kjöti ólöstuðu – var fasaninn. Fasani hefur oft verið kallaður hvíta villibráðin eða jafnvel villibráðarhæna því óeldaður lítur fuglinn út eins og kjúklingur. Sem þýðir jafnframt að eldun hans ætti ekki að vefjast fyrir neinum. Það er hins vegar bragðið sem kemur á óvart. Hvítt magurt kjöt en um- talsvert bragðmeira og með meiri fyllingu en við eigum að venjast. Þetta er því hin fullkomna hátíðarsteik fyrir þá sem vilja ljóst kjöt eða prófa eitthvað nýtt. Þegar við Aníta vorum að velta því fyrir okkur hvernig ætti að matbúa fuglinn fundum við uppskrift frá áttunda áratugnum sem hét Appelsínufasani í skinkuteppi. Þetta er með betri uppskriftartitlum sem sést hafa og við ákváðum að taka þessa uppskrift og skipta út brauðskinkunni fyrir parmaskinku og setja þykkt lag af góðgæti undir. Þetta var gert til að kjötið þornaði ekki um of og bar tilætlaðan árangur. Kjötið var æðislegt og við mælum hiklaust með fasana um hátíðarnar. Hangikjöt Hangikjötið sem við elduðum í þessu blaði var frá Hagkaup og inniheldur 50% minna salt. Margur hefði haldið að það væri eingöngu fyrir fólk með alltof háan blóðþrýsting en svo er hreint ekki. Þar sem ég er afar vandlát á hangikjöt átti ég von á að kjötið væri bragðminna, en sú var ekki raunin. Það eru því sérlega góðar fréttir fyrir fólk sem vill minnka saltneysluna án þess að fórna bragðgæðunum og því er þetta frábæra hangikjöt afar vel þegið. Þegar þið sjóðið hangikjöt er mikilvægt að byrja með kalt vatn og leyfa því að hitna á hellunni og kjötið með. Alls ekki setja kjötið út í sjóðandi vatn. Kalkúnn Þó það sé alls ekki flókið að elda heilan kalkún þá er það töluvert mikið magn af mat og kall- ar á að eiga ofn til að elda í. Því er kalkúnaskipið eins og við elduðum fyrir blaðið kærkomin viðbót og reyndar fremur snjöll uppfinning ef út í það er farið. Smjörsprautunin tryggir að kjötið verður algjört lostæti og eldunin er ekki flókin. Það er því ekki svo mikið mál að galdra fram veislumáltíð án þess að vera með meirapróf í eldhúsinu. Svo er hægt að kaupa tilbúna fyllingu og bera fram með og auðvitað girnilega sósu. Nánast allt meðlæti passar með kal- kún svo þið eruð í öruggum höndum. Krónhjörturinn Þessi steik var alveg upp á tíu. Við Aníta höfðum fastlega búist við því og hún stóð svo sann- arlega undir væntingum. Fyrir þá sem vilja bjóða upp á öðruvísi steik en venjulega þá er þetta algjörlega málið. Kjötspekúlantinn getur dundað sér við að ná réttum kjarnhita og hantera kjötið eftir kúnstarinnar reglum. Útkoman mun ekki valda ykkur vonbrigðum. Hamborgarhryggur Yfirleitt þarf að sjóða hamborgarhrygg fyrst og setja svo í ofninn. Nú eru hins vegar breyttir tímar og hamborgarhryggurinn frá Hagkaup er þeim töfrum gæddur að hann má fara beint inn í ofn. Að auki er hann saltminni sem er mikill kostur. Ef þið kjósið þennan hamborgar- hrygg er gott að muna að setja nokkra desilítra af vatni í ofnskúffuna/fatið sem hann er eld- aður í til að fá hið dýrmæta soð í sósuna. Flóknara er það ekki. Oumph! Wellington Veganmatur hefur aldrei bragðast jafnvel. Þessi steik kom skemmtilega á óvart, stóð vel undir væntingum og gott betur. Oumph er frábær valkostur fyrir þá sem borða ekki kjöt eða vilja breyta til um hátíðarnar og það er hreint ekki þannig að það sé léleg sárabót fyrir alvöru steik. Oumphið hefur staðsett sig sem alvöru steik – bara ekki úr kjöti – sem á vel heima á hátíðarborðinu sem aðalstjarnan. Það er ekki flókið að elda það. Fylgið bara leiðbeining- unum á pakkningunum en munið að smyrja formið sem þið eldið það í svo það festist ekki við botninn. Kjötið sem við elduðum Ljósmynd/Colourbox Jólasteikin í ár Við spáum því að fasaninn eigi eftir að slá í gegn á matborðum lands- manna um hátíðarnar ef marka má viðtökurnar sem fuglinn sem við elduðum fyrir þetta blað fékk. Einstaklega bragðmikið og létt kjöt sem slær ekki feilnótu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.