Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 15 4 bökunarkartöflur smjör Norðursalt timian Kartöflurnar skolaðar og þerraðar. Síðan eru skornar djúpar, þunnar rifur í kartöflurnar en passa þarf þó að skera ekki alveg í gegnum kartöfluna svo að hún detti ekki í sundur. Smjörið og timianið sett í pott og brætt saman. Kartöflunum raðað í eld- fast mót og smjörinu hellt yfir kartöflurnar og ofan í rifurnar, saltað síðan vel yfir. Bakaðar á 180°C í 60 mínútur eða þar til þær eru bakaðar í gegn, gott er að taka þær út 1-2 á þessum tíma og ausa smjörinu yfir þær. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hasselback-kartöflur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rauðrófusalat mömmu 2 dl rjómi 2 msk. sýrður rjómi 1 msk. mayo 1 krukka salat rauðrófur (ca. 300 g) 2 Jonagold-epli Rjóminn þeyttur og sýrða rjómanum og mayoinu bætt út í. Eplin afhýdd og skorin í litla bita, þá er mesti safinn af rauðrófunum sigtaður af og öllu blandað saman. Kælt í a.m.k. 3 tíma áður en það er borðað. 300 g rósakál 100 g beikon 3 dl rjómi salt Endinn skorinn af rósakálinu, síðan er það skorið í helminga. Beikonið skorið í litla bita. Panna hituð og beikonið steikt þar til það er stökkt, þá er beikonið tekið af (ekki hella fitunni af) og rósakálið sett út á pönnuna, steikt í um það bil 5 mínútur. Þá er beikonið sett aftur út á, sem og rjóminn. Rjóminn er síðan soðinn niður rólega þar til hann þykknar vel. Smakkað til með salti í lokin. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rósakál með beikoni og rjóma 800 g bökunarkartöflur 2 dl rjómi salt Karamella 2 dl sykur 2 msk. vatn 1 msk. smjör Kartöflurnar bakaðar í ofni þar til þær eru mjúkar, tími fer eftir stærð, um það bil klukkutími. Á meðan kartöflurnar eru í ofn- inum er hægt að búa til karamelluna. Sykurinn og vatn sett saman í pott, hitað á meðal háum hita þangað til myndast fal- lega brún karamella, potturinn tekinn af og smjörinu hrært saman við. Þegar kartöflurnar eru klárar eru þær skornar í tvennt og settar í kartöflupressu og pressaðar í pott, hrært saman með rjómanum. Þegar blandan er orðin nokkuð mjúk og kekkjalaus þá er karamellunni bætt út í, bara litlu í einu og smakkað á milli, það er misjafnt hvað fólk vill hafa músina sæta. Síðast er músin smökkuð til með salti. Brúnuð kartöflumús

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.