Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 María Gomez á heiðurinn að þess- ari uppskrift sem hún mælir heils- hugar með ef þú vilt vera skemmti- lega öðruvísi. 1.200 g kartöflur (ekki bök- unar) 6 hvítlauksrif eða 2 geiralausir hvítlaukar 1 bolli rjómi 2 bollar nýmjólk 25 g smjör 2 tsk. gróft salt pipar ferskt timian ½ bolli rifinn parmesan 1 bolli steikt beikonkurl 150 g smátt skornir sveppir Aðferð: 1. Byrjið á að taka hýðið af kartöfl- unum og skerið hverja kartöflu í fjóra bita, takið af hvítlauknum og merjið hvert rif með því að lemja á það. Ekki setja í hvítlaukspressu. 2. Setjið kartöflur í pott og bætið rjóma, mjólk, salti og hvítlauk út í og byrjið að sjóða . 3. Látið sjóða í eins og 30 mínútur eða þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar. 4. Steikið beikon og sveppi saman á pönnu þar til sveppir eru orðnir vel dökkir og beikonið stökkt. 5. Þegar kartöflurnar eru soðnar er smjör sett út í og látið bráðna. 6. Stappið svo með kartöflustapp- ara í pottinum (betra að setja ekki í matvinnsluvél því þá getur hún orð- ið eins og lím). Stappið vel en það er allt í lagi að hún sé smá gróf. 7. Bætið þá beikonsveppunum, ferska tímjaninu, parmesanost- inum og pipar út í og hrærið sam- an. (athugið að taka laufin af timj- aninu af greinunum og að magn er eftir smekk) 8. Smakkið og saltið og piprið meira ef þarf. 9. Fullkomið með reyktu kjöti og sinnepssósunni góðu. Meðlæti Rjómalöguð hvítlauks- og parmesan- kartöflumús með beikoni, sveppum og timjan ferskt salat basil klementínur grænt epli heslihnetur mozzarella-perlur trönuber (ekki þurrkuð) Salat og basil þvegið og þurrkað, skorið eða rifið niður, eplin skorin, klementínurnar afhýddar, heslihneturnar ristaðar, vökv- anum hellt af mozzarella-perlunum og síðan öllum hráefnum blandað saman. Vinaigrettunni blandað saman og notið. Blóðbergsvinaigrette 1 skalottlaukur 4 msk. sítrónuolía 2 tsk. blóðbergssíróp ¼ appelsína – börkur og safi svartur pipar Skalottlaukurinn skorinn mjög smátt, appelsínubörkur skrapaður og safinn kreistur úr appelsínunni síðan er olíunni og sírópinu blandað saman og smakkað til með svörtum pipar. Jólasalat með blóðbergsvinaigrettu Ljósmynd/María Gomez

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.