Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 21
Ef þig langar að heyra gestina veina af gleði er þetta kakan sem þú átt að bjóða upp á. María Gomez á þessa uppskrift og bregður hér út frá smjörkremshefðinni. „Þar sem ég elska að fá mér fersk jarðarber út í bragðaref fannst mér það snilldarhugmynd að blanda stöppuðum ferskum jarðarberjum í rjómakremið á annan helminginn og úr varð þessi dásamlega góða súkkulaðirjómaterta sem ég get lofað að allir munu elska,“ segir María um kökuna. Djúpt súkkulaðibragðið í bland við mjúkan sætan rjómann og ferska jarðarberjarjómann er bara blanda sem getur ekki klikkað, að toppa hana svo með dásamlegri súkkulaðibráð og brómberjum er algjörlega til að gera hana fullkomna. Ef þið viljið ganga í augun á gestum ykkar mælir María með því að gera hana þriggja hæða en þá eru notuð þrjú 21 cm form en annars er alveg hægt að gera hana á auðvelda mátann og hafa hana hefðbundna tveggja hæða og notast þá við 2x26 cm form. Þá er jarðarberjarjóminn settur beint ofan á vanillurjómann og kakan er alls ekki síðri þannig. Uppskriftin er nákvæmlega sú sama svo ykkar er valið. Hér er best að eiga bollamál. Súkkulaðikökubotnar 2 bollar sykur 1¾ bollar hveiti ¾ bollar kakó 1½ tsk. lyftiduft 1½ tsk. matarsódi 1 tsk. fínt salt 2 egg 1 bolli AB-mjólk eða sýrður rjómi ½ bolli grænmetis- eða sólblómaolía 2 tsk. vanilludropar 1 bolli sjóðandi heitt kaffi (ég sýð bara vatn og set 1 tsk. instantkaffi út í) 1.Hitið ofninn í 180°C blástur. 2. Setjið öll þurrefnin í skál og hrærið létt saman. 3. Bætið því næst eggjunum út í og svo afganginum af uppskriftinni, nema kaffinu, geymið það þar til síðast. 4. Allt þeytt saman í mjög stutta stund; ef þið hrærið of lengi verða botnarnir seigir. 5. Deigið á að vera þykkt og þétt í sér þegar hér er komið sögu. 6. Stoppið hrærivélina og hellið kaffinu út í og kveikið aftur í mjög stutta stund á miðlungshraða. 7. Það er nóg að hráefnin blandist bara rétt saman og blandan verði mjúk, glansandi og frekar þunn. 8. Ef þið notið 21 cm form verða þetta þrír botnar. Í 26 cm formi fáið þið tvo botna. Ég notaði núna 21 cm form. 9. Úðið formin að innan með bökunarúða. Fyrir þessa upp- skrift er hann betri en að smyrja formin með smjöri. 10. Sníðið smjörpappa í botninn og úðið svo aftur yfir hann. 11. Hellið blöndunni varlega í formin og látið ná ¾ upp, eða aðeins meira en upp að miðju. Kakan lyftir sér vel og ef sett er of mikið í formið getur hún farið að leka út yfir barmana inni í ofninum. 12. Setjið nú kökuna í ofninn á 180°C í 35 mínútur. 13. Þegar hún á að vera orðin tilbúin, opnið þá ofninn og stingið í miðjuna á henni með hníf eða prjóni og ef hann kemur alveg hreinn upp úr er kakan til. Ef það er blautt deig á hnífnum eða prjóninum þarf að baka hana í fimm mínútur í viðbót. Takið hana svo úr ofninum og látið kólna vel áður en kremið er sett á. Krem 750 ml rjómi 200 g flórsykur 250 g fersk jarðarber ½ tsk. vínsteinslyftiduft (e. cream of tartar) 1. Setjið í hrærivélarskál rjóma, flórsykur og vínsteins- lyftiduft. 2. Þeytið vel þar til rjóminn er orðinn stífur. 3. Skiptið þá kreminu í tvennt. 4. Hafið annan helminginn eins og hann er og leggið til hlið- ar. 5. Stappið næst jarðarberin með gaffli eða setjið í blandara og maukið gróft og hrærið varlega saman við hinn helm- inginn með sleikju. 6. Geymið í ísskáp meðan næsta skref er gert. Súkkulaðibráð 75 g rjómi 85 g suðusúkkulaði 1. Setjið rjómann í örbylgju í 45 sekúndur. 2. Brjótið súkkulaðið ofan í rjómann og látið það bráðna þar ofan í og hrærið vel þar til silkimjúkt og glansandi. 3. Leggið til hliðar og leyfið að kólna meðan tertan er sett saman. Tertan sett saman: 1. Byrjið á að setja fyrsta botninn á kökudisk. 2. Sprautið eða smyrjið hvíta vanillurjómanum á botninn með hníf. 3. Setjið næsta botn ofan á. 4. Smyrjið eða sprautið jarðarberjakreminu á miðjubotninn. 5. Þriðji botninn settur ofan á. 6. Takið svo afganginn af jarðarberjarjómanum og setjið efst upp á. 7. Næst er súkkulaðibráðin sett yfir allt saman og brómber ofan á. 8. Ef þið gerið tveggja botna er aðferðin sú sama nema að í stað miðjubotns er jarðarberjakremi sprautað ofan á van- illukrem, ekki blanda því samt saman heldur leyfið því að vera lagskiptu. Skógarberjasúkkulaðidraumur með vanillu- og jarðarberjarjóma FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 21 Smákökudeig 2 GÓMSÆTAR TEGUNDIR MEÐ PIPAR DJÚPUM MEÐ SÚKKULAÐIBITUM 899kr/pk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.