Morgunblaðið - 05.12.2019, Side 21
Ef þig langar að heyra gestina veina af gleði er þetta kakan
sem þú átt að bjóða upp á. María Gomez á þessa uppskrift
og bregður hér út frá smjörkremshefðinni.
„Þar sem ég elska að fá mér fersk jarðarber út í bragðaref
fannst mér það snilldarhugmynd að blanda stöppuðum
ferskum jarðarberjum í rjómakremið á annan helminginn og
úr varð þessi dásamlega góða súkkulaðirjómaterta sem ég
get lofað að allir munu elska,“ segir María um kökuna.
Djúpt súkkulaðibragðið í bland við mjúkan sætan rjómann
og ferska jarðarberjarjómann er bara blanda sem getur ekki
klikkað, að toppa hana svo með dásamlegri súkkulaðibráð
og brómberjum er algjörlega til að gera hana fullkomna.
Ef þið viljið ganga í augun á gestum ykkar mælir María
með því að gera hana þriggja hæða en þá eru notuð þrjú 21
cm form en annars er alveg hægt að gera hana á auðvelda
mátann og hafa hana hefðbundna tveggja hæða og notast
þá við 2x26 cm form. Þá er jarðarberjarjóminn settur beint
ofan á vanillurjómann og kakan er alls ekki síðri þannig.
Uppskriftin er nákvæmlega sú sama svo ykkar er valið. Hér
er best að eiga bollamál.
Súkkulaðikökubotnar
2 bollar sykur
1¾ bollar hveiti
¾ bollar kakó
1½ tsk. lyftiduft
1½ tsk. matarsódi
1 tsk. fínt salt
2 egg
1 bolli AB-mjólk eða sýrður rjómi
½ bolli grænmetis- eða sólblómaolía
2 tsk. vanilludropar
1 bolli sjóðandi heitt kaffi (ég sýð bara vatn og set 1
tsk. instantkaffi út í)
1.Hitið ofninn í 180°C blástur.
2. Setjið öll þurrefnin í skál og hrærið létt saman.
3. Bætið því næst eggjunum út í og svo afganginum af
uppskriftinni, nema kaffinu, geymið það þar til síðast.
4. Allt þeytt saman í mjög stutta stund; ef þið hrærið of
lengi verða botnarnir seigir.
5. Deigið á að vera þykkt og þétt í sér þegar hér er komið
sögu.
6. Stoppið hrærivélina og hellið kaffinu út í og kveikið aftur í
mjög stutta stund á miðlungshraða.
7. Það er nóg að hráefnin blandist bara rétt saman og
blandan verði mjúk, glansandi og frekar þunn.
8. Ef þið notið 21 cm form verða þetta þrír botnar. Í 26 cm
formi fáið þið tvo botna. Ég notaði núna 21 cm form.
9. Úðið formin að innan með bökunarúða. Fyrir þessa upp-
skrift er hann betri en að smyrja formin með smjöri.
10. Sníðið smjörpappa í botninn og úðið svo aftur yfir hann.
11. Hellið blöndunni varlega í formin og látið ná ¾ upp, eða
aðeins meira en upp að miðju. Kakan lyftir sér vel og ef
sett er of mikið í formið getur hún farið að leka út yfir
barmana inni í ofninum.
12. Setjið nú kökuna í ofninn á 180°C í 35 mínútur.
13. Þegar hún á að vera orðin tilbúin, opnið þá ofninn og
stingið í miðjuna á henni með hníf eða prjóni og ef hann
kemur alveg hreinn upp úr er kakan til. Ef það er blautt
deig á hnífnum eða prjóninum þarf að baka hana í fimm
mínútur í viðbót. Takið hana svo úr ofninum og látið kólna
vel áður en kremið er sett á.
Krem
750 ml rjómi
200 g flórsykur
250 g fersk jarðarber
½ tsk. vínsteinslyftiduft (e. cream of tartar)
1. Setjið í hrærivélarskál rjóma, flórsykur og vínsteins-
lyftiduft.
2. Þeytið vel þar til rjóminn er orðinn stífur.
3. Skiptið þá kreminu í tvennt.
4. Hafið annan helminginn eins og hann er og leggið til hlið-
ar.
5. Stappið næst jarðarberin með gaffli eða setjið í blandara
og maukið gróft og hrærið varlega saman við hinn helm-
inginn með sleikju.
6. Geymið í ísskáp meðan næsta skref er gert.
Súkkulaðibráð
75 g rjómi
85 g suðusúkkulaði
1. Setjið rjómann í örbylgju í 45 sekúndur.
2. Brjótið súkkulaðið ofan í rjómann og látið það bráðna þar
ofan í og hrærið vel þar til silkimjúkt og glansandi.
3. Leggið til hliðar og leyfið að kólna meðan tertan er sett
saman.
Tertan sett saman:
1. Byrjið á að setja fyrsta botninn á kökudisk.
2. Sprautið eða smyrjið hvíta vanillurjómanum á botninn
með hníf.
3. Setjið næsta botn ofan á.
4. Smyrjið eða sprautið jarðarberjakreminu á miðjubotninn.
5. Þriðji botninn settur ofan á.
6. Takið svo afganginn af jarðarberjarjómanum og setjið efst
upp á.
7. Næst er súkkulaðibráðin sett yfir allt saman og brómber
ofan á.
8. Ef þið gerið tveggja botna er aðferðin sú sama nema að í
stað miðjubotns er jarðarberjakremi sprautað ofan á van-
illukrem, ekki blanda því samt saman heldur leyfið því að
vera lagskiptu.
Skógarberjasúkkulaðidraumur
með vanillu- og jarðarberjarjóma
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 21
Smákökudeig
2 GÓMSÆTAR TEGUNDIR
MEÐ PIPAR DJÚPUM
MEÐ SÚKKULAÐIBITUM
899kr/pk