Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 16
Sósur 16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 Þessi dásamlega sósa fæddist eftir mikla tilraunastarfsemi. Hún fer alveg ofboðslega vel með kjötinu,“ segir María Gomez um þessa sósu sem hún fullyrðir að sé algjörlega frábær. Hér er- um við ekki að tala um sinnepssósu eins og við setjum á samlokur heldur meira í ætt við Bernaise-sósu en í henni eru t.d. egg og smjör hrært yfir vatns- baði. Þessa sósu er alveg tilvalið að hafa í jólaboði með köldu kjöti. ¼ bolli sykur ¼ bolli nýmjólk eða rjómi ¼ bolli hvítt borðedik 2 msk. hunangs Dijon-sinnep 1 egg 25-30 g smjör salt Setjið vatn í pott og skál yfir, passið að botninn á skálinni snerti ekki vatnið. 1. Hafið yfir miðlungshita. 2. Brjótið nú eggið í skálina og setjið sykur saman við og pískið vel sam- an. 3. Bætið svo við rjóma/mjólk og sinn- epinu og leyfið sósunni að hitna vel, hrærið reglulega í 4. Bætið svo ediki út í og látið sjóða þar til hún er orðin þykk. 5. Ef hún nær ekki að þykkna yfir vatns- baði er gott að setja hana beint í pott og láta hana ná suðu, þá byrjar hún fljótt að þykkna. 6. Takið hana þá af hellunni og bætið við smjöri og salti og hrærið vel. Hægt er að bera sósuna fram jafnt kalda sem heita. Ljósmynd/María Gomez Heit sinneps- sósa með hamborgar- hrygg eða reyktu svínakjöti Þessi girnilega og örlítið fram- andi sósa er með þeim vin- sælli sem Úlfar Finnbjörns- son, matreiðslumaður og villibráðarkonungur, hefur mallað á lífsleiðinni. Sjálfur segir Úlfar sósuna vera stór- kostlega og passa með nán- ast öllum mat. 5 cm bútur flysjuð engiferrót ½-1 chilialdin, fræhreinsað 3-4 hvítlauksgeirar 1 tsk. kóríanderfræ, má sleppa 1 tsk. rósapipar, má sleppa 1 tsk. milt karrí 1 tsk. paprikuduft 2 msk. hunang 2 msk. balsamedik 3 msk. ostrusósa 2 msk. tómatsósa 2 msk. sætt sinnep 2 msk. sérrí 2-3 dl olía Setjið allt nema olíuna í mat- vinnsluvél og maukið vel. Hellið þá olíunni saman við í mjórri bunu og látið vélina ganga á meðan. Úllala sósa Úlfars Finn- björns

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.