Morgunblaðið - 05.12.2019, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
María Gomez á heiðurinn að þess-
ari uppskrift sem hún mælir heils-
hugar með ef þú vilt vera skemmti-
lega öðruvísi.
1.200 g kartöflur (ekki bök-
unar)
6 hvítlauksrif eða 2 geiralausir
hvítlaukar
1 bolli rjómi
2 bollar nýmjólk
25 g smjör
2 tsk. gróft salt
pipar
ferskt timian
½ bolli rifinn parmesan
1 bolli steikt beikonkurl
150 g smátt skornir sveppir
Aðferð:
1. Byrjið á að taka hýðið af kartöfl-
unum og skerið hverja kartöflu í
fjóra bita, takið af hvítlauknum og
merjið hvert rif með því að lemja á
það. Ekki setja í hvítlaukspressu.
2. Setjið kartöflur í pott og bætið
rjóma, mjólk, salti og hvítlauk út í
og byrjið að sjóða .
3. Látið sjóða í eins og 30 mínútur
eða þar til kartöflurnar eru orðnar
mjúkar.
4. Steikið beikon og sveppi saman
á pönnu þar til sveppir eru orðnir
vel dökkir og beikonið stökkt.
5. Þegar kartöflurnar eru soðnar er
smjör sett út í og látið bráðna.
6. Stappið svo með kartöflustapp-
ara í pottinum (betra að setja ekki í
matvinnsluvél því þá getur hún orð-
ið eins og lím). Stappið vel en það
er allt í lagi að hún sé smá gróf.
7. Bætið þá beikonsveppunum,
ferska tímjaninu, parmesanost-
inum og pipar út í og hrærið sam-
an. (athugið að taka laufin af timj-
aninu af greinunum og að magn er
eftir smekk)
8. Smakkið og saltið og piprið
meira ef þarf.
9. Fullkomið með reyktu kjöti og
sinnepssósunni góðu.
Meðlæti
Rjómalöguð
hvítlauks- og
parmesan-
kartöflumús
með beikoni,
sveppum og
timjan
ferskt salat
basil
klementínur
grænt epli
heslihnetur
mozzarella-perlur
trönuber (ekki þurrkuð)
Salat og basil þvegið og þurrkað, skorið eða rifið niður, eplin
skorin, klementínurnar afhýddar, heslihneturnar ristaðar, vökv-
anum hellt af mozzarella-perlunum og síðan öllum hráefnum
blandað saman. Vinaigrettunni blandað saman og notið.
Blóðbergsvinaigrette
1 skalottlaukur
4 msk. sítrónuolía
2 tsk. blóðbergssíróp
¼ appelsína – börkur og safi
svartur pipar
Skalottlaukurinn skorinn mjög smátt, appelsínubörkur
skrapaður og safinn kreistur úr appelsínunni síðan er
olíunni og sírópinu blandað saman og smakkað til með
svörtum pipar.
Jólasalat með blóðbergsvinaigrettu
Ljósmynd/María Gomez