Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2019, Blaðsíða 4
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.12. 2019
Falla nú öll vötn til Lifrarpolls
Liverpool hefur verið á ofboðs-legri siglingu í ensku úrvals-deildinni í knattspyrnu á
þessu almanaksári og aðeins lotið
einu sinni í gras, á útivelli gegn Man-
chester City 3. janúar. Síðan hefur
liðið ekki tapað í 32 leikjum sem er
þriðji besti árangurinn í sögu úrvals-
deildarinnar. Af þessum leikjum hef-
ur Rauði herinn unnið 27 leiki.
Haldi fram sem horfir verður
næsta varða á vegferð Liverpool að
skáka Chelsea sem lék 40 leiki án
taps í úrvalsdeildinni frá 16. október
2004 til 6. nóvember 2005 undir
stjórn nýs og fersks knattspyrnu-
stjóra, Josés Mourinhos að nafni.
Það var Manchester United sem
hafði þá blástakka loks undir.
Með Chelsea léku á þessum tíma
kappar á borð við Petr Cech, Claude
Makélélé, Frank Lampard, John
Terry, Didier Drogba og Eið Smára
Guðjohnsen og vann liðið deildina
bæði þessi tímabil sem sigurhrinan
teygði sig yfir.
Orrustan við hlaðborðið
Enn er býsna langt í metið sem Ars-
enal á en Skytturnar biðu ekki ósig-
ur í úrvalsdeildinni í 49 leikjum, frá
7. maí 2003 til 24. október 2004 undir
stjórn Arsènes Wengers. Aftur var
það Manchester United sem stöðv-
aði sigurgönguna í víðfrægum leik
sem kallaður hefur verið „orrustan
við hlaðborðið“, en einu sinni sem
oftar þegar þessi lið mættust á þess-
um árum sauð upp úr og í átökum
sem brutust út í undirheimum Old
Trafford eftir leik fékk sir Alex
Ferguson, knattspyrnustjóri Unit-
ed, flatbökusneið í höfuðið með þeim
afleiðingum að hann þurfti að hafa
fataskipti fyrir fund með blaða-
mönnum. Lengi var á huldu hver
fleygði sneiðinni en Spánverjinn
Cesc Fàbregas, sem var á meðal
varamanna Arsenal þennan dag,
gekkst við glæpnum í sjónvarps-
viðtali árið 2017 – þrettán árum síð-
ar. Hann hefur þá líklega metið það
svo að brotið væri fyrnt, auk þess
sem hann var aðeins sautján ára á
þessum tíma og ósakhæfur.
Af öðrum leikmönnum í þessu
fræga liði Arsenal má nefna kempur
á borð við Thierry Henry, Patrick
Vieira, Dennis Bergkamp, Robert
Pires og Sol Campbell. Að ekki sé
talað um íhlaupastjóra liðsins í dag,
Fredrik Ljungberg.
Hvort flatbökur munu fljúga þeg-
ar Liverpool liggur loksins í valnum
skal ósagt látið en hitt er ljóst að
lærisveinar Jürgens Klopps eru lík-
legir til að gera atlögu að metinu. Til
þess þurfa þeir að vinna eða gera
jafntefli í átján leikjum í viðbót sem
myndi þá skila þeim langleiðina að
öðru meti, sem Arsenal á líka; það er
að fara án taps gegnum heilt keppn-
istímabil í úrvalsdeildinni. Í enskri
sparksögu deilir Arsenal því meti
raunar með Preston North End,
sem tapaði ekki leik fyrsta veturinn
sem lið reyndu með sér á Englandi,
1888-89. Þá voru leikirnir að vísu
ekki nema 24 en 38 þegar Arsenal
jafnaði metið, eins og nú.
Á siglingu sinni á árinu hefur Liv-
erpool skilið bæði Manchester-
stórveldin eftir en besti árangur
United í úrvalsdeildinni eru 29 leikir
án taps en það tókst lærisveinum sir
Alex í tvígang; fyrst frá 26. desem-
ber 1998 til 25. september 1999 og
aftur frá 11. apríl 2010 til 5. febrúar
2011. City á best 30 leiki án taps, frá
8. apríl 2017 til 2. janúar 2018 undir
stjórn Peps Guardiola. Margir
sparkskýrendur höfðu spáð því að
það lið, sem um vorið varð meistari,
myndi fara taplaust gegnum mótið
en Liverpool var á öðru máli; lagði
þá borgunga 4:3 í mergjuðum knatt-
spyrnuleik á Anfield. Það var 22.
leikurinn á því tímabili.
Á bekk með þeim bestu
Af þessum upplýsingum má ráða að
Jürgen Klopp hefur skipað sér á
bekk með bestu sparkstjórum í sögu
úrvalsdeildarinnar – og þarf þær
raunar ekki til. Hvað sigurgöngur
varðar hefur hann þegar skotið sir
Alex og Pep Guardiola aftur fyrir
sig; andar niður í hálsmálið á José
Mourinho (sjáið þið ekki þann gjörn-
ing skyndilega fyrir ykkur í eigin-
legri merkingu) og sér í skottið á
Arsène Wenger við sjóndeildar-
hringinn.
Eitt á sá þýski þó eftir að gera
sem sörinn gerði þrettán sinnum,
Wenger og Mourinho þrisvar og Pep
í tvígang – að vinna ensku úrvals-
deildina. Flestir sparkskýrendur,
áhugamenn um knattspyrnu og jafn-
vel þeir sem þekkja ekki knött frá
graskeri eru sammála um að þess
verði ekki langt að bíða; árið 2020
verði ár Liverpool. Og þurfi menn
rökstuðning nægir að nefna að aldr-
ei hefur lið hleypt á slíkt sigurskeið,
29 leiki eða meira, án þess að verða
meistari. Þarf frekari vitna við?
Eftir höfðinu dansa lim-
irnir. Jordan Henderson
tekur við leiðbeiningum
frá Jürgen Klopp.
AFP
Liverpool er taplaust í
32 leikjum í röð í ensku
úrvalsdeildinni sem er
þriðji besti árangur sög-
unnar. Aðeins móróttir
Chelsea-liðar og hið
ósigrandi lið Arsenal
um miðjan síðasta ára-
tug hafa gert betur.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Liverpool hefur unnið fjórtán af
fyrstu fimmtán leikjum sínum á
yfirstandandi leiktíð; einu töp-
uðu stigin komu í útileik gegn
Manchester United í níundu
umferð. Mörg merk lið úr
seinni tíma sparksögu eru til
umfjöllunar hér á síðunni en
eigi að síður þarf að fara tæp
sextíu ár aftur í tímann til að
finna liðið sem unnið hefur
flesta leiki frá upphafi tímabils í
efstu deild í Englandi. Það er
Tottenham Hotspur, sem vann
ellefu fyrstu leiki sína veturinn
1960-61.
Tottenham varð Englands-
meistari um vorið með nokkr-
um yfirburðum; átti að lokum
átta stig á Sheffield Wednesday.
Úlfarnir urðu þriðju. Liverpool
var á hinn bóginn í basli þennan
vetur; hafnaði í þriðja sæti 2.
deildar og komst ekki upp en
aðeins tvö lið höfðu deildaskipti
á þessum árum.
Tottenham lét raunar ekki
þar við sitja, heldur leysti einnig
til sín bikarinn og varð þar með
fyrsta liðið á tuttugustu öldinni
til að vinna tvennuna.
Bill Nicholson stjórnaði Tott-
enham þennan sögulega vetur
og meðal leikmanna voru Dave
Mackay, John White og Maurice
Norman, fyrir þá sem muna
svona langt aftur.
Þetta var annar deildarmeist-
aratitill Tottenham, sá fyrsti
kom tíu árum áður. Og raunar
sá seinasti líka; það verða
sumsé 59 ár í vor frá því að
Tottenham Hotspur varð ensk-
ur meistari seinast. Og svo þyk-
ir stuðningsmönnum Liverpool
þeir hafa beðið lengi!
Og svo Tottenham
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar