Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2019, Blaðsíða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.12. 2019 Ímyndaðu þér vinnustað. Ekkert sér-staklega stóran, en samt soltið merki-legan, því allir eru meira eða minna í sama starfinu. Fólk skiptist þó í deildir og svo vinna sumar deildirnar meira saman en aðrar. Vaktirnar eru breytilegar, maturinn greinilega ágætur og svo þarftu að sækja um að fá að halda vinnunni á fjögurra ára fresti. Stundum oftar. Enginn yfirmaður, enginn er rekinn og allir tala á fundum eins mikið og þeir vilja. Og yfirleitt miklu meira en aðrir vilja. Fyrirtækið sjálft er algjört aukaatriði. Þú, starfsmaðurinn, og fólkið í þinni deild er augljóslega það eina sem veit hvernig á að reka þetta fyrirtæki. Eigendur fyrir- tækisins eru löngu hættir að nenna að fylgjast með hvernig því gengur, þótt það sé endalaust í fréttum. Velkomin í pólitík Síðustu vikur hafa verið erfiðar á vinnu- staðnum. Ein deild er svo aðframkomin af spillingu að það er ekki hægt að vinna með henni, önnur er skítadreifari og drullusokk- ur, einn hópur er stanslaust að hlaða undir sig og sína og allt á þetta fólk það sameig- inlegt að kunna ekki að stjórna. Við hátíðleg tækifæri stígur svo þetta sama fólk fram og talar um samvinnu. Hversu mikilvægt það sé að opna stjórn- málin og vinna saman að niðurstöðu. Sem verður að teljast nokkuð merkilegt því svo virðist sem fólk úr hinu liðinu fái bara aldr- ei góða hugmynd. Jafnvel þegar mál, sem einhver pólitíkus hefur barist fyrir af öllu hjarta, eru sam- þykkt, þá er það einhverjum öðrum að þakka. Það virðist aldrei geta komið upp sú staða að hægt sé að hrósa pólitískum and- stæðingi sínum. Í besta falli hafi þeir bara rambað á gamla hugmynd en örugglega samþykkt hana á röngum forsendum og með eitthvað illt í huga. Ágætt dæmi kom upp í viðtali um daginn þegar þingmaður gat ómögulega svarað því hver væri skemmtilegasti þingmaðurinn en átti ekki í nokkrum vandræðum með að segja hver væri sá leiðinlegasti. Ég myndi halda að á venjulegum vinnustað væri þetta öfugt. Hver leggur sig fram um að koma því á framfæri hver sé leiðinlegasti starfs- maðurinn? Er ég sá eini sem sé fyrir mér vandræðalega stöðu í mötuneytinu? Sjáið bara fyrir ykkur fólk sem vinnur saman. Fólk í einni deildinni er ekki bara sannfært um að það hafi öll réttu svörin, heldur líka að fólkið í hinni deildinni sé ekki bara óhæft, heldur líka í þessum rekstri á röngum forsendum. Það hafi það hreinlega að markmiði að skemma. Þetta fólk sem er í sama starfi og þú. Í besta falli getur það annað slagið gerst að einn úr hinni deildinni er ekki alveg jafn mikið ógeð og restin af liðinu. Lengra nær það sjaldnast. Þetta er akkúrat fólkið sem við höfum valið okkur til að marka stefnu um hluti eins og samvinnu, samstarf og hvernig eigi að koma í veg fyrir einelti. Hvernig við eig- um að ala upp börnin okkar, hvaða gildi við eigum að standa fyrir sem samfélag og allt hitt. Næst þegar þið finnið ykkur knúin til að tala um mikilvægi samvinnu, opinna stjórn- mála og sameiginlegrar niðurstöðu. Verið frammi. ’Það virðist aldrei geta komið upp sú staða aðhægt sé að hrósa pólitískum andstæðingisínum. Í besta falli hafi þeir bara rambað ágamla hugmynd en örugglega samþykkt hana á röngum forsendum og með eitthvað illt í huga. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Að vita allt best Elsku Friðrik Ómar minn. Það er svo sann- arlega hægt að segja að þú hafir breytt okk- ur Íslendingum og gefið okkur kraft og gleði með öllu því sem þú hefur áorkað á þinni af- skaplega stuttu ævi. Það er svo merkilegt við afmæl- isdaginn þinn að ég man að ég var skotin í svo yndislegum manni fyrir hundrað árum sem átti sama af- mælisdag og þú og í afmælisdagabók- inni góðu stóð að hann væri dem- antur í mannsorp- inu. Lífstalan þín er sex sem þýðir að þú ert sú persóna sem þarf ekki að hafa fyrir því að eignast vini því fólk hefur dregist að þér frá unga aldri og tengst þér lífs- böndum. Þessi orka sprettur að stærstum hluta af fjölskyldunni, hvort sem þú velur þér fólk inn í hana eða um er að ræða þessa skemmtilegu fjöl- skyldu sem þú fæddist inn í. Þú ert með mikið keppnisskap og verður bara fúll ef þú nærð ekki þeim árangri sem þú setur þér og rúmlega það. Þú hefur oft dottið á rassinn en staðið upp jafnharðan og haldið áfram sem ætti að vera skila- boð til okkar allra að fallið skiptir ekki máli heldur upprisan. Hvert ár virðist færa þig nær frelsinu og láta þér líða betur og gera þig svo dásamlega ánægðan í eigin skinni. Þú ert að fara inn í tímabil með söng, að sjálfsögðu, og ýmiss konar öðrum gjörningi, eins og til dæmis sjónvarpsþáttum, uppistandi og fyr- irlestrum. Árstalan þín er átta og er hún tákn eilífðarinnar og mikils hraða sem þú átt eftir að skemmta þér dásamlega í. Tækifærin sem þú færð verða eins og íslenski vindurinn; þau koma og fara snögglega. Þú þarft að vera fljótur að taka ákvarðanir, sem er þín sér listgrein, og segja já við hinu óvænta og ómögulega. Þú staldrar við næsta haust í kringum afmæl- isdaginn þinn því þá ferðu inn í tólf mánaða tímabil þar sem þú hreins- ar allt út sem þú vilt losa þig við, svona eins og maður tekur geymsl- una og hendir úr henni og innréttar hana upp á nýtt. Það er alltaf eitt- hvað hægt að gera, það veistu. Árið 2021 eru svo spennandi hlutir að sigla í kringum þig. Þeir eru upp- hafið af fersku tímabili sem telur átta ár. Ástin verður alveg ljómandi góð á þessu tímabili en vandaðu þig vel því að þú ert tryggur og trúr og vilt tjalda lengur en til einnar nætur. Þú átt alltaf eftir að eiga heima á landinu okkar góða. En samt munt þú eiga annan samastað í öðru landi sem gæti verið Kanada, eða land líkt því. Stjörnumerki Friðriks er Vog. Morgunblaðið/Hari FRIÐRIK ÓMAR HJÖRLEIFSSON 4.10. 1981 Ánægður í eigin skinni ’Tækifærin sem þúfærð verða eins ogíslenski vindurinn; þaukoma og fara snögglega. Þú þarft að vera fljótur að taka ákvarðanir, sem er þín sér listgrein, og segja já við hinu óvænta og ómögulega. TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum alnabaer.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.