Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2019, Qupperneq 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2019, Qupperneq 10
KVIKMYNDIR 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.12. 2019 Laugarás- skjálftinn mikli Morðsaga og allt um kynlíf Af öðrum myndum sem þá voru í bíó hér í fá- sinninu má nefna Morðsögu Reynis Oddssonar með Guðrúnu Ásmundsdóttur og Steindóri Hjörleifssyni, fjölskyldumyndina Benji, Í klóm drekans með sjálfum Bruce Lee og Allt sem þú vildir alltaf vita um kynlífið (en hefur ekki þorað að spyrja) eftir Woody Allen. Sú síðastnefnda var raunar orðin fimm ára gömul sem segir okk- ur að Midway hafi alls ekki verið svo lengi að skila sér á tjaldið hér heima, á þeirra tíma mæli- kvarða. Nema þá að Allen-myndin hafi staðið svona lengi í Kvikmyndaeftirlitinu? 7. apríl 1977 birtist umsögn um Midway í Morgunblaðinu eftir Sigurð Sverri Pálsson. Þar segir meðal annars: „Í seinni heimsstyrjöldinni hafði orrustan um Midway svipaða þýðingu og orrustan um Bretland; í báðum tilfellum var um að ræða stöðvun á framsókn óvinarins í fyrsta sinn og bæði atvikin juku mjög á þjóðarstolt við- komandi þjóða, Breta og Bandaríkjamanna. Kvikmyndin, 130 mín. löng, sem hér hefur verið gerð um þennan atburð, er þó tæpast til að vekja þjóðarstolt. Sennilega hafa höfundarnir ætlað sér að gera kvikmynd, sem lýsti nákvæm- lega og réttilega öllu því helsta, sem snerti þessa orrustu. Það er hins vegar alltaf mats- atriði í svona tilvikum, hvað eru aðalatriði og hvað aukaatriði, en svo virðist, sem of mörgum smáatriðum sé blandað inn í frásögnina til þess að hún geti orðið heilsteypt. Midway er fyrst og fremst stríðsmynd, sem leggur áherslu á að sýna, hvernig ákveðinn, frægur atburður á sér stað út frá hernaðarlegu sjónarmiði. Þess vegna eru t.d. atriðin sem lýsa sambandi japönsku stúlkunnar við son Matt Garth (C. Heston) al- veg út í hött þar sem þau gera tvennt í senn, að dreifa athyglinni frá meginviðfangsefninu, án þörfum stríðsmynda og krafðist þess að viðbót- arhátölurum væri komið fyrir í bíósalnum. Tæknin varð ekki langlíf, aðeins fjórar myndir voru gerðar Earthquake (1974), Rollercoaster (1977), og Battlestar Galactica (1978), auk Midway. Í ársbyrjun 1977 birtist í Morgunblaðinu listi vikuritsins Variety yfir vinsælustu bíómynd- irnar vestan hafs árið 1976 og var Midway þar í sjötta sæti og losuðu brúttótekjurnar 20 millj- ónir bandaríkjadala. Langvinsælasta myndin það árið var One Flew Over the Cuckoo’s Nest sem þénaði yfir 56 milljónir dala. Fyrir ofan Midway voru ekki ómerkari myndir en All the President’s Men, Omen og Silent Movie. Midway hlaut ekki náð fyrir augum Ósk- arsakademíunnar; fékk enga einustu tilnefn- ingu. Midway skolaði ekki upp á Íslandsstrendur fyrr en í apríl 1977 og var kynningartexti Laug- arársbíós á bíósíðu Morgunblaðsins eftirfar- andi: „Ný bandarísk stórmynd um mestu sjó- orrustu sögunnar, orrustan um valdajafnvægi á Kyrrahafi í síðustu heimsstyrjöld. Ísl. texti.“ Midway var greinilega beðið með nokkurri eftirvæntingu hér á landi en í júní 1975 birtist frétt þess efnis í hinum vinsæla dálki „Fólk í fréttum“ í Morgunblaðinu að til stæði að Holly- wood-stjörnurnar Henry Fonda, Robert Mitch- um og Charlton Heston yrðu í myndinni. Í sept- ember sama ár birtist svo ljósmynd af Fonda og Glenn Ford í sama dálki í hlutverkum aðmír- álanna Spruance og Nimitz. Menn splæstu að vísu bara einu n-i á Glenn karlinn en hann var auðþekktur á myndinni. Þá gat Sæbjörn heitinn Valdimarsson, sem skrifaði af listfengi um kvikmyndir í Morg- unblaðið áratugum saman, um myndina á Kvik- myndasíðu Morgunblaðsins í október 1975. „Í myndinni Midway á garpurinn Charlton Heston næstum aleinn í höggi við obbann af hinum jap- anska flota síðari heimsstyrjaldarinnar. Þó að Heston sé til alls vís, þá ku víst koma honum til einhverrar hjálpar þeir garparnir Robert Mitchum, Henry Fonda og Glenn Ford, menn fullharðnaðir úr fjölda stríðsmynda,“ skrifaði Sæbjörn. Myndin var að sönnu stjörnum prýdd en af öðrum leikurum má nefna Toshiro Mifune, sem þekktur var úr myndum Akira Kurosawa, Hal Holbrook, Robert Wagner, Cliff Robertson, Pat Morita, sem síðar sló í gegn í The Karate Kid, Tom Selleck og Steve Kanaly, betur þekktur sem Ray Krebbs úr Dallas. Bæta þurfti við hátölurum Midway var frumsýnd í Bandaríkjunum í júní 1976 og var Sæbjörn að sjálfsögðu með puttann á púlsinum á Kvikmyndasíðunni þá um sumarið. Greindi frá frumsýningu myndarinnar og að hún skartaði spánnýrri hljóðtækni sem kölluð var Sensurround. Sensurround þótti falla vel að S prengjur sprungu, flugvélar hröp- uðu, menn stráféllu og kvikmynda- húsið skalf og nötraði fyrir atbeina glænýrrar hljóðtækni. Bandaríska bíómyndin Midway, eða Orrustan um Midway, eins og hún kallaðist hér um slóðir, eftir Jack Smight var í raun og sann mikið sjón- arspil á sinni tíð og var engu til sparað við gerð hennar. Enda streymdu bíóþyrstir Íslendingar í Laugarásbíó sem hýsti herlegheitin vorið 1977. „Þetta er bíó,“ sögðu menn. „Alvöru bíó.“ Kvikmyndagerð var í deiglunni á þessum tíma enda aukinn sláttur á sjónvarpinu og sam- keppnin um áhorfendur að harðna. Það kom skýrt fram í vangaveltum í Kvikmyndadálki Vísis í ársbyrjun 1977. „Í Bandaríkjunum sem og reyndar víðar óttast kvikmyndagerðarmenn æ meir hina hörðu samkeppni kvikmyndarinnar við sjónvarpið og raddir heyrast jafnvel um það að kvikmyndin sé að verða úreltur tjáning- armiðill. Til þess að sporna við þessari þróun leitast kvikmyndagerðarmennirnir við að koma inn á ný svið, sem vekja áhuga almennings á kvikmyndinni. Kvikmyndirnar verða því gjarn- an stórbrotnari heldur en sjónvarpsefnið og gengið er lengra í ýmsum efnum heldur en sjón- varpið gerir enn, a.m.k. enn sem komið er.“ Markaði tímamót Það var því engin tilviljun að Orrustan um Midway var tilkomumikil og stórskorin kvik- mynd. Enda kallaði tilefnið auðvitað á slíka meðhöndlun. Undir var sagan af bardaganum um Midway, í endursögn herforingjanna og sjó- mannanna, sem tóku þátt í bardaganum. Þar börðust bandaríski herinn og sá japanski, en bardaginn markaði tímamót í baráttunni á Kyrrahafinu í seinni heimsstyrjöldinni. Hollywood-stjörnurnar Glenn Ford, Henry Fonda og Robert Mitchum voru í lykilhlut- verkum í fyrri myndinni 1976. ’Í myndinni Midway á garp-urinn Charlton Heston næst-um aleinn í höggi við obbann afhinum japanska flota síðari heims- styrjaldarinnar. Þó að Heston sé til alls vís, þá ku víst koma honum til einhverrar hjálpar þeir garparnir Robert Mitchum, Henry Fonda og Glenn Ford, menn fullharðnaðir úr fjölda stríðsmynda. 42 árum eftir að Orrustan um Midway var fyrst sýnd í Laugarásbíói er komin ný mynd um sama efni og sem fyrr leikur húsið á reiðiskjálfi. Þá sem nú nýtur myndin mikillar lýðhylli og fólk streymir á hana en viðbrögð gagnrýnanda eru heldur hófstilltari. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.