Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2019, Page 19
Fjölmennt var á undir hátíðarljósum á Rauða torginu í Moskvu fyrir viku. Í bak-
grunni gnæfir Spasskaja-turn yfir Kreml.
AFP
Bílum ekið undir jólaljósum, sem virð-
ast svífa yfir götunni, í Barselóna á Spáni.
AFP
Jólasveinn gefur litlum dreng gjöf á götuhátíð í verslunarhverfi í Seúl í Suður-
Kóreu í vikunni. Mikið er gert úr jólunum þar í landi.
AFP
Skreytingar eru komnar upp í Noregi. Hér gengur fólk á götu í Maihaugen í
Lillehammer jólalegt til fara í hvítum snjó.
AFP
8.12. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Laugardag kl. 12-18 og sunnudag kl. 13-17
Við Guðný Hafsteins og Halla Ásgeirs opnum dyrnar
og bjóðum alla velkomna á Snú snú, nýju vinnustofuna
okkar í Kænuvogi.
Með okkur verður GITTA,Birgitta Sveinbjörnsdóttir
skartgripahönnuður með fallega skartið sitt.
Mikið úrval af fallegum jólagjöfum handa fagurkerum.
Jólatónlist, kaffi, léttar veitingar og góð stemning. Við
hlökkum til að sjá ykkur!
Guðný,Halla og Birgitta.
Opið hús
fyrir fagurkera
í jólagjafaleit
Snú snú — Kænuvogi 32
AFP
Jólaljósadýrð í Larios-götu í
Malaga á Spáni.