Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2019, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.12. 2019
LESBÓK
Sir Ben Kingsley á langan
og litríkan feril að baki
sem leikari. Hann fæddist í
Bretlandi á gamlársdag
1943 og er af ensku og ind-
versku foreldri; hét raunar
upphaflega Krishna Pandit
Bhanji. Þess má geta að
tvö af fjórum börnum
hans bera eftirnafnið
Bhanji.
Sir Ben hóf feril sinn
sem sviðsleikari í Bretlandi en hlaut heimsfrægð fyrir túlkun sína á
Mahatma Gandhi í kvikmynd Richards Attenboroughs frá árinu
1982 en það var aðeins annað hlutverk hans á hvíta tjaldinu. Ekki
nóg með að hann væri sláandi líkur fyrirmyndinni í útliti, heldur fór
Sir Ben á kostum í hlutverkinu og fékk að launum Óskars-
verðlaunin, auk fjölda annarra verðlauna.
Af öðrum myndum sem Sir Ben hefur leikið í má nefna Schind-
ler’s List (1993), Twelfth Night (1996), Sexy Beast (2000) og House
of Sand and Fog (2003). Þá á hann að baki allmörg hlutverk í sjón-
varpi frá árinu 1966.
Af indverskum uppruna
Kingsley var sleginn
til riddara árið 2002.
KYNSLÓÐABIL Margir hneyksluðust á dögunum þegar
í ljós kom að bandaríska söngkonan Billie Eilish, sem not-
ið hefur fádæma vinsælda undanfarin misseri, hafði aldr-
ei heyrt á rokkbandið Van Halen minnst. „Nú fer ég að
gráta,“ sagði spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel við
Eilish sem verður átján ára síðar í mánuðinum og rokk-
tröll fóru hamförum í netheimum í kjölfarið. Wolfgang
Van Halen, bassaleikari Van Halen, kom Eilish á hinn
bóginn til varnar. „Hafirðu ekki heyrt um Billie Eilish,
tékkaðu þá á henni, hún er svöl,“ tísti hann. „Hafirðu
ekki heyrt um Van Halen, tékkaðu þá á þeim, þeir eru
líka svalir. Tónlist á að sameina en ekki sundra okk-
ur. Hlustið á það sem þið kunnið að meta en hellið
ykkur ekki yfir aðra fyrir að þekkja það ekki.“
Ekki með Van á heilanum
SJÓNVARP Breska ríkissjónvarpið frum-
sýnir í lok mánaðarins nýja sjónvarpsþætti í
sex hlutum, Réttarhaldið yfir Christine Kee-
ler. Svo sem nafnið gefur til kynna þá fjalla
þættirnir um sýningarstúlkuna Christine
Keeler sem hristi duglega upp í bresku sam-
félagi snemma á sjöunda áratugnum þegar
hún hélt á sama tíma við ráðherrann John
Profumo og sovéskan erindreka. Málið komst
upp og varð ekki aðeins til þess að Profumo
sagði af sér, heldur reið einnig ríkisstjórn
Harolds Macmillans að fullu. Íslenskar sjón-
varpsstöðvar hljóta að berjast um
sýningarréttinn á þáttunum.
Stúlkan sem felldi heila ríkisstjórn
Sophie Cookson í hlutverki Christine Keeler.
BBC
Anna Paquin þurfti að læra fáar línur.
Þögnin partur
af persónunni
ÞÖGLI Nýjasta kvikmynd Martins
Scorseses, Írinn, hefur fengið á sig
gagnrýni fyrir þær sakir að kven-
kyns persónum sé ekki gert nægi-
lega hátt undir höfði. Þannig hefur
verið bent á, að Anna Paquin, sem
leikur dóttur persónu Roberts De
Niros í myndinni, láti sér aðeins sex
orð um munn fara á þeim tíu mín-
útum sem hún er á tjaldinu. De Niro
varði þetta á dögunum í samtali við
dagblaðið USA Today með þeim
rökum að þögnin væri hluti af per-
sónusköpuninni. „Hún var mjög
kraftmikil og þannig er þetta.
Mögulega hefðu þau Frank [Sheer-
an] getað haft meiri samskipti í öðr-
um senum en svona var farið að
þessu. Hún er frábær og það skín í
gegn,“ sagði De Niro.
Svo sem við þekkjum getur þaðhaft ófyrirséðar afleiðingarþegar tveir ókunnugir menn
taka tal saman á ölknæpu. Í einmitt
þetta stefnir í nýjum bandarískum
spennuþáttum sem Sjónvarp Sím-
ans hóf sýningar á um liðna helgi,
Perpetual Grace, LTD.
James er bragðarefur sem þykist
hafa himin höndum tekið þegar
hann hittir Paul Allen Brown á
knæpu í fásinninu í Half Acre,
Nýju-Mexíkó. Brown er með áform
á prjónunum og gerist James aðili
að þeim bíður hans helmingurinn af
fjórum milljónum bandaríkjadala.
Allt sem hann þarf að gera er að
vingast við foreldra Browns, roskin
presthjón í plássinu, og sjá til þess
að þau hverfi um stundarsakir af yf-
irborði jarðar meðan sonurinn
hreinsar arfinn út af reikningum
þeirra en sjóðir hjónanna eru, að
sögn sonarins, verulega digrir.
Kalla sig Ma og Pa
James slær til og taka gömlu hjónin
honum vel, þar sem þau finna hann
liggjandi í vegarkantinum eftir að
ástkonan henti honum út og hafnaði
honum. Sem að sjálfsögðu er hauga-
lygi, eins og sitthvað annað í þessari
sögu, að því er virðist. Nógu eru
gömlu hjónin meinleysisleg, kalla
sig meira að segja einfaldlega Ma
og Pa, og James þykir einsýnt að
Illt er að ginna
gamlan ref
Allt stefnir í að sýrustigið verði býsna hátt í
nýjum spennuþáttum í Sjónvarpi Símans,
Perpetual Grace, LTD, þar sem enginn annar en
meistari Ben Kingsley er meðal aðalleikenda.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Kumpánarnir Paul Allen Brown og James skála fyrir auðsóttu fé. Eða þannig.
Epix
Skólar & námskeið
fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 3. janúar 2020
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA
fyrir föstudaginn 20. desember.
SÉRBLAÐ
Í blaðinu verður fjallað um
þá fjölbreyttu flóru sem í boði
er fyrir þá sem stefna á
frekara nám.
–– Meira fyrir lesendur
AFP
Nýstirnið
vinsæla Bil-
lie Eilish.