Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2019, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 2019
Jafn hiti gefur betri svefn. Temprakon var þróað til að halda
jöfnum 37ºC hita á milli líkama og sængur alla nóttina. Það
gefur þér rólegri
og dýpri svefn.
Betri rakastýring.
Temprakon Advance
tæknin og FRESH
áklæðið viðhalda
jöfnu hitastigi og stýra
rakajafnvægi milli líkama og sængur. Dregur úr nætursvita.
Fjarlægir raka og tryggir hámarks svefngæði
VERÖLD HVÍLDAR – BETRA BAK LEGGUR GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI
DÚNMJÚK JÓLATILBOÐ
G JAF I R F YR IR ÞÁ
SEM ÞÉR ÞYK IR VÆNST UM
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
TEMPRAKON
ADVANCE SÆNG
Stærð: 135 x 200 cm. Einnig fáanleg
135 x 220 cm og 200 x 220 cm.
Fylling: 90% hvítur gæsadúnn.
Þyngd: 600 g.
TEMPRAKON
ADVANCE KODDI
Stærð: 50 x 70 cm. Fylling: 90% hvítur gæsadúnn.
33.675 kr. JÓLAVERÐ
20.175 kr. JÓLAVERÐ
®
Fullt verð: 44.900 kr.
Fullt verð: 26.900 kr.
Of kalt
Of heitt
Venjuleg dúnsæng
Við Íslendingar fáum fyrst allra að berja Brot augum en fljótlega á nýju
ári mun efnisveitan Netflix bjóða upp á þáttaröðina um heim allan.
Þættirnir eru átta talsins, annar þáttur verður á dagskrá strax á nýárs-
dag en eftir það verður þáttaröðin svo á dagskrá á sunnudagskvöldum.
Brot fjallar um rannsóknarlögreglukonuna Katrínu Gunnarsdóttur
sem er falið að rannsaka óvenjulegt morð við Reykjavíkurhöfn. Morðið
reynist upphafið að óhugnanlegu og flóknu sakamáli og lögreglan
ákveður að sækja hjálp út fyrir landsteinana. Arnar Böðvarsson, mikils-
virtur lögreglumaður með dularfulla fortíð, kemur til landsins eftir ára-
tuga fjarveru og í sameiningu reyna Katrín og Arnar að stöðva morð-
ingjann áður en hann lætur til skarar skríða á ný. Eftir því sem þau
sogast dýpra inn í rannsókn málsins koma þeirra eigin innri djöflar
fram. Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Thors eru í aðalhlutverkum.
Þórður Pálsson á hugmyndina að þáttunum og er jafnframt einn af leik-
stjórum þeirra ásamt þeim Davíð Óskari Ólafssyni og Þóru Hilm-
arsdóttur.
Nína Dögg Filippusdóttir
í hlutverki sínu í Broti.
Óvenjulegt morð við höfnina
Björn Thors leikur annað aðalhlutverkið.
Morgunblaðið/Kristinn
Ný íslensk spennuþáttaröð, Brot, hefur
göngu sína á RÚV annan í jólum.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um framtíð Reykjavíkurflug-
vallar að undanförnu. Sú um-
ræða er ekki ný af nálinni og í
byrjun jólamánaðar 1959 var
málið til dæmis einnig í deigl-
unni. Morgunblaðið átti þá ít-
arlegt samtal við Agnar Kofoed
Hansen flugmálastjóra, þar sem
fram kom að ljóst hefði verið,
þegar farið var að ræða um að
leggja Reykjavíkurflugvöll niður,
að Álftanesið kæmi einna helst
til greina varðandi byggingu nýs
flugvallar. Samkvæmt rann-
sóknum fróðra manna væri
heppilegast að leggja þennan
völl sunnan Lambhúsatjarnar og
vestan Hafnarfjarðarvegar, en
þaðan er um 8 km vegalengd til
Reykjavíkur og 3 km til Hafn-
arfjarðar. Aðflugsskilyrði eru
þar ágæt og aðstæður sömuleið-
is að því er sagði í álitsgerð Ólafs
Pálssonar, verkfræðings emb-
ættisins.
Í samtalinu við Agnar kom
fram að kostnaðaráætlun hefði
verið gerð um þriggja brauta
flugvöll. Lengsta brautin var
áætluð 2.150 metrar, allar
brautir 60 metra breiðar en 75
metra breitt öryggisbelti með-
fram þeim beggja vegna. Áætlað
var að verkið kostaði 204 millj-
ónir króna, ef um malbikaðar
brautir yrði að ræða, 215 millj-
ónir ef þær yrðu steinsteyptar.
GAMLA FRÉTTIN
Flugvöllur
á Álftanesi
Uppdráttur af Álftanesi og flugvellinum, sem gerð var um kostnaðaráætlun.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Björn Hlynur Haraldsson
leikari
Ólafur Már Sigurðsson
kylfingur
Bjarnólfur Lárusson
fv. knattspyrnuþjálfari