Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.12.2019, Síða 32
SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2019
SLÖKUN OG VELLÍÐAN
UNDRI HEILSUINNISKÓR
7.900 kr.
RAUÐIR | BLÁIR | BLEIKIR | LJÓSIR | GRÁIR
BETRA BAK LEGGUR GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI
VERÖLD HVÍLDAR
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
HUGO BOSS RÚMFÖT
50% bómull og 50% einstaklega mjúkar náttúru-
legar trefjar. Litir: Blátt, ljós- og dökkgrátt.
17.175 kr.
Fullt verð: 22.900 kr.
Sængurver
6.675 kr.
Fullt verð: 8.900 kr.
Koddaver
JÓLAVERÐ
BAÐSLOPPAR Verð frá: 16.900 kr.
Verð á sloppum á myndum: 29.900 kr.
Líður að tíðum er yfirskrift tónleika tónlistarhópsins
Cauda Collective í Fríkirkjunni og lofar hópurinn jólaró
og notalegri stemningu á Þorláksmessukvöld. Flytjendur
eru Sigrún Harðardóttir á fiðlu, Þóra Margrét Sveins-
dóttir á víólu og Þórdís Gerður Jónsdóttir á selló.
Flutt verða brot úr tíðasöngvum Þorláks helga frá alda-
mótunum 1300 í nýjum útsetningum Cauda Collective,
brot úr Goldberg tilbrigðum J.S. Bachs í útsetningu fyrir
strengjatríó, Intermezzo eftir Zoltan Kodaly og Pavane
eftir Gabriel Fauré. Þá verða einnig leikin íslensk þjóðlög
og jólasöngvar.
„Ég hlakka mikið til að spila á þessum tónleikum, þarna
er á ferðinni gullfalleg tónlist sem er skemmtileg and-
stæða við þessi hefðbundnu jólalög sem hljóma út um allt í
desember, þetta verður ákveðin núllstilling fyrir mig og ég
vona að tónleikagestir geti fundið hið sama, leitað inn á við
og fundið góða tilfinningu,“ segir Sigrún Harðardóttir,
fiðluleikari og annar stofnmeðlima Cauda Collective.
Cauda Collective er tónlistarhópur sem hefur það að
markmiði að blanda saman sígildri kammertónlist við nýja
tónlist og flétta saman við önnur listform. Að þessu sinni
er markmið tónleika Caudu Collective tvíþætt. Annars
vegar að halda upp á messudag Þorláks helga með því að
flytja tónlist sem var sérstaklega samin honum til heiðurs
en hins vegar skapa rólega stemningu á einum þeim degi
ársins sem annríkið er mest. Aðgangur er ókeypis.
Ljósmynd/Daði Sigursveinn Harðarson
Andstæða við þessi
hefðbundnu jólalög
Tónlistarhópurinn Cauda Collective stendur fyrir tónleikum á
Þorláksmessukvöld kl. 21 í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Frá tónleikum Cauda Collective
í Hafnarborg í júní 2019.
Morgunblaðið greindi frá því á
Þorláksmessu árið 1969 að
átta jólasveinar hefðu verið
handteknir í Lundúnum sak-
aðir um óspektir á almanna-
færi og óleyfilegar mótmæla-
aðgerðir.
„Þeir vilja að allir heimsins
jólasveinar hefji baráttu fyrir
því að börn fái leikföng gefins í
verzlunum. Þeir segjast hafa
komið á fót leyniþjónustu í
þessu skyni, en fjórir Eskimóar
úr leyniþjónustunni hafa verið
handteknir. Jólasveinn, dulbú-
inn sem mörgæs, var nýlega
handtekinn í Bretlandi fyrir að
gefa helming leikfangabirgða
verzlunar, sem hann starfaði
í,“ stóð í fréttinni.
GAMLA FRÉTTIN
Jólasveinar
handteknir
Einn hinna gjafmildu jólaveina í vörslu lögreglu í Lundúnum fyrir jólin 1969.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Jonathan Pryce
í gervi Don Kíkóta
Úlfar Þormóðsson
rithöfundur
Max Von Sydow
leikari