Fréttablaðið - 05.12.2002, Blaðsíða 1
SKÁK
Prófum frestað
fyrir heimsmeistaramót
bls. 30
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 5. desember 2002
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Bíó 20
Íþróttir 14
Sjónvarp 22
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
ALÞINGI Þriðja og síðasta umræða
um fjáraukalög þessa árs hefst á
Alþingi í dag. Að lokinni þeirri um-
ræðu taka þingmenn til við lokaum-
ræðu um fjárlagafrumvarp næsta
árs. Þingfundur hefst klukkan 10.30
og stendur að líkindum fram á
kvöld.
Karpað um
krónurnar
TILNEFNINGAR Tilkynnt verður um til-
nefningar til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna við athöfn í kvöld. Að
venju verða tilnefndar fimm bæk-
ur úr flokki fræðirita og bóka al-
menns efnis og fimm bækur úr
flokki fagurbókmennta. Athöfnin
hefst á NASA klukkan 19 og verður
sjónvarpað beint í Kastljósi Sjón-
varpsins.
Bókmennta-
verðlaunin
SÝNING Handverk og hönnun opnar í
dag jólasýningu í Aðalstræti 12.
Þetta er í fjórða sinn sem verkefn-
ið heldur sýningu af þessu tagi en
þar er að finna margs konar hand-
verk og listiðnað. Sýnendur eru 25.
Sýningin verður opnuð klukkan 17
og stendur til 22. desember.
Allir fá þá
eitthvað fallegt
KÖRFUBOLTI Þrír leikir fara fram í
Intersport-deildinni í körfuknatt-
leik karla í kvöld. KR og Breiðablik
mætast í KR-heimilinu og Tinda-
stóll tekur á móti Hamri á Sauðár-
króki. Botnslagur verður í Stykkis-
hólmi en þar tekur Snæfell á móti
Val. Allir leikirnir hefjast klukkan
19.15.
Botnslagur í
körfu karla
BÆKUR
Blöðin eru
tímavélar
FIMMTUDAGUR
244. tölublað – 2. árgangur
bls. 24
BÍÓ
Fjölskyldudrama
jólasveinsins
bls. 20
REYKJAVÍK Suðaustanátt og
15-20 m/s og talsverð rign-
ing. Hiti 5 til 10 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 18-23 Rigning 7
Akureyri 15-23 Rigning 6
Egilsstaðir 15-23 Rigning 6
Vestmannaeyjar 18-23 Rigning 7
➜
➜
➜
➜ +
+
+
+
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
28%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
fimmtu-
dögum?
53%
72% SJÓMENN Á OLÍUVEIÐUM Sjómenn á norðvestanverðum Spáni hafa gripið til sinna ráða. Þeir sigldu út á haf til þess að skófla upp í
báta sína olíunni, sem lak úr olíuskipinu Prestige.
TOLLAEFTIRLIT „Mig grunar að gáma-
innflutningur sé ein margra auð-
veldra leiða fíkniefnainnflytjenda.
Um og yfir 80 prósentum gáma
sem hingað koma er
ekið beint og skoð-
unarlaust í gegnum
tollinn,“ sagði Guð-
mundur Hallvarðs-
son alþingismaður.
Í svari fjármála-
ráðherra við fyrir-
spurn Guðmundar
um tollaeftirlit með
gámainnflutningi kemur fram að 1
prósent sendinga, annarra en hrað-
sendinga, var tollskoðað í Reykja-
vík í fyrra og um 6 prósent hrað-
sendinga fóru gegnum tollskoðun.
Í Hafnarfirði og Kópavogi eru 4 til
5 prósent sendinga tollskoðuð.
Þetta er svipað hlutfall og á hinum
norrænu löndunum. Í fyrra voru
fluttir 85.300 tuttugu feta gámar til
landsins alls, stærstur hluti með
skipum til Reykjavíkur.
„Tilefni fyrirspurnar minnar
er sá mikli fíkniefnavandi sem
við búum við, einkum hér í
Reykjavík. Og menn hljóta að
velta fyrir sér innflutningsleið-
um fíkniefnasalanna. Við veitum
afar sterka tollgæslu í Keflavík
en mér þótti ástæða til að spyrj-
ast fyrir um hversu mikið eftirlit
er með gámainnflutningi hér í
Reykjavík. Mér finnst mjög sér-
stakt hvernig haldið er á þessu. Í
Reykjavík sinna 8 tollverðir af 55
eftirliti með gámainnflutningi en
á Keflavíkurflugvelli eru það 2 til
3 tollverðir af 35. Hlutfallið í
Reykjavík er mjög lágt í því ljósi
að gámainnflutningurinn er
margfalt meiri þar í gegn en um
Keflavíkurflugvöll. Ef til vill eru
áherslurnar rangar,“ sagði Guð-
mundur Hallvarðsson.
Í svari ráðherra kemur fram að
sextíu og þrjú fíkniefnamál tengd
vöruinnflutningi komu upp í
Reykjavík í fyrra og tvö á Kefla-
víkurflugvelli.
„Mér sýnist full þörf á að herða
verulega tollaeftirlit með gáma-
innflutningi og það hljóta menn að
gera í ljósi áætlana um Ísland án
eiturlyfja 2002. En ég velti því
fyrir mér hvar áherslurnar liggja
og hvernig menn ætla að verjast
innflutningi eiturlyfjanna. Mér
finnst liggja í loftinu að orðum
hafi ekki fylgt athafnir í þessum
efnum,“ sagði Guðmundur Hall-
varðsson.
the@frettabladid.is
Gámainnflutningur
greið leið dópsala
OFSAVEÐUR Spáð er ofsaveðri á land-
inu öllu í kvöld og er fólk hvatt til að
halda sig innandyra:
„Þetta verður mikill hvellur sem
gengur sem betur fer yfir þegar líða
tekur á kvöldið. Fólk ætti hins vegar
að nota fyrri hluta dagsins til að
binda allt lauslegt niður og alls ekki
fara út að ganga með hunda, svo
eitthvað sé nefnt,“ segir Sigurður Þ.
Ragnarsson veðurfréttamaður, sem
fylgst hefur með lægðinni undan-
farna daga. „Þetta er lægð á milli Ís-
lands og Grænlands sem ætlar að
skrúfa sig niður í 945 millibör. Þetta
verður djúpt, skarpt og ofsaveður
á stöku stað,“ segir Sigurður.
Með ofsarokinu er spáð veru-
legri úrkomu og hlýnandi lofti. Spá-
in gerir þó ráð fyrir að þetta taki
fljótt af þannig að undir miðnætti
ætti allt að verða orðið rólegra og
mönnum og málleysingjum óhætt
utandyra. ■
Djúp lægð skrúfar sig niður í 945 millibör:
Kolvitlaust veður í kvöld
AP
/D
EN
IS
D
O
YL
E
Sparpera, áður 645 kr.
þessa viku 299 kr.
Tilboð
„Mér sýnist
full þörf á að
herða veru-
lega tollaeftir-
lit með gáma-
innflutningi.“
GUÐMUNDUR HALLVARÐSSON
Segist hugsi yfir svari fjármálaráðherra um
tollaeftirlit með gámainnflutningi um
Reykjavík. Telur þar eina skýringuna á vax-
andi fíkniefnavanda landsmanna.
Eftirliti með vöruinnflutningi í gámum er ábótavant ef marka má svör fjármálaráðherra. Yfir
80% gámanna renna eftirlitslaust gegnum tollinn. Full þörf á stórhertu eftirliti með gámainn-
flutningi, segir Guðmundur Hallvarðsson alþingismaður
Evrópuríki:
Hafa áhyggj-
ur af olíunni
PARÍS, AP Spánverjar, Portúgalar og
Frakkar hafa miklar áhyggjur af ol-
íubrákinni úr skipinu Prestige, sem
brotnaði í tvennt og sökk norðvest-
ur af Spáni 19. nóvember. Fylgst er
grannt með því hvert olíuflekkirnir
reka. Mikið magn af olíu hefur þeg-
ar borist á land á norðvesturströnd
Spánar, en bæði Frakkland og
Portúgal hafa sloppið til þessa.
Sjávaröryggisnefnd Evrópu-
sambandsins kom í fyrsta sinn
saman í gær til þess að herða regl-
ur um siglingar olíuskipa. Vafa-
samt þykir þó að samkomulag tak-
ist um að banna siglingar olíuskipa
með einfaldan byrðing til hafna
Evrópusambandsins, þrátt fyrir að
Frakkar og Spánverjar hafi þrýst á
um slíkt bann.
Ýmis ríki Evrópusambandsins
eru mjög á móti því að reglurnar
verði hertar. ■