Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.12.2002, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 05.12.2002, Qupperneq 10
10 5. desember 2002 FIMMTUDAGUR Grindavík: Fannst látinn í höfninni LÖGREGLUMÁL Færeyskur sjómaður fannst látinn í höfninni í Grinda- vík síðdegis í fyrradag. Hann var skipverji á færeysku skipi sem lá við bryggju. Síðast sást til hans á veitingahúsi um nóttina. Þegar hann skilaði sér ekki var hafin leit að honum og fannst hann sem fyrr látinn skammt frá skipinu. Að sögn rannsóknarlögreglunnar í Keflavík er talið að maðurinn hafi fallið milli skips og bryggju. Mjög hvasst var í veðri þegar atburðurinn átti sér stað og ýtir það enn frekar undir þá kenningu. Rannsókn málsins er ekki lokið. Maðurinn var 35 ára gamall og færeyskur ríkisborgari. ■ MENNTUN Stjórnendur læknadeild- ar Háskóla Íslands hafa ákveðið að fella niður hluta af úrtökuprófi fyrsta árs læknanema sem haldið var í nóvember vegna athuga- semda sem fram hafa komið. Mik- illar óánægju hefur gætt meðal nemenda með ákveðna hluta prófs- ins, svo sem þann fyrsta, þar sem nemendur töldu að um væri að ræða Raven greindarpróf og þá hefði átt að láta vita af slíku fyrir fram. Málið fór fyrir Stúdentaráð, sem vísaði því til umsagnar Sál- fræðingafélags Íslands. Annar hluti prófsins var einnig umdeildur en þar var um að ræða próf í almennri þekkingu. Meðal annars var spurt um það hvernig Barbapabbi væri á litinn. Bent var á að stúdentar eru flestir um tvítugt og því ekki af þeirri kyn- slóð sem horfði á teiknimyndir af fígúrunni í sjónvarpi á sínum tíma. Nú hefur verið ákveðið að ómerkja greindarprófið. Þetta var tilkynnt í fyrradag en jafnframt því að greindarprófið falli niður eykst vægi annarra prófhluta. Þar með vegur Barbapabbaspurning- ingin enn meira en fyrr. Þriðjung- ur þeirra sem taka prófið fær að halda áfram og því ljóst að nú eiga þeir enn frekar örlög sín undir Barbapabba. ■ Háskóli Íslands: Vægi Barba- pabba eykst STJÓRNMÁL Sitjandi þingmenn Sam- fylkingar eru að vissu marki í ör- uggum þingsætum en nýliðar í bar- áttusætum á framboðslistum flokksins sem hafa litið dagsins ljós að undanförnu. Á þessu eru vissulega undantekningar. Gísli S. Einarsson þingmaður situr í þriðja sætinu í Norð- vesturkjördæmi og gæti reynst erfitt fyrir flokkinn að sækja það sæti en varaþingmaðurinn Anna Kristín Jónsdóttir er hins vegar í 2. sætinu, sem ætti að vera nokkuð öruggt. Þá hafa nokkrir nýliðanna á suðvestur- horninu ástæðu til bjartsýni. Miðað við að Samfylkingin fái svipaðan þingmannafjölda og síðast má gera ráð fyrir að meðalaldur þingflokksins lækki um ríflega þrjú ár og meira ef flokknum tekst að bæta við sig þingsætum. Sviptingum á fylgi Samfylkingar samkvæmt skoðanakönnunum má helst líkja við rússibanareið. Flokk- urinn hefur farið frá því að mælast í um 40% fylgi í kringum prófkjör flokksins fyrir síðustu þingkosning- ar í það að mælast aðeins um 13,5% fylgi fyrir rétt rúmlega ári síðan. Í nýjustu könnun Gallup mælist fylg- ið svo 32%. „Ég held að þessi langi með- göngutími þar sem flokkurinn er búinn að rokka allt niður í 14% fylgi og upp í 32% núna segi okkur að það sé mikið flökt á fólki. Ég hef sagt að það sé ekki svo slæmt,“ segir Guð- mundur Oddsson, skólastjóri og bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Kópavogi til margra ára. Hann seg- ir skoðanakönnunina nú gefa vonir um að til sé að verða flokkur sem sé nógu stór til að geta valið sér sam- starfsaðila í ríkisstjórn. „Ég veit náttúrulega ekki hvort þetta sé for- ystunni að þakka, eða kenna,“ segir hann en telur að flokknum hafi tek- ist upp við val á lista án þess að til of mikilla átaka kæmi auk þess sem sumir telji góðan hlut kvenna hafa skilað sér í atkvæðum kynsystra þeirra. „Ef þú leggur upp í þessa baráttu í þokkalegum friði er ég á því að það þurfi talsverða kunnáttu og leikni til að spilla þeim friði,“ segir Guð- mundur og kveðst ekki sjá mikil merki um átök í flokknum. Helst hafi komið til deilna í Norðvestur- kjördæmi þar sem Gísli S. Einars- son og Karl V. Matthíasson tókust á um þriðja sætið. „Það er dálítill hér- aðs- og flokkarígur þar frekar en illindi á milli manna.“ „Það hefur mikil orka farið í það að ná þessari hjörð saman og menn verið miskátir með forystu flokks- ins. Það er ákveðin stjórnkúnst að halda þessari hjörð saman. Verk- efni morgundagsins er að halda fastar utan um þetta.“ brynjolfur@frettabladid.is Almennt má segja að þingmenn Samfylkingar hafi raðast í öruggu sætin á framboðslistum meðan nýliðarnir verða að berjast fyrir þingsætum sínum. Meðalaldur þingmanna gæti lækkað um þrjú ár við næstu kosningar. Nýliðarnir í baráttusætunum SKIPTING EFSTU FRAMBJÓÐENDA Aldur Karlar Konur 18-30 1 1 31-40 3 1 41-50 5 2 51-60 3 4 61- 0 1 Samtals 12 9 NOKKRIR ÞINGMENN SAMFYLKINGAR Meðalaldur þingmanna Samfylkingar lækkar að líkindum um þrjú ár og jafnvel meira ef flokkurinn bætir við sig þingmönnum. „Ég veit nátt- úrulega ekki hvort þetta sé forystunni að þakka.“ Mansal og hórumang: Stúlkurnar innilokaðar STOKKHÓLMUR Maður og kona á sextugsaldri voru handtekin í Stokkhólmi á mánudag grunuð um að hafa hneppt stúlkur frá Eystrasaltslöndunum í kynlífs- þrælkun. Konan rak vændishús í norðurhluta Stokkhólms. Stúlkurnar voru innilokaðar og voru til reiðu fyrir kúnna allan sólarhringinn. Af greiðslu kúnnanna tók konan 70%. Stúlkurnar fengu ekki að fara út úr húsi í frítíma sínum. Tvær ungar stúlkur frá Eistlandi voru í íbúð konunnar þegar sænska lögreglan lét til skara skríða. ■ EKIÐ Á DRENG Ekið var á tólf ára pilt á mótum Hagamels og Reyni- mels rétt fyrir klukkan átta í gær- morgun. Drengurinn var á leið í skóla. Hann meiddist lítilega. Að sögn lögreglu sá ökumaðurinn pilt- inn ekki tímanlega, en hann var ekki með endurskinsmerki. Hvetur lögregla unga sem aldna að nota slík merki. PENINGASKÁPUR Í ÓSKILUM Lög- reglan í Reykjavík hefur undir höndum læstan peningaskáp, sem fannst nýlega í austurborginni. Sá sem telur sig eiga skápinn getur vitjað hans á lögreglustöðinni. SKERÐINGARHLUTFALL LÆKKAÐ Skerðingarhlutfall tekjutrygging- arauka lækkar úr 67% í 45% og tekjutrygging hækkar vegna sam- komulags stjórnvalda og samtaka eldri borgara. Í greinargerð með frumvarpi heilbrigðisráðherra seg- ir að kostnaður við þetta sé áætlað- ur 250 milljónir króna. Ísafjörður: Framleiðsla á sushi stöðvast MATVÆLI Framleiðsla á sushi-rétt- um í verksmiðju Sindrabergs á Ísafirði stöðvast frá og með næsta mánudegi og fram í janú- ar. Ástæðan er sögð birgðasöfn- un. Um 20 starfsmönnum verk- smiðjunnar verður ekki sagt upp. Sala á framleiðslu Sindra- bergs á þessu ári er svipuð og allt árið í fyrra en í héraðs- fréttablaðinu BB á Ísafirði segir að neytendamarkaðurinn í Bret- landi hafi brugðist. Haft er eftir Elíasi Jónatans- syni að samningar um sölu á neytendamarkaði í Bretlandi hafi ekki skilað því sem ætlað var og því hafi verið ákveðið að hætta að selja þangað. ■ LÖGREGLUFRÉTTIR SVONA ERUM VIÐ Meðalaldur brúðhjóna hefur hækkað stöðug frá því um 1970. Íslenska hippa- kynslóðin gekk yngri í hjónaband, þeir sem á annað borð giftu sig, en fólk í dag. Meðalaldur kvenna er alltaf aðeins lægri en karla en munurinn kynjanna helst sá sami, hér um bil þrjú ár. KJÖRKASSINN Meðalaldur brúðhjóna* 1971-1975: 1986-1990: 1996-2000: *HEIMILD: HAGSTOFAN STJÓRNMÁL Þrengri skorður verða settar við því hvernig sauðfjár- bændur komast undan útflutn- ingsskyldu. Þetta verður gert til að ná betur þeim markmiðum sem unnið var eftir þegar ákveðið var að veita vissar undanþágur frá út- flutningi. Bændur hafa getað komist hjá útflutningsskyldu hafi þeir verið með innan við 70 kindur fyrir hver hundrað ærgildi sem þeir hafa yfir að ráða. Tilgangurinn með því er að draga úr fram- leiðslu með því að bændur fækk- uðu kindum til að komast hjá því að þurfa að flytja hluta fram- leiðslunnar út fyrir lítið fé. Að sögn Sveinbjörns Eyjólfs- sonar, aðstoðarmanns landbúnað- arráðherra, hefur reynslan verið sú að helmingur þeirra bænda sem komast hjá útflutningsskyldu hafa keypt ærgildi til að komast inn í svokallaða 0,7 reglu, sem undanskilur bændur útflutnings- skyldu. Þetta hafi unnið gegn markmiðum sem reglan byggir á. Fyrir það er tekið í frumvarpi sem landbúnaðarráðherra hefur fengið samþykkt í ríkisstjórn. ■ Útflutningsskylda kindakjöts: Þrengt að undanþágum KINDUR Á BEIT Bændur geta fækkað kindum til að komast hjá útflutningsskyldu. Tekið verður fyrir að menn geti komist hjá útflutningsskyldu með því að auka greiðslumark sitt. Karlar 27 Konur 24 Karlar 30 Konur 27 Karlar 35 Konur 32 Andlegi skólinn Sálarjóga Einkatímar í desember í sálarjóga. Upplýsingar í síma 553 6537 og 695 9917.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.