Fréttablaðið - 05.12.2002, Blaðsíða 18
18 5. desember 2002 FIMMTUDAGUR
FIMMTUDAGUR
5. DESEMBER
hvað?
hvar?
hvenær?
ÚTGÁFUHÁTÍÐ Einar Þorsteinsson
ljóðskáld heldur hátíð í tilefni
af útgáfu geisladisks með 30
frumsömdum ljóðum í kvöld.
Einar segist hafa brasað við
að semja ljóð frá barnsaldri.
Góðir menn hvöttu hann til að
gefa út geisladisk með ljóðum
sínum og ákvað hann að slá
til. Hann segir ungt fólk ekki
verið mikið í að semja ljóð.
Sjálfur þekkir hann örfáa og
engan sem semur með hefð-
bundnu ljóðformi. „Ljóðin
þurfa að breytast með minni
kynslóð eins og tónlistin hef-
ur gert,“ segir Einar, sem er
26 ára.
Helstu yrkisefni hans eru
þjóðfélagsandinn; hugsanir
og viðhorf sem fólk hefur.
Einar lét brenna 500
geisladiska með ljóðum sín-
um. Aðspurður hvort hann
búist við að selja marga sagði
Einar: „Nei! Ég býst nú ekki
við mikilli sölu en ef ég sel 50
verð ég ánægður.“
Útgáfuhátíðin verður í
Vesturporti við Vesturgötu og
hefst klukkan 21. ■
Ljóðskáldið Einar Þorsteinsson:
Býst við lítilli ljóðasölu
EINAR ÞORSTEINSSON
Er 26 ára. Hann segir fáa jafnaldra sína semja ljóð.
FUNDIR
12.20 Þórgunnur Eyfjörð Pétursdóttir,
líffræðingur og M.S.-nemi í heil-
brigðisvísindum við læknadeild
HÍ, flytur fyrirlesturinn Erfðaefnis-
breytingar á litningi 3p í æxlum
af mismunandi uppruna í bóka-
safni Keldna.
14.15 Rekstrar- og viðskiptadeild Há-
skólans á Akureyri og IM á Íslandi
efna til ráðstefnu um stefnumót-
un og mat á árangri. Ráðstefnan
er í stofu L101 á Sólborg. Henni
lýkur kl. 16.15.
16.00 Arndís Björnsdóttir flytur erindið
Retinitis Pigmentosa, leit að
meingenastökkbreytingum í
málstofu læknadeildar HÍ. Mál-
stofan fer fram í sal Krabbameins-
félags Íslands, efstu hæð.
20.00 Jólafundur Nýrrar dögunar, sam-
taka um sorg og sorgarviðbrögð,
er haldinn í Fossvogskirkju. Guð-
rún Ásmundsdóttir leikkona fjall-
ar um efnið „Sorg í ljósi jóla“og
Erna Blöndal og Örn Arnarson
flytja okkur tónlist aðventu og
jóla. Á eftir verður boðið upp á
kaffi í sal Kirkjugarðanna. Allir vel-
komnir, aðgangur ókeypis.
20.30 Kvöldvaka Kvennasögusafns Ís-
lands í kaffistofu Þjóðarbókhlöðu.
Fram koma Helga Kress, Guðrún
Edda Gunnarsdóttir og Björg
Einarsdóttir.
20.00 Félag ungra framsóknarmanna í
Hafnarfirði heldur opinn fund um
landbúnaðarmál í Framsóknar-
heimilinu, Dalshrauni 5, Hafnar-
firði. Gestur fundarsins er Svein-
björn Eyjólfsson, aðstoðarmaður
landbúnaðarráherra.
TÓNLEIKAR
20.00 Styrkur, samtök krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra,
verður með jólafund í Kiwanis-
húsinu við Engjateig. Rósa Krist-
jánsdóttir djákni flytur jólahug-
vekju. Barnakór Varmárskóla
syngur jólalög. Heiðursgestur á
jólafundinum er Vigdís Finn-
bogadóttir, verndari Krabba-
meinsfélags Íslands og fyrrverandi
forseti Íslands.
Ingólfur Steinsson heldur tónleika í
Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum, Vestur-
götu 3. Tilefnið er útkoma geisladisksins
Kóngsríki fjallanna. Ingólfur syngur og
leikur á gítar og munnhörpu lög við eig-
in texta og annarra íslenskra skálda.
19.30 Aðventutón-
leikar Sinfón-
íuhljómsveitar
Íslands og
Mótettukórs
Hallgrímskirkju
í Hallgríms-
kirkju. Á efnis-
skránni er Jólaóratóría J.S. Bach.
Stjórnandi er Hörður Áskelsson
og einsöngvarar eru Monica
Groop, Andreas Schmidt, Gunn-
ar Guðbjörnsson og Marta Guð-
rún Halldórsdóttir.
22.00 Eistneski tenórsaxófónleikarinn
Siim Aimla heldur tónleika í
Stúdentakjallaranum. Með hon-
um leika þeir Ólafur Stolzenwald
á bassa og Ásgeir Ásgeirsson á
gítar. Á efniskránni eru m.a lög
eftir John Coltrane og Thelonius
Monk.
22.00 Útgáfutónleikar Smack á Gauki á
Stöng í tilefni útkomu hljómplöt-
unnar Number One. Haukur Sig.
verður með uppistand áður en
tónleikar hefjast.
22.00 Elektróník tónleikar á 22 þar sem
fram koma Skurken, Prins Vali-
um, Frank Murder, Earthvomit
og Tartarus.
KVIKMYNDIR
22.30 Kvikmyndaklúbbur Alliance
française-Filmundur sýnir hið sí-
gilda meistaraverk frá árinu 1937
Blekkingin mikla eftir Jean Reno-
ir með Erich von Stroheim, Julien
Carette og Jean Gabin í aðalhlut-
verkum í Háskólabíói.
UPPÁKOMUR
20.00 Fimm rithöfundar lesa úr nýjum
bókum í anddyri Borgarleikhúss-
ins. Tónlist fyrir upplestur og í
hléi.
20.00 Pétur Gunnarsson les úr nýút-
kominni bók sinni, Leiðin til Róm-
ar, Thor Vilhjálmsson úr bókinni
Sveigur og Einar Kárason úr ævi-
sögu Kristjáns Kristjánssonar: KK
– þangað sem vindurinn blæs,
sem hann skrásetti, á Súfistanum
í Mál og menningu, Laugavegi.
Einnig leikur KK tónlist af nýjum
geisladiski sínum, Paradís.
21.00 Útgáfuhátíð Einars Þorsteinsson-
ar ljóðskálds í tilefni útgáfu geisla-
disks með ljóðum haldin í Vest-
urporti, Vesturgötu.
LEIKHÚS
20.00 Aukasýning á Með vífið í lúkun-
um í Borgarleikhúsinu.
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
1
1
/0
2
Einstök stund
í íslensku tónlistarlífi
Aðventutónleikar í Hallgrímskirkju
Johann Sebastian Bach: Jólaóratóría
Að njóta Jólaóratóríu Bachs er einstök stund. Tveir af okkar fremstu
söngvurum, Gunnar Guðbjörnsson og Marta Guðrún Halldórsdóttir,
taka höndum saman með heimsþekktum kollegum
sínum Andreas Schmidt og Monica Groop. Þau,
ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands og Mótettukór
Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar,
sameinast í flutningi á þessari mögnuðustu jóla-
gleðitónlist allra tíma. Í vændum er því einstakur
viðburður í tónlistarlífi okkar.
í kvöld, fimmtudaginn 5. desember kl. 19:30 (I-III)
á morgun, föstudaginn 6. desember kl. 19:30 (IV-VI)
laugardaginn 7. desember kl. 17:00 (I-III)
2.500 kr. / 4.000 kr. ef keyptir eru miðar á tvenna tónleika.
Hallgrímskirkja,
Miðaverð:
Miðasalan, sími 568 8000, er opin kl. 13-18 alla virka daga og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu
opnar kl. 10 virka dag. Fax 568 0383 midasala@borgarleikhus.is www.borgarleikhus.is
STÓRA SVIÐ
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Fös. 6/12 kl. 20, lau. 28/12 kl. 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Lau. 7/12 kl. 20 ATH: Kvöldsýning, Sun. 8/12 kl. 14
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Í kvöld kl 20 - AUKASÝNING
Fim. 12. des kl. 20 - AUKASÝNING
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
NÝJA SVIÐ
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
e. Gabor Rassov
Lau. 7/12 kl. 20
Sun. 29/12 kl. 20
JÓLAGAMAN
Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum í leikbúningi
o.fl. Lau. 7/12 kl. 15
Lau. 14/12 kl. 15
ÞRIÐJA HÆÐIN
HERPINGUR eftir Auði Haralds
HINN FULLKOMNI MAÐUR eftir Mikael Torfason
í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA
Lau. 28/12 kl. 20, fös. 10/1 kl. 20
LITLA SVIÐ
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Sun. 8/12 kl. 20
Mán. 30/12 kl. 20
FORSALUR
BROT AF ÞVÍ BESTA - UPPLESTUR OG TÓNLIST
Jól í Kringlusafni og Borgarleikhúsi:
Rithöfundar lesa - léttur jazz
Í kvöld kl. 20 Davíð Oddsson, Halldóra Kristín
Thoroddsen, Ingibjörg Haraldsdóttir, Páll Kristinn
Pálsson, Sigurður Pálsson og Vigdís Grímsdóttir.
Fimmtud. 12/12 kl. 20 Arnaldur Indriðason, Einar
Már Guðmundsson, Einar Kárason, Guðrún Eva
Mínervudóttir, Stefán Máni og Þórarinn Eldjárn.
Sól & Máni - Nýr íslenskur söngleikur
eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR
TILBOÐSVERÐ KR. 2.800 GILDIR TIL JÓLA
Frumsýning 11. janúar
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA! Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús:
börn 12 ára og yngri fá frítt í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum. (Gildir ekki á söngleiki og barnasýningar.)
GJAFAKORT Í LEIKHÚSIÐ - FRÁBÆR JÓLAGJÖF