Fréttablaðið - 05.12.2002, Page 27
FÓLK Leikarinn Robert Redford
hefur nú bæst í hóp þeirra dæg-
urhetja sem fordæma gjörðir
Bush Bandaríkjaforseta. Leik-
arinn segir forsetan slæman
leiðtoga og gagnrýnir harðlega
hversu háðir olíu Bandaríkja-
menn eru enn.
Redford, sem er þekktur fyr-
ir að vera mikill umhverfissinni,
varaði við því að óhófleg notkun
á olíu og jarðgasi væri farin að
hafa neikvæð áhrif á utanríkis-
mál þjóðarinnar, auk þess aug-
ljóslega að skapa mikla loft-
mengun í Bandaríkjunum.
„Bandarísk húsþök geta hæg-
lega orðið Persaflói sólar-
orkunnar,“ sagði leikarinn, sem
er mikill stuðningsmaður þess
að almenningur nýti sólarorku.
„Vindar og sólarorka framleiða í
dag minna en tvö prósent raf-
magnsnotkunar þjóðarinnar. Við
getum gert mun betur en það.
Þetta myndi einnig halda pen-
ingunum inni í landinu, sem
myndi styrkja fjárhaginn, loft-
mengun minnkaði auk þess sem
ný störf myndu skapast.“ ■
27FIMMTUDAGUR 5. desember 2002
Dreifing: Rún heildverslun, sími: 568 0656
Söluaðilar: Herra Hafnarfjörður • 66°N • Intersport • Guðsteinn Eyjólfsson
Íslenskir Karlmenn • Herrahúsið • Ellingsen • Bjarg, Akranesi • Hjá Siggu Þrastar, Ísafirði • Olíufélag
útvegsmanna, Ísafirði • JMJ, Akureyri • Joes Akyreyri • Lækurinn, Neskaupstað • Lónið, Höfn •
Verslunin 66, Vestmannaeyjum • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • Intersport, Selfossi
Robert Redford andvígur Bush:
„Olían spillir ut-
anríkismálunum“
ROBERT REDFORD
Kannski ættu Bandaríkjamenn að hugleiða
það að kjósa Robert Redford til forseta?
FÓLK Jam Master Jay, meðlimur
rapphljómsveitarinnar Run DMC,
sem myrtur var fyrir skömmu,
fær heiðursverðlaun á VH1-tón-
listarverðlaunahátíðinni sem
fram fer 15. desember. Meðal
gesta á hátíðinni verða Michael
Imperioli úr Sopranos-þáttunum
og Drea de Matteo.
Chuck D, Kid Rock og
Grandmaster Flash munu leika
saman lag sem þeir tileinka Jam
Master Jay. Eftirlifandi meðlim-
um Run DMC verða afhent verð-
laun fyrir framlag þeirra til tón-
listarinnar á síðustu tveimur ára-
tugum. ■
JAM MASTER JAY
Var skotinn til bana í hljóðveri fyrir
skömmu. Morðinginn hefur ekki fundist.
Jam Master Jay:
Heiðraður af VH-1
TÓNLIST The Doors hafa neyðst til
að fresta fyrirhuguðu tónleika-
ferðalagi eftir að trommuleikari
sveitarinnar, Stewart Copeland,
handleggsbrotnaði þegar hann
datt af hjóli. Copeland, sem er
fyrrum trommari The Police,
meiddist illa á hendi í slysi nálægt
heimili hans í Los Angeles. Talið
er að hann geti komið aftur til liðs
við starfandi meðlimi sveitarinn-
ar, hljómborðsleikarann Ray
Manzarek og gítarleikarann
Robby Krieger, á tónleikum í Las
Vegas þann 19. janúar.
Ian Astbury, fyrrum söngvari
The Cult, mun reyna að fylla
skarð Jim Morrison á tónleika-
ferðalaginu, sem átti að hefjast á
sunnudag. Copeland hljóp í skarð-
ið fyrir upphaflega trommarann
John Densmore, sem er orðinn
heyrnarlaus.
Þetta er í fyrsta sinn sem sveit-
in heldur tónleika síðan Morrison
lést árið 1971. Hún mun spila á
nokkrum tónleikum í
Bandaríkjunum áður en hún held-
ur til Evrópu. Stefnan hefur verið
sett á að taka upp nýja plötu.
„Við töldum 30 ára hvíld hæfi-
legan tíma,“ sagði gítarleikarinn
Krieger um endurvakningu sveit-
arinnar. ■
THE DOORS
Sveitin hefur ekki spilað á tónleikum síðan Jim Morrisson söngvari lést árið 1971.
The Doors fresta tónleikaferðalagi:
Trommuleikarinn
handleggsbrotnaði