Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.12.2002, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 23.12.2002, Qupperneq 6
6 23. desember 2002 MÁNUDAGUR ERLENT VEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 30 1. 2. 3. Bandaríski álrisinn Alcoa, sem hyggst reisa álver á Reyðarfirði, er óbeinn þátttakandi í atvinnu- rekstri hér á landi. Í hvaða fyrir- tæki hér á landi á Alcoa? Hlutabréf í Kaupþingi voru skráð á erlendan markað. Í hvaða landi? Hvaða stjórnmálamaður hefur gegnt embætti forsætisráðherra og borgarstjóra á sama tíma? GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 82.92 0.22% Sterlingspund 132.98 0.23% Dönsk króna 11.46 0.17% Evra 85.06 0.19% Gengisvístala krónu 126,28 0,17% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 569 Velta 4.023 milljónir ICEX-15 1.330 0,21% Mestu viðskipti Kaupþing banki hf. 422.370.579 Eimskipafélag Íslands hf. 215.183.127 Íslandsbanki hf. 117.471.632 Mesta hækkun AFL fjárfestingarfélag hf. 4,79% Íslenski hugbúnaðarsjóðurinn hf. 2,96% Landssími Íslands hf. 2,65% Mesta lækkun ACO-Tæknival hf. -46,43% Íslenska járnblendifélagið hf. -8,70% SR-Mjöl hf. -6,06% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ: 8511,3 1,8% Nasdaq: 1363,1 0,7% FTSE: 3889,9 1,3% DAX: 3320,9 0,5% Nikkei: 8406,9 0,2% S&P: 895,8 1,3% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 LÖGREGLAN Lögreglan í Reykjavík hefur í ýmsu að snúast á Þorláks- messu enda er stór hluti borgar- búa á þeytingi milli verslana langt fram á kvöld. „Þetta er auðvitað stór dagur hjá okkur en það skipt- ir miklu máli á hvaða vikudegi hann lendir,“ segir Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögreglu- þjónn. „Nú dreifist traffíkin tals- vert meira og við erum í raun búin að vera með margfaldan mannafla alla helgina líka.“ Það er af sem áður var þegar Þorláksmessan einkenndist af mikilli ölvun í miðbæ Reykjavík- ur og víðar. „Fyrir 10-15 árum síð- an var áberandi mikil drykkja á mannskapnum en nú sér maður frekar fjölskyldur í göngutúr að skoða sig um í bænum. Það kemur varla fyrir lengur að það sjáist dauðadrukkið fólk niðri í bæ á Þorláksmessu. Þetta er auðvitað mjög jákvæð þróun og í raun og veru í takt við það sem er að ger- ast í skemmtanalífinu almennt.“ Í dag er því aðaláherslan hjá lögreglunni á umferðarstjórn. „Við þurfum að greiða fyrir um- ferðinni, setja upp lokanir og fleira. Það er líka alltaf talsvert um óhöpp á þessum degi en þegar tíðarfarið er gott eins og núna er auðvitað minna um slíkt.“ Karl Steinar segir að því miður komi upp þó nokkuð af þjófnaðar- málum í verslunum síðustu dag- ana fyrir jól og auk þess sé tölu- vert um að brotist sé inn í einka- bíla. „Við höfum verið að koma þeim ábendingum til ökumanna að skilja ekki eftir verðmæti í bíl- um.“ Átakið virðist hafa skilað sér að einhverju leyti því færri þjófn- aðir hafa komið inn á borð til lög- reglunnar að þessu sinni. ■ SKIPULAGSMÁL Nýtt aðalskipulag fyrir Reykjavík markar tímamót að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra. Í skipu- laginu er reynt að sporna gegn út- þenslu byggðar. „Það eru þrír meginþræðir sem við erum að vinna með,“ seg- ir Ingibjörg Sólrún. „Það er í fyrsta lagi Reykjavík sem höfuð- borg allra landsmanna, í öðru lagi Reykjavík sem alþjóðleg borg sem á að geta staðist samkeppni við útlönd og í þriðja lagi Reykja- vík sem vistvæn borg.“ Ingibjörg Sólrún segir að þess- ir meginþræðir fléttist víða sam- an í skipulaginu, sem gildir til árs- ins 2024. „Við erum að reyna að setja út- þenslu byggðarinnar mörk og þétta hana meira inn á við. Út- þensla byggðar og dreifð byggð er frá umhverfissjónarmiði afskap- lega slæm. Það er búið að ræða þetta linnulaust erlendis síðustu tíu ár og þar gengur öll skipulags- vinna út á að sporna gegn út- þenslu, en það gengur svolítið illa að koma henni til skila hérlendis. Kannski er það vegna þess að um- ræðan fer aðallega fram á ein- hverjum pólitískum nótum. Fag- fólk er svo fjarverandi í þessari umræðu þannig að það vantar bara meiri upplýsingu um þetta.“ ■ SOROS SEKUR Bandaríski millj- arðamæringurinn George Soros var í gær fundinn sekur um inn- herjaviðskipti. Franskur dóm- stóll dæmdi hann til þess að greiða nærri 190 milljónir króna í sektir. BLAÐAMENN MYRTIR Á þessu ári hafa að minnsta kosti 48 blaðamenn verið myrtir við störf sín víða um heim. Grunur leikur á að 19 að auki hafi hlotið sömu örlög. Alþjóðasamtök blaða- manna skýrðu frá þessu í gær þegar þau birtu ársskýrslu sína um þessi mál. Í REYKJAVÍK Lögreglan leggur áherslu á umferðarstjórn á Þorláksmessu, sem er þægilegri dagur en áður fyrr enda dreifist umferðin meira. Þorláksmessan hjá lögreglunni: Áberandi minni ölvun en áður tíðkaðist INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR „Við erum að reyna að setja útþenslu byggðarinnar mörk og þétta hana meira inn á við. Útþensla byggðar og dreifð byggð er frá umhverfissjónarmiði afskap- lega slæm.“ Aðalskipulag Reykjavíkur til 2024: Reynt að sporna gegn útþenslu Svæðisskipulagið kostar 183 milljarða Nýtt svæðisskipulags höfuðborgarsvæðis staðfest á föstudag. Framkvæmdakostnaður hins opin- bera vegna skipulagsins er 183 milljarðar króna. Eitt meginmarkmið þess er þétting byggðar. SKIPULAGSMÁL Eitt meginmarkmið nýs svæðisskipulags höfuðborg- arsvæðisins, sem var staðfest á föstudaginn, er að þétta byggð á svæðinu. Framkvæmdakostnaður hins opinbera vegna skipulagsins er um 183 milljarðar til ársins 2024. „Reynt er að beina vexti borg- arsamfélagsins meira inn á við en verið hefur og draga úr óheftri út- þenslu borgarinnar,“ segir Árni Þór Sigurðsson, einn af formönn- um svæðisskipulagsnefndar. Í svæðisskipulaginu er að finna framtíðarsýn sveitarfélaganna átta á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu og þróun byggðar næsta aldarfjórðunginn. Skipu- lagið nær frá Kjósarhreppi í norðri til Vatnsleysustrandar- hrepps í suðvestri. Sjálfbær þró- un er ríkjandi hugtak í skipulag- inu og auk þess að þétta byggð miðar skipulagið að því að tengja betur saman búsetu og atvinnu, efla almenningssamgöngur og tryggja að höfuðborgarsvæðið þróist áfram sem nútímalegt borgarsamfélag. Vinnan við skipulagið hófst fyrir fjórum árum. Þrátt fyrir mismunandi pólitískar áherslur í einstökum sveitarfélögum náðist samstaða um meginmarkmið skipulagsins. Því er ætlað að styrkja svæðið sem heild í sam- keppni og samanburði við erlend borgarsvæði. Árni Þór segir að sveitarfélög- unum beri að vinna sitt aðalskipu- lag innan ramma svæðisskipu- lagsins. „Það gefur augaleið að svæðis- skipulagið er ekki hárnákvæmt. Í skipulaginu er tekið á þessum stóru línum í skipulagsmálum svæðisins eins og t.d. uppbygg- ingu byggðar og samgöngumál- um. Sveitarfélögin hafa visst svigrúm innan þessa svæðis- skipulags til þess að ráða í hvaða röð þau byggja upp ákveðin svæði. Þau ráða einnig að nokkru leyti á hvaða hraða þau byggja svæðin upp.“ Árni Þór segir að stefnt sé að því að skipa varanlega svæðis- skipulagsnefnd sem muni hafa það hlutverk m.a. að fjalla um ágreining milli sveitarfélaganna ef hann kemur upp. trausti@frettabladid.is REYKJAVÍK Í svæðisskipulaginu er að finna framtíðar- sýn sveitarfélaganna átta á höfuðborgar- svæðinu um uppbyggingu og þróun byggðar næsta aldarfjórðunginn. Skipulag- ið nær frá Kjósarhreppi í norðri til Vatns- leysustrandarhrepps í suðvestri. FRAMKVÆMDARKOSTNAÐUR VEGNA SVÆÐISSKIPULAGS TIL ÁRSINS 2024 Málaflokkar Milljarðar króna Svæðisvegir 62 Innri götur og ræsi 46 Dagheimili 7 Grunnskólar 25 Framhaldsskólar 17 Dvalarheimili aldraðra 10 Hjúkrunarheimili 16 Samtals 183 Áætlunin sýnir helstu kostnaðarþætti þeirrar opinberu fjárfestingar sem nauð- synlegt er að ráðast í til að svæðisskipu- lagið nái fram að ganga. Meðal þess sem er undanskilið er: Almenningssam- göngukerfið, veitukerfið, heilsugæsla, félagsleg þjónusta og uppbygging íþróttasvæða. Auk þess eru fjárfestingar einkaaðila í íbúðar- og atvinnuhúsnæði undanskildar. Allar upphæðir eru á verðlagi í janúar árið 2001. BIFREIÐ VALT Í HÁLKU Jeppi valt á Þjóðvegi 1 gegnt Fosshálsi í Þingvallasveit á fimmta tímanum í gær. Losa þurfti mann sem var fastur í flakinu, en hann mun ekki vera lífshættulega slasaður. Aðrir í bifreiðinni sluppu með minniháttar meiðsl. Bíllinn er ónýtur, en að sögn lögreglunnar á Húsavík var fljúgandi hálka þeg- ar slysið varð. UMFERÐARSLYS Á LAUGAVEGI Sumum finnst friðargangan niður Lauga- veginn á Þorkláksmessu ómissandi í jóla- undirbúningnum. Kaupmenn við Laugaveg eru ánægðir með sinn hlut og hlakka til að takast á við hápunkt jólainnkaupanna í dag. Laugavegurinn: Rífandi sala og gott skap VERSLUN Hildur Símonardóttir, eig- andi Vinnufatabúðarinnar á Laugavegi, var hin hressasta þeg- ar slegið var á þráðinn til hennar í gær. „Það er brjálað að gera og mikil stemning. Ég heyri á öðrum kaupmönnum við Laugaveginn að þeir eru mjög ánægðir og menn eru nú þegar komnir í sömu tölur og í fyrra. Ég reikna með að við aukum við okkur um einhverja prósentu í ár.“ Hildur segir mikla gleði ríkj- andi á Laugaveginum og fólk al- mennt í rífandi góðu jólaskapi. „Það er alltaf svo gaman hér á Laugaveginum og svo nær þetta allt saman hámarki í dag,“ segir Hildur. ■ ÚR KRINGLUNNI Þar hefur verið margt um manninn í des- ember og kaupmenn eru sáttir. Kringlan: Skemmtileg jólastemmn- ing VERSLUN Örn V. Kjartansson, markaðsstjóri Kringlunnar, lætur vel af aðsókn í desember. „Við erum búnir að fá um það bil 700.000 heimsóknir það sem af er mánuðinum, sem er 3% meira en í fyrra. Þar skiptir auðvitað færðin miklu máli , við finnum að fólk utan af landi er að koma miklu lengur en í fyrra, þá var það helst á ferðinni fyrstu helgina í jóla- mánuðinum.“ Örn segir stemmn- inguna í Kringlunni góða og kaup- menn sátta. „Það er auðvitað gríð- arleg samkeppni og fólk er að kaupa ódýrari gjafir, en það er ekki slæmt hljóðið í kaupmönn- um. Menn hafa verið að bítast í verði, ódýr matur og bækur hafa verið áberandi og þetta smitar út frá sér. En aðsóknin bætir það upp, veðrið og færðin eru svo góð að fólk er í fínu skapi sem skilar sér í skemmtilegri jólastemmn- ingu,“ segir Örn. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.