Fréttablaðið - 23.12.2002, Page 8

Fréttablaðið - 23.12.2002, Page 8
8 23. desember 2002 MÁNUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. BRÉF TIL BLAÐSINS Marteinn Lúther var eitt sinnspurður að því hvernig best væri að forverja sálina fyrir synd og dauða. Lúther svaraði að ljúf- fengur matur í maga og góð saga á vörum væri besta vörnin; djöfullinn kæmist aldrei að manneskju í slíku standi. Það fylgir jólun- um eins og skugg- inn sólargeislunum að menn fari að býsnast yfir ver- aldleik hátíðanna. Þeir setja upp ljúfsáran Presley-svip – hnykla brýrnar og verða hálf-blúsaðir og hálf-gospelaðir í framan – og lýsa áhyggjum sínum yfir hvernig kaupæðið, átið og stessið breiðist yfir hinn sanna boðskap jólanna. Samt kannast fáir við að hafa misst af jólunum. Reynsla flestra er að jólin eru yndislegur tími; tími hátíðar og gleði, vina og fjöl- skyldu. Mannskepnan er nefnilega svolítið lunkin. Hún kann að feta einstigið að jólununum á milli ver- aldlegs stjórnleysis og lífsafneit- unar. Allir nema þeir sem fylla hug sinn af vandlætingu á hvernig ná- unginn beitir sér í sinni lífsglímu. Hugmyndin að baki því að hið veraldlega geti eytt hinu andlega byggir á tvíhyggju; að veröldin sé ekki ein og heil. Slík tvíhyggja leið- ir oftast til að fólki finnst sem það þurfi að velja á milli tveggja kosta. Hafna líkamanum fyrir sálina eða þagga niður í sálinni svo líkaminn geti fengið sitt í friði. Rótin að þessari hugmynd liggur líklega í því að maðurinn hefur bæði hug- mynd um sjálfan sig eins og hann er og hvernig hann ætti að vera – og það er ansi langt á milli þessara hugmynda. Við teljum okkur þekk- ja fullkomleika en hann fellur illa að lífi okkar. Einhvern tímann var þetta orðað svo að við værum fallnar verur; hefðum innra með okkur mælistiku sem tilheyrði betri verum en við getum nokkru sinni orðið. Að við gætum aldrei staðist dóm okkar. En við þessu er ekkert að gera. Þetta stand er að vera maður. Og það er lífsglíma okkar. Við getum aldrei hafnað mannleika okkar né dæmt hann út frá hugmyndum um eitthvað sem er æðra okkur. Enn síður þaggað niður í væntingum okkar um að standa okkur aðeins betur; verða betra fólk; lifa í sátt og láta eitthvað gott af okkur leiða. Jólin eru ágætur prófsteinn á þessa þraut okkar; að éta, drekka og gleðjast án þess að tapa okkur í einhverri vitleysu. Okkur tókst það um síðustu jól og okkur tekst það örugglega aftur. ■ Með góðan mat í maga og sögu á vörunum Hann er konungur konungannaog frelsari heimsins. Hann kom til okkar fæddur af konu við erfiðar aðstæður, lagður í heystall dýranna. Sonur fátæks fólks, hann var ofsóttur frá því að hann var ungabarn. Það var ekkert sem benti til þess að þarna færi kon- ungur, engar umbúðir, enginn glæsileiki og í raun mannlegar að- stæður eins og þær geta verið bágastar. María móðir konungsins var fjórtan eða fimmtán ára stúlkubarn með smiðinn Jósef sér við hlið sem bauð heitkonu sinni að ala barn í gripahúsi og breytt- ist í einu vetfangi í að vera ljós- móðir og flóttamaður með unga móður og nýfætt barn á sinni ábyrgð. Aðeins ljómi englanna nóttina sem Jesús fæddist á Betlehems- völlum gaf til kynna að þetta barn væri einstakt. Og hverjum birtust englarnir? Þeir birtust fjárhirð- um sem hefðu ekki verið þarna ef þeir hefðu fengið að ráða. Enginn vildi vera fjárhirðir. Þetta voru fátækir menn, fyrirvinnur kvenna og barna. Fátækir menn í herteknu landi. Niðurlægðir menn meðal niðurlægðrar þjóðar. Og myrkrið umhverfis þá var eins og aðstæður þeirra, óbreytanlegt og ósnertanlegt. Lítill bálköstur þeirra eina kjarabót. Þá gerist það. Skyndilega blindar birta himnanna þá, í ljósflæðinu sjá þeir engil Guðs standa rétt hjá sér. Ofurþunginn af nærveru eng- ilsins er slíkur að hirðarnir skelfast ákaflega. En engillinn tekur þá til máls og segir: „Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum. Yður er í dag frelsari fæddur......“ Lam- aðir af undrun og ótta fara fjár- hirðarnir yfir boðskap engilsins, „Yður er í dag frelsari fæddur, hann hefur verið lagður í jötu, hann er í fjárhúsi!!! Englaher- sveitin var mætt til að segja þess- um umkomulausum mönnum að Messías eða frelsarinn væri kom- inn í heiminn, ungabarn, fæddur af konu í fjárhúsi í nágreninu. Hvar var frelsarinn sem menn væntu í mætti og mikilli dýrð? Jú! Hann var kominn í gegnum móð- urlíf, jafnvel fæddur við verri kjör en þeirra eigin börn. Þeir hlupu af stað. Vegna þess að þeir áttu aðgang að slíkum konungi. Hefur þú einhverntímann hald- ið á alveg nýfæddu barni í fangi þínu? Ég er svo lánsöm að vera kona og hafa farið í gegnum fæð- ingu. Í mínum huga var það stór- kostlegasta trúarreynsla sem ég hef lifað. Sú reynsla að ganga í gegnum þjáningar fæðingarinnar og lifa þá stund að halda á ný- fæddum hvítvoðungi er engri lík. Sú stund þegar við tökum nýfætt ungabarnið í fang okkar, þá vakna frumlægar kenndir djúpt í sálinni og við viljum ekki leggja barnið frá okkur. Þetta fá milljónir for- eldra að lifa um allan heim. Þú tal- ar lágt og hreyfir þig hægt, því allt innra með þér gefur til kynna að þú ert ekki borgunarmaður fyrir þeim fjársjóði sem er fólg- inn í höndum þér. Áfengur ilmur hvítvoðungsins seytlar um hverja taug, og þú ert líklegur eða líkleg til að segja einhverja dæmalausa vitleysu við barnið, merkingar- laus orð og allskyns hljóð sem þú annars létir aldrei til þín heyra. Þessi áhrif hefur barnið. Og það er ekkert eins máttugt og nýfætt bar. Öll veröldin stendur á öndinni og mannfólkið læðist um, þegar barn er fætt. Og þó er ekkert svo ósjálfbjarga og hjálparvana í þessum heimi sem nakið barn með nýklipptan naflastreng. Styrkur þess er fólginn í því einu hve áleitið það er í allsleysi sínu. Grátur þess hríslast um okkur og krefst þess að vera sefaður. Ilm- urinn og öll nærvera ungabarns- ins er máttugt ákall um hjálp og líkn sem nær inn að hjarta okkar. Á þennan hátt kom Jesús til mann- anna fyrir tvö þúsund árum. Hann fæddist af konu sem ósjálfbarga ungabarn í höndum umkomu- lausra foreldra. Hann var réttar- laus almúga drengur og ófyrirséð um framtíð hans í augum manna. En hann var sendur af Guði og ólíkur öllum börnum. Í jötunni hvíldi sá sem er frumorsök allrar tilveru með knýttan naflastreng- inn með fæðingarfituna á höfðinu sem bar enn hið íbjúga mót fæð- ingarinnar. Frumorsök alls lífs kallar á þig á jólum. Hann mælir sér mót við þig inni í gripahúsi og talar til hinna dýpstu og frumlæg- ustu kennda þinna. Hann er „hið sanna ljós sem upplýsir hvern mann“. Slíkum Guði er auðvelt að lúta og tilbiðja. ■ miðbæjarprestur skrifar um jólahátíðina. JÓNA HRÖNN BOLLADÓTTIR Um daginn og veginn Guðs sonur kemur til okkar í gegnum móðurlíf skrifar um jólin. Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON Minni- pokamenn án fylgis Hjörtur Hjartarson skrifar: Ó, þeir eru svo miklir hérar.Skíthræddir og flokkshollir úr hófi fram. Eina ástæða þess að Árni Þór Sigurðsson og Alfreð Þorsteinsson eiga sæti í borgar- stjórn Reykjavíkur er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Reykvíkingar kusu hana sem borgarstjóra og þessir ólánssömu fulltrúar Vinstri grænna og Framsóknarflokksins flutu bara með. Þeir eiga í raun ekkert fylgi meðal fólks í borginni og fáránlegt að láta þá komast upp með að bola borgarstjóra úr emb- ætti. Reykvíkingar mega ekki láta átölulaust að fylgislausir minni- pokamenn traðki á lýðræðinu með því að varpa borgarstjóra þeirra á dyr. ■ DÓMAR Hæstiréttur sýknaði trygg- ingafélagið Lloyd´s af 5,5 milljóna króna vátryggingakröfu eiganda Lilju ÁR-10 sem sökk við Snæfells- nes í maí árið 2000. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt tryggingafélagið til þess að greiða upphæðina. Þegar báturinn sökk var einn maður um borð og bjargaðist hann. Skýrði hann svo frá að bráður leki hefði komið að bátnum þannig að ekki hefði verið við neitt ráðið. Hafi hann fyllst af sjó og sokkið á skömmum tíma. Gat skipverjinn enga skýringu gefið á því hvað gæti hafa valdið lekanum. Tryggingafélagið reisti aðal- kröfu sína um sýknu á því að vá- tryggingarverndin næði ekki til hvers kyns áhættu, sem leitt gæti til tjóns á báti stefnda. Í vátrygg- ingarskilmálunum væru taldar upp þær ástæður, sem gætu leitt til þess að bátur farist eða skemmist, og tryggingafélagið taki að sér að bæta tjón af. Áhætta af öðrum skaða, t.d. því ef bátnum hvolfi eða hann sökkvi af ókunnum ástæðum, sé á ábyrgð stefnda sjálfs. ■ HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi trygg- ingafélagið Lloyd´s til þess að greiða eig- anda báts 5,5 milljónir króna í trygginga- bætur í mars sl. Hæstiréttur sneri dómnum og sýknaði tryggingafélagið. Eigandi báts sem sökk fær engar tryggingabætur: Tryggingafélag sýknað í Hæstarétti Íslands Reyndu innflutning fíkniefna: Rannsókn málsins lokið FÍKNIEFNI Rannsókn í máli tveggja ungra kvenna sem grunaðar voru um innflutning og sölu fíkniefna er lokið. Hafa þær báð- ar verið látnar lausar úr haldi og eiga yfir höfði sér ákæru. Kon- urnar eru báðar 25 ára gamlar. Tollgæslan á Keflavíkurflug- velli handtók aðra konuna við komuna frá París 2. desember síðastliðinn eftir að tæplega hálft kíló af hassi fannst á henni. Sama dag var hin konan hand- tekin í íbúð í vesturbæ Reykja- víkur. Við húsleit fannst um hálft kíló af hassi til viðbótar auk 140 gramma af amfetamíni og e-töflur. Hörður Jóhannesson yfirlög- regluþjónn segir að rannsókn hafi leitt í ljós að engir aðrir en konurnar tvær hafi komið að þessu máli. ■ Sameining SH og SÍF: Vilji til formlegra viðræðna VIÐSKIPTI Stjórn Sölusambands ís- lenskra fiskframleiðenda, SÍF, lýsti á fundi sínum yfir vilja til að ganga til formlegra viðræðna við stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna um sameiningu. Óform- leg samtöl um hugsanlega sam- einingu hafa verið á milli fyrir- tækjanna um nokkurt skeið. Stjórnin telur að í ljósi umræðna um málið sé óheppilegt að það dragist lengi að finna út hvort af þessari sameiningu geti orðið á næstunni. Stjórn SH hefur tekið vel í erindið og lýst vilja til við- ræðna. ■ Mannskepnan er nefnilega svolítið lunkin. Hún kann að feta einstigið að jólununum á milli verald- legs stjórn- leysis og lífsaf- neitunar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.