Fréttablaðið - 23.12.2002, Page 12

Fréttablaðið - 23.12.2002, Page 12
12 23. desember 2002 MÁNUDAGUR Desember er annasamur tími ílífi sr. Karls Sigurbjörnssonar biskups. Árin löng hefur hann messað um jólin og á því verður ekki breyting nú. Aðventan tekur ekki minni toll af tíma biskupsins því þá er mikið um að vera. Hann heimsækir fólk og sækir hina ýmsu viðburði auk þess að undir- búa jólin með fjölskyldunni. „Jól- in eru í föstum skorðum og ein- kennast af hefðum eins og hjá svo mörgum öðrum. Við hjónin verð- um heima ásamt tveimur af börn- um okkar að þessu sinni. Báðar dæturnar eru búsettar í London um þessar mundir og sú yngri kom heim um jólin. Sú eldri held- ur jólin ytra ásamt fjölskyldu sinni,“ segir sr. Karl. Það kemur ekki á óvart að bisk- upinn skuli fara með fjölskyldu sinni til messu klukkan sex en áður fyrr messaði hann sjálfur. Nú situr hann með sínum og hlust- ar. „Eftir að heim er komið borð- um við sænska jólaskinku og ann- að góðgæti auk laufabrauðs. Við höfum haft þá venju að hafa mat- inn þægilegan þetta kvöld. Skink- an er elduð að sænskra hætti með sinnepi og hunangi en það er kona mín sem sér um matseldina.“ Eins og á öðrum heimilum eru teknar upp gjafir í rólegheitum en síðan syngur fjölskyldan saman jólasálm. „Jólaguðspjallið hefur alltaf verið lesið og það hefur komið í hlut barnanna að lesa það. Ef ég messa ekki sjálfur á mið- nætti þá höfum við farið aftur í miðnæturmessu. Það hefur aukist mjög síðari ár að fólk sæki kirkju á miðnætti, einkum er það unga fólkið sem velur þann tíma.“ Skörp skil frá önnum að- ventunnar í helgi jólanna Sr. Karl segir aldrei hafa verið erfitt að fá börnin til að sækja messur á jólum. „Þau þekkja ekk- ert annað, hafa alist upp við það. Í huga þeirra er það sjálfsagður hlutur og ég held að það myndi aldrei hvarfla að þeim að sleppa því að fara í kirkju.“ Sr. Karl er þeirrar skoðunar að helgi aðfangadagskvölds sé með öðrum hætti á Íslandi en víðast hvar í öðrum löndum. Hann segist hafa haldið jól bæði í Svíþjóð og Bandaríkjunum og þar hafi hann ekki fundið fyrir þeim algjöra friði sem einkennir íslenskt sam- félag á aðfangadagskvöld. „Þar var eins og maður vissi ekki al- mennilega hvenær jólin hæfust. Þau voru eins og á floti. Hér eru þessi skil sem verða nákvæmlega klukkan sex svo einstök. Það er nánast sama hvar maður er stadd- ur. Skilin eru svo skörp og á auga- bragði er eins og helgin detti yfir og ró og hátíðleiki taka völdin. Það er þessi töfrastund sem við hugs- um alltaf til þegar við horfum til jólanna. Í huga manns eru það jól- in. Auðvitað gerist þetta vegna þess að allir eru svo samstilltir um að þannig eigi það að vera.“ Sr. Karl segir það alltaf jafn mikið undur hvað fólk sé tilbúið til að leggja á sig á aðventunni til að eiga þessa stund. „Þetta er sterkur þáttur í menningarlífi okkar og ég vona að við eigum ekki eftir að breyta þessari ein- stöku upplifun.“ Gróska í barnastarfi kirkjunnar Biskur tekur undir að trúar- meðvitund þjóðarinnar hafi opn- ast. „Ég er ekki frá því. Í eina tíð var sem minnst um trú talað og það var nánast tabú að tala um þann þátt í lífi okkar. Eitt af því sem hefur áhrif er ef til vill að trúariðkun er sýnilegri í samtíð- inni en var. Umheimurinn er kom- in inn á okkur með aukinni fjöl- breytni trúarhátta. Ég er ekki frá því að menn hugsi um sína eigin trúarhefð og rætur samfara því.“ Sr. Karl segir eitt ljósasta dæmið um breytingar vera í barnastarfi kirkjunnar. Prestar um allt land segi sér að mikill fjöl- di barna sæki kirkju. „Það er mik- il gróska í barnastarfi kirkjunnar og foreldrar koma gjarnan með börnum sínum. Prestar segja líka að mun auðveldara sé nú að fá for- eldra fermingarbarna til sam- starfs og er það vel. Það er gleði- legt að vita til þeirrar vitundar- vakningar meðal ungra foreldra.“ Biskup minnist í því sambandi á lúterska hjónahelgi sem hafi verið mjög vinsæl. „Fleiri hund- ruð hjón hafa tekið þátt í þessu og stofnað með sér hópa sem eru virkir áfram. Það er mjög ánægjulegt til þess að vita hve mikill áhugi er á þessu. Ég veit að fólk hefur haft afar mikla ánægju og blessun af þessum hjónahelg- um og því samfélagi sem af þeim hefur sprottið.“ Nóg á sá er sér nægja lætur Nú fyrir jólin hefur mikið verið rætt um bágindi fólks og fátækt. Algengt er að fólk bíði í röðum eft- ir aðstoð frá hjálparstofnunum. Biskupinn segist vita til þess að þegar hafi um tvö þúsund manns sótt um aðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar. „Það er alltaf erfitt að horfa upp á neyð annarra. Það má velta fyrir sér hví svo margir sem raun ber vitni þarfnist aðstoðar um þessar mundir. Þar gæti komið til viðhorfsbreyting.“ Biskup telur að hluti skýringar- innar sé vafalaust að menn blygð- ist sín ekki á sama hátt og áður að leita aðstoðar. „Á árum áður vissi maður um það að kaupmenn settu í poka ýmislegt fyrir fátækar fjöl- skyldur og stungu að þeim fyrir jól. Það fór allt fram í mestu kyrr- þey. Þetta hefur breyst og segja má að í þeirra stað komi hjálpar- stofnanir og líknarfélög. Nú eru aðrar kröfur til lífsins. Fátækt er líka afstætt hugtak og það má segja að „nóg á sá er sér nægja lætur.“ En kröfurnar eru miklar og það er dýrt að reka heimili. Það er sárt að horfa upp á þann fjölda ör- yrkja og einstæðra mæðra sem þarf að leita sér aðstoðar. Bætur eru það lágar að það má svo lítið út af bera til að endar nái ekki saman.“ Sr. Karl er sammála því að þeir sem meira megi sín hugsi ekki nægilega um að deila með hinum. „Það er einn af þessum töfrum jól- anna en þá fá góðvildin og gjaf- Biskup Íslands, sr. Karl Sigurbjörnsson, segir jólin vera þann tíma sem þeir dýrmætu eiginleikar okkar að gefa og gleðja taka yfir. Þá opnum við hjörtun fyrir náunganum og áhrifum þess góða. Jólin eru töfrastund SR. KARL SIGURBJÖRNSSON „Á árum áður vissi maður um það að kaupmenn settu í poka ýmislegt fyrir fátækar fjölskyldur og stungu að þeim fyrir jól. Það fór allt fram í mestu kyrrþey.“ Við höfum haft þá venju að hafa matinn þægi- legan þetta kvöld og það eru allir ánægðir með það. ,,FRÉTTABLAÐIÐ/INGÓ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.