Fréttablaðið - 23.12.2002, Page 23
MÁNUDAGUR 23. desember 2002
Tveir forvitnilegir hljómorðadiskar komnir út :
Baráttan milli góðs og ills
GEISLAPLÖTUR Jón Júlíusson leikari
gaf um daginn út tvær hljóðbækur.
Önnur geymir 20 ljóð eftir Jónas
Hallgrímsson en hin söguna „Kær-
leiksheimilið“ eftir Gest Pálsson.
„Ég verð sextugur í mánuðinum
og um svipað leyti eru 195 ár frá
fæðingu Jónasar,“ segir Jón. „Þeg-
ar ég var 10 ára lærði ég tugi ljóða.
Eitt ljóð sat alltaf sterkast í huga
mér, „Heiðlóarkvæði“ eftir Jónas,
og mér fannst alltaf svo sárt að
hrafnarnir skyldu éta unga lóunn-
ar. Þetta var í fyrsta skiptið sem
eitthvað skáld greip mig án þess að
ég vissi hvaða skáld það væri.“
Jón fór í Leiklistarskóla Íslands
19 ára og Jónas Hallgrímsson var
með í för. „Í leik-
listarskólanum
lærði ég ljóðið
„Ferðalok“, þan-
nig að á heilum
áratug þá lærði
ég alltaf eitt-
hvað kvæði eftir
Jónas Hall-
grímsson.“
„ K æ r l e i k s -
heimilið“ eftir
Gest Pálsson er
40 blaðsíðna
smásaga. 150 ár
eru liðin frá fæðingu Gests nú í
haust.
„Ég las þessa sögu þegar ég
var rétt um tvítugt. Þetta er ein
áhrifamesta smásaga skrifuð á
íslensku og leyfi ég mér að full-
yrða það. Sagan fjallar um ást
ungs fólks. Um mesta skörung
sinnar sveitar, Þuríði af Borg, og
syni hennar Jóni. Önnu vinnu-
konu og þeim feðginum Séra
Eggerti og Guðrúnu dóttur hans.
Sagan segir mest af ástamálum
unga fólksins og afskiptasemi
þeirra eldri. Hún fjallar um bar-
áttu milli góðs og ills.“
„Ljóðúrval Jónasar Hall-
grímssonar“ og „Kærleiksheim-
ilið“ fást í Pennanum Eymunds-
syni og bókabúðum Máls og
menningar. ■
JÓN JÚLÍUSSON
Jón á afmæli rétt
fyrir jólin og segist
vanalega ekki halda
upp á það.
Michael J. Fox:
Með stjörnu
í stéttinni
FÓLK Michael J. Fox er nú kominn í
hóp 2208 annars frægs fólks sem
hefur fengið nafn sitt ritað í
Stjörnustéttina (e. Walk of Fame) í
Hollywood. Hann var viðstaddur af-
hjúpun hennar síðastliðinn mánu-
dag. Fox hefur nú að mestu lagt
leiklistina til hliðar þar sem hann
þjáist af Parkinson-hrörnunarsjúk-
dóminum. Hann greindist með sjúk-
dóminn árið 1991 en viðurkenndi
það ekki opinberlega fyrr en 1998.
Fox fæst nú við að lesa inn á teikni-
myndir, auk þess sem hann berst
fyrir auknum fjárveitingum til
rannsókna á Parkinson-veikinni. Í
nýútkominni ævisögu Fox kemur
fram að hjónaband hans hafi hangið
á bláþræði um stund sökum þess að
hann lagðist í drykkju eftir að hafa
verið greindur með sjúkdóminn. ■
MEÐ STJÖRNUNINNI SINNI
Les eingöngu inn á teiknimyndir um
þessar mundir.
BEÐIÐ EFTIR JÓLUNUM
Tveir ungir skópússarar virða fyrir sér jóla-
skreytingar í Panama-borg, höfuðborg
Panama.
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið 9-18 virka daga
og 10-15 laugardaga.
Pelsar frá 12.900
Mokkajakkar og kápur
Tilboð á vendipelsum
– áður kr. 24.900
– nú 12.500
Hattar, húfur og
kanínuskinn kr 2.900
H a u k u r G u l l s m i ð u r
S m á r a l i n d
Íslensk-ítölsk skartgripahönnun og smíði
Verð frá
68.500.- m. grind
Queen 153x203
Tilboð
Amerískar lúxus
heilsudýnur