Fréttablaðið - 23.12.2002, Qupperneq 29
MÁNUDAGUR 23. desember 2002
Dreifing: Rún heildverslun, sími: 568 0656
Söluaðilar: Herra Hafnarfjörður • 66°N • Intersport • Guðsteinn Eyjólfsson
Íslenskir Karlmenn • Herrahúsið • Ellingsen • Bjarg, Akranesi • Hjá Siggu Þrastar, Ísafirði • Olíufélag
útvegsmanna, Ísafirði • JMJ, Akureyri • Joes Akyreyri • Lækurinn, Neskaupstað • Lónið, Höfn •
Verslunin 66, Vestmannaeyjum • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • Intersport, Selfossi
KVIKMYNDIR Leikarinn Elijah
Wood, sem fer með hlutverk
Fróða í þríleiknum „The Lord
of the Rings,“ hefur tekið að
sér hlutverk í kvikmyndinni
„The Eternal Sunshine of the
Spotless Mind.“
Meðleikarar hans eru ekki
af verri endanum, eða þau
Jim Carrey, Kate Winslet,
Kirsten Dunst og Tom Wilk-
inson.
Þetta er dramatísk mynd
sem leikstýrt er af Michel
Gondry og er gerð eftir handriti
Charlie Kaufman, sem
m.a. skrifaði handritið að
„Being John Malkovich“
og „Adaptation,“ sem til-
nefnd hefur verið til
Golden Globe-verðlaun-
anna.
Tökur á myndinni
hefjast í næsta mánuði.
Fjallar hún um par, leikið
af Carrey og Winslet, sem
reynir að endurvekja ást-
arblossann með því að
láta þurrka út sársauka-
fullar minningar úr heilanum. ■
Elijah Wood í nýrri kvikmynd:
Leikur við hlið
Carrey og Winslet
VERNDAÐUR VINNUSTAÐUR „Það er
allt útlit fyrir það að 20 þroska-
heftir einstaklingar verði á göt-
unni með vorinu ef við náum
ekki að leysa húsnæðisvandann
fljótlega,“ segir Heimir
Tryggvason, aðstoðarforstöðu-
maður verndaða vinnustaðarins
Ásgarðs.“ Ásgarður missti hús-
næði sitt í Lækjarbotnum í elds-
voða í desember á síðasta ári og
síðan þá hefur ekki tekist að
finna varanlega lausn á húsnæð-
ismálunum. „Waldorfskólinn er
einnig með starfsemi í Lækjar-
botnum. Ásgarður er alveg óháð-
ur honum en skólinn varð einnig
fyrir tjóni í brunanum.“
Tuttugu þroskaheftir einstak-
lingar með hegðunarvandamál
vinna við framleiðslu á húsbún-
aði og leikföngum úr tré á verk-
stæði Ásgarðs. „Strákarnir taka
þátt í öllu vinnsluferlinu, sækja
viðinn sem er svo þurrkaður og
sagaður hérna. Þeir eru því virk-
ir í sköpunarferlinu allt frá
hönnun til endanlegrar útkomu.“
Heimir segir framleiðslunni
ekki ætlað að standa undir
rekstri staðarins enda getur hún
verið æði misjöfn. „Það eru eng-
ar kvaðir á fólkinu hérna og um-
hverfið því rólegra en gengur
og gerist á sumum vernduðum
vinnustöðum. Stundum eru
strákarnir þannig stemmdir að
það er ekki hægt að fá þá til að
vinna og þar við situr.“ Ásgarð-
ur selur tréleikföng í stórmörk-
uðum um helgar yfir jólin.
„Okkur hefur verið boðið að
selja leikföngin í verslanir en
þar sem við getum ekki tryggt
það að við önnum eftirspurn
hefur sá kostur ekki verið tek-
inn.“
„Þeir einstaklingar sem eru
hérna geta ekki fengið inni ann-
ars staðar og munu því ekki
hafa í nein hús að venda ef allt
fer á versta veg. Við erum þó í
viðræðum við félagsmálaráðu-
neytið um að fá annan stað í
Mosfellsbæ en það er enn allt á
viðræðustigi.“ ■
Ásgarður:
Leikfangasmiðir í
húsnæðiskröggum
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
HEIMIR TRYGGVASON
Aðstoðarforstöðumaður Ásgarðs, þar sem 20 þroskaheftir drengir hafa húsaskjól
og fást við leikfangasmíð.
FRÓÐI
Elijah Wood í hlut-
verki Hobbitans
Fróða í „The Lord of
the Rings: The Two
Towers.“