Fréttablaðið - 14.01.2020, Síða 19

Fréttablaðið - 14.01.2020, Síða 19
Tilkynningar Akrakór 12. Breytt deiliskipulag. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti 22. október 2019 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina Akrakór 12 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í breytingunni felst að í stað einbýlishúss á tveimur hæðum verði heimilt að byggja tveggja hæða parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúrum og tveimur bílastæðum á íbúð. Stærð íbúða er áætluð 200m2 og 207 m2. Fyrirhugað parhús verður inna gildandi byggingarreits að öðru leyti en því að vegghæð þess hækkar úr 6,3 m í 6,7 m miðað við aðkomuhæð (við götu) og 7,3 m á bakhlið. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:200 dags. í september 2019. Nánar er vísað til kynningargagna. Ofangreind tillaga er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1 frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá kl. 8:30 til 15:00. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér til­ löguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulags­ og byggingardeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 25. febrúar 2020. Skipulagsstjóri Kópavogs. Auglýsing um breytt deiliskipulag í Kópavogi. kopavogur.is Kópavogsbraut 59. Breytt deiliskipulag. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti 26. nóvember 2019 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina Kópavogsbraut 59 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Á lóðinni stendur einbýlishús, ein hæð og ris um 120 m2 að samanlögðum gólffleti byggt úr holsteini 1949 ásamt um 38 m2 stakstæðum bílskúr byggður 1953. Lóðin er 1.015 m2 að flatarmáli. Í gildandi deiliskipulagi, samþykkt í bæjarstjórn 28. september 2010 og birt í B-deild Stjórnartíðinda 28. okt óber 2010 nr. 816, er gert ráð fyrir að lóðinni verði skipt í tvær lóðir og á þeim byggt tveggja hæða parhús samanlagt um 440 m2 að gólffleti með innbyggðum bílgeymslum. Í gildandi deiliskipu lagi er miðað við að hámarkshæð húsa, miða við aðkomuhæð verði 7,5 m og tvö stæði á hvorri lóð. Í framlagðri tillögu að breyttu deiliskipulagi felst að lóðin verði óskipt og þar rísi tvö stakstæð hús og eitt parhús. Húsin verði einhæð og ris og í hverju þeirra ein íbúð, alls fjórar íbúðir. Á þremur húsanna er miðað við að mænir þeirra verði samsíða Kópavogsbraut og á því fjórða verði verði mænirinn hornrétt á Kópavogsbraut. Heildarflatarmál hvers íbúðarhluta er áætlað að hámarki 110 m2 þannig að samtals er ráðgert að byggja 440 m2 á lóðinni og nýtingarhlutfall um 0,4. Í tillögunni er miðað við að mesta hæð fyrirhugaðra bygginga verði 7,5 m miðað við aðkomuhæð og að svalir geti náð allt að 1,6 m út fyrir byggingarreit. Miðað er við tvö stæði á íbúð, alls átta stæði fjögur verði með aðkoma frá Kópavogsbraut og fjögur frá Suðurvör. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 12. nóvember 2019. Nánar er vísað til kynningar gagna. Ofangreind tillaga er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1 frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá kl. 8:30 til 15:00. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér til- löguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 25. febrúar 2020. Skipulagsstjóri Kópavogs. Auglýsing um breytt deiliskipulag í Kópavogi. kopavogur.is Við ráðum WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS Stjórnendaleit Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja. Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára­ löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið. Almennar ráðningar á markaði Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið. Sveigjanleg nálgun Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða starfs tengdar æfingar. Matstæki Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður en ráðning fer fram. Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index) skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og staðfærð að íslenskum markaði. Ráðgjöf við starfslok Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs­ ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl. Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar þjónustu sniðna að þörfum viðskiptavinarins. SMÁAUGLÝSINGAR 15 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 4 . JA N ÚA R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.