Fréttablaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 32
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Jóns Sigurðar Eyjólfssonar BAKÞANKAR Um hátíðirnar dvaldi ég í litlu þorpi í Granadahér-aði sem er ekki í frásögur færandi. Nema hvað að daginn fyrir gamlársdag heldur aldr- aður maður í göngutúr og síðan þá hefur ekkert til hans spurst. Slóst ég í hóp leitarmanna sem örkuðu um akra og fjöll en allt án árangurs. Eftir eina leitina fór ég á krá þar sem þorpshjartað slær og varð óþægilega var við þrúgandi and- rúmsloftið. Hvar er maðurinn? Ólöglegur innf lytjandi hefur ekið yfir hann og komið líkinu fyrir kattarnef, sagði einn. Annar benti á að hann væri sá þriðji á fimmtán árum sem hverfur og bætti þeirri spurningu við hvort í þorpinu fyndist sækópati sem gerði sér það að leik að myrða gamla menn. Þá liggur náttúrlega beinast við að horfa í kringum sig og spyrja: hver getur það verið? Þá er ekki langt í innlegg eins og þetta: Heyrðu, hann Juan hefur nú alltaf verið svolítið undarlegur, hann býður til dæmis aldrei góðan daginn. Eftir það finnst ýmsum óskemmtilegt að mæta hinum undarlega Juan þegar rökkva tekur. Þriðji benti á að villisvín ráðast á allt sem kvikt er að næturlagi. Sjaldan hef ég orðið jafn áþreifanlega var við brjálæðið sem fylgir því að hafa ekki svör við áleitnum spurningum. Þrúgandi óvissa veldur örvinglan þar til óseðjandi hugurinn stekkur á jafnvel villtustu ágiskanir eins og skipbrotsmaður sem grípur í hverja þá f ljótandi fjöl sem hann finnur. Vitfirring er að vita ekki. Því segi ég, guði sé lof fyrir góða blaðamenn, rannsakendur, vís- indafólk og þeirra sem leita sann- leikans. Vitneskja er beinlínis spurning um sálarheill. Vitfirring Njóttu LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233 | BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150 OPIÐ virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16 | svefnogheilsa.is UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði og Lúxus húsgögn, Egilsstaðir Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16 JANÚAR ÚTSALA – GERÐU GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ – í verslunum Svefns & heilsu 10-50% afsláttur af völdum vörum 25% afsláttur af mjúkvöru Góð hvíld 10 0% SV EFN – 100% HEILSA 100% SVEFN – 100% HE IL SA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.