Fréttablaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 25
Hvað? Hvenær? Hvar? Þriðjudagur hvar@frettabladid.is 14. JANÚAR 2020 Hvað? Tango milonga Hvenær? 20.30-22.30 Hvar? Iðnó Argentínskur tangó dunar. Dj er Laura og gestgjafi er Baldur. Hvað? Mahjang spilakvöld Hvenær? 20.00 Hvar? Fiskislóð 10, annarri hæð, gengið inn að aftan. Mahjang er aldagamalt kubbaspil sem enn í dag er spilað af milljónum Kínverja um allan heim. Hér verður haldin byrjendakennsla í þessu skemmtilega spili og þátttakendur læra í leiðinni nokkur kínversk tákn. Kínverskir kennarar verða á staðnum, sem og áhugasamir íslenskir spilarar og kennarar. Hvað? Kvartett Q Hvenær? 20.30 Hvar? Kex hostel, Skúlagötu. Kvartettinn skipa Andrés Þór Gunn- laugsson á gítar, Sigurður Flosason á saxófón, Birgir Steinn Theódórs- son á kontrabassa og Erik Qvik á trommur. Þeir leika fjölbreytilegt og spennandi úrval tónlistar. Aðgangur er ókeypis. TÓNLIST Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands Verk eftir Strauss yngri, Lehár, Bonis, Zeller, Tsjajkovskíj Siec- zynski, Dostal og Beach. Eldborg í Hörpu Fimmtudaginn 9. janúar Stjórnandi: Bjarni Frímann Bjarnason Einsöngvarar: Jóna G. Kolbrúnar- dóttir og Garðar Thór Cortes. Dansarar: Þorkell Jónsson, Denise Margrét Yaghi, Gylfi Már Hrafns- son, María Tinna Hauksdóttir, Guðjón Erik Óskarsson og Eva Karen Ólafsdóttir. Sumir karlar leita í Frímúrara­ regluna til að f lýja konurnar, eins og einn meðlimur reglunnar sagði mér einu sinni. Svipuð stemning ríkti lengi, og gerir eiginlega enn þá, í Vínarfílharmóníunni, sinfóníu­ hljómsveit sem er næstum tveggja alda gömul. Þar voru konur lengst af bannaðar. Þegar hljómsveitin hugðist fara í tónleikaferðalag um Bandaríkin árið 1997 var gerð könn­ un á viðhorfi þar vestra til hljóm­ sveitarinnar. Í ljós kom að eitthvað myndi ímynd sveitarinnar hressast ef konur fengju að vera í henni. Einn kvenkyns hörpuleikari var ráðinn í framhaldinu. Ástandið hefur víst aðeins lagast síðan þá. Sama er uppi á teningnum hvað varðar Vínartónleika Sinfóníu­ hljómsveitar Íslands. Konur í Vín í gamla daga máttu einfaldlega ekki semja tónlist. Þetta hefur endur­ speglast í efnisskránum, þar til nú. Í ár voru verk eftir tvö kven­ tónskáld, Mélanie Helene Bonis og Amy Beach. Hvorugar þeirra voru samt austurrískar; sú fyrrnefnda var frönsk en hin bandarísk. Tilgerðarlegur hátíðleiki Lögin þeirra á tónleikunum voru því miður fremur rislítil, en það átti svo sem líka við um flest annað á efnisskránni. Að einhverju leyti má skrifa það á hljómsveitarstjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar, sem var heldur þunglamaleg. Einhvers konar tilgerðarlegur hátíðleiki einkenndi Keisaravals­ inn og Dónárvalsinn eftir Jóhann Strauss. Meira að segja valsinn úr óperunni Jévgení Ónegín eftir Tsjajkovskíj var hálf aumingjalegur. Hvar var gleðin og hápunktarnir sem eru svo rafmagnaðir þegar vel tekst til? Sumt var gott Helst var forleikurinn úr Leður­ blökunni eftir Strauss sannfær­ andi. Hann var snarpur og tilþrifa­ Rislitlir Vínartónleikar ÉG VIL VEKJA FÓLK TIL UMHUGSUNAR UM ÞAÐ HVERS KONAR SAMBAND VIÐ HÖFUM VIÐ NÁTTÚRUNA OG ÞAR AF LEIÐANDI VIÐ OKKUR SJÁLF AF ÞVÍ VIÐ ERUM HLUTI AF NÁTTÚRUNNI.Þórunn Bára Björnsdóttir sýnir rúmlega tuttugu stór akrýlverk á sýning­unni Surtsey – Máva­ból í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. „Þetta eru náttúrumyndir. Ég hef áhuga á náttúruskynjun og náttúruvernd og tel að list hafi hlutverki að gegna ásamt vísindum að vekja okkur til umhugsunar um samband okkar við náttúruna og geti verið hvati til góðra verka báðum til gagns. Við tilheyrum náttúrunni og skynjum heiminn með skynfærunum. List er samskiptatæki sem þjálfar skynjun og styður okkur við að fóta okkur í tilverunni, ekki síður en rökhugsun og önnur þekking,“ segir Þórunn. Fast land undir fótum Spurð um Surtseyjartitil sýningar­ innar segir hún: „Ég hef nýtt mér aðgengileg gögn náttúruvísinda­ manna um þróun lífs og landnám plantna í Surtsey sem grunn að verkum mínum síðastliðin 15 ár. Ég er ekki beint að skrásetja Surts­ ey en hef fylgst með því hvað er að gerast þar og hef lesið mér til um hvaða gróðurtegundir eru þar í dag, hverjar hafa horfið og hvað hefur komið í staðinn. Ég styðst við það sem vísindamenn hafa skrifað því ég vil hafa fast land undir fótum. Í myndunum leitast ég við að tengja saman list og vísindi. Ég fylgi þó alltaf fyrst og fremst skynjuninni. Í listinni hef ég lært að fylgja henni.“ Um myndirnar á sýningunni segir hún: „Myndirnar sýna fléttur og mosa. Ég er að lyfta þessu litla og færa það nær okkur. Ég hef mikinn áhuga á náttúruskynjun og náttúru­ vernd og það endurspeglast mjög greinilega í myndunum. Ég vil vekja fólk til umhugsunar um það hvers konar samband við höfum við nátt­ úruna og þar af leiðandi við okkur sjálf af því við erum hluti af nátt­ úrunni.“ Vinnur af köllun Hún segir að ákveðin hugmynda­ fræði liggi að baki stærð mynd­ anna. „Listin þarf að ná til fólksins. Ef mynd er stór kemst fólk ekki hjá því að sjá hana. Ég hef myndirnar litríkar vegna þess að litir og form hafa áhrif á líðan fólks og hugsun. Verkin einkennast af fallegum litum og fegurð. Þórunn lauk listnámi frá listahá­ skólanum í Edinborg og Wesleyan háskólanum í Bandaríkjunum og hefur haldið sýningar árlega, ýmist á Íslandi eða erlendis. „Ég hef sýnt víða um land. Fólk er hrifið því það hafa allir ánægju af náttúru og myndirnar endurspegla fegurð. Ég vinn að myndlistinni af köllun og mikilli ánægju.“ Tengir saman list og vísindi Þórunn Bára Björnsdóttir lítur til Surtseyjar í verkum sínum sem sýnd eru á Akureyri. Akrýlverk sem sýna fléttur og mosa. Litir og form hafa áhrif á líðan fólks, segir Þórunn Bára Björnsdóttir myndlistarkona. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ríkur, gæddur viðeigandi fjöri og gáska. Einsöngurinn var í höndunum á Jónu G. Kolbrúnardóttur og Garð­ ari Thór Cortes. Jóna söng prýði­ lega, röddin var tær og hljómmikil, túlkunin þrungin ástríðu og inni­ leika. Garðar var heldur lengur að komast í gang. Það var eiginlega ekki fyrr en í dúettinum úr Sígauna­ ba róninu m ef t ir t ít t nef nd a n Strauss að hann náði almennilega í gegn. Kannski hentar honum ekki akkúrat þessi tegund tónlistar. Flottir dansarar Nokkrir dansarar glöddu augað á tónleikunum. Það var eitthvað við að horfa á fimlega dansaða vals­ ana, fólkið (eitt parið samanstóð af börnum) bókstaf lega sveif um dansgólfið. Því miður var dansað við allt of fá lög. Dansinn gaf marg­ þvældri tónlistinni líf og hefði því svo sannarlega þurft meira af honum hér. Auk alls þessa hafa Vínar­ tónleikarnir oft verið fyndnari. Stundum hafa áheyrendur oltið um af hlátri. Í samanburðinum núna var stemningin furðu drungaleg; h ljómsveit a r st jór inn v irk aði stressaður og kom ekki upp einum einasta brandara. Fyrir bragðið fékk maður bjánahroll í árlega aukalaginu, hinum ógnarfjöruga Radetsky marsi, þegar áheyrendur klöppuðu í takt. Það var óttalega máttlaust; útkoman var hálf vand­ ræðaleg. Vonandi er þetta ekki slæmur fyrirboði fyrir tónleikaárið fram undan. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Vínartónleikar hafa oft verið skemmtilegri. Söngurinn var mis- jafn, hljómsveitarstjórnin þung og ekki nógu mikill dans. Hvar var gleðin og hápunktarnir sem eru svo rafmagnaðir þegar vel tekst til? spyr Jónas Sen. Sigurður Flosason og félagar spila úrval tónlistar á Kexi Hosteli í kvöld. M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21Þ R I Ð J U D A G U R 1 4 . J A N Ú A R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.