Fréttablaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 20
1 4 . J A N Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT KÖRFUBOLTI Bandaríski körfubolta- maðurinn Jamal K. Olasawere var leystur undan samningi sínum við Grindavík í síðustu viku. Í tilkynn- ingu sem félagið sendi frá sér um viðskilnaðinn sagði að Jamal hefði yfirgefið herbúðir liðsins vegna meiðsla. Jamal segir hins vegar að Grindavík hafi ætlað að nota aðra tylliástæðu til þess að losa sig undir samningi og ætlunin hjá forráða- mönnum félagsins hafi verið að sleppa við að borga út það sem eftir er af samningi aðilanna. Þannig hafi leikmenn Grindavíkurliðsins verið settir í lyfjapróf í síðustu viku og því ranglega haldið fram að í sýni hans hafi fundist marijúana. „Ég hef farið í fjölmörg lyfjapróf á vegum alþjóðakörfuboltasam- bandsins (FIBA) í þeim löndum þar sem ég hef spilað. Þau próf hafa verið gerð á mun vandaðri hátt en þetta sem Grindavík framkvæmdi og þar hafa þvag- og blóðsýni ávallt verið hrein. Ég hef aldrei notað fíkniefni á lífsleiðinni – þetta er því lygi sem hefur áhrif á mannorð mitt og möguleika til þess að starfa sem körfuboltamaður í framhaldinu,“ segir Jamal við Fréttablaðið. „Þeir höfðu í hótunum við mig og sögðust ætla að siga lögreglunni á mig ef ég myndi ekki yfirgefa íbúðina undir eins. Ég er mjög sár og sé núna að það sem Terrell Vin- son, félagi minn, varaði mig við á sínum tíma reyndist á rökum reist. Mér finnst að koma þurfi í veg fyrir að forráðamenn félagsins geti komið svona fram við leikmenn sína í framtíðinni,“ segir hann enn fremur. Vinson sagði farir sínar ekki sléttar af samskiptum sínum við stjórn Grindavíkur í viðtali við Morgunblaðið í upphafi síðasta árs. „Þeir samþykktu svo eftir samn- ingaviðræður við umboðsmann minn að greiða mér hluta af þeirri upphæð sem þeir skulduðu mér. Þá var f lugfarið heim greitt. Mér finnst sú staðreynd að þeir linuð- ust í afstöðu sinni sýna að þeir hafi áttað sig á því að þeir geti ekki haldið lyginni um mig til streitu,“ segir leikmaðurinn, „Ég er bundinn trúnaði og hef ekkert leyfi til að fara að blaðra um það í fjölmiðlum en það verður rekið þvert ofan í ykkur ef þið skrif- ið einhverja vitleysu – það er alveg klárt. Það sem er satt er að hann er meiddur og í tveggja leikja banni og er af þeim sökum farinn heim til sín,“ segir Ingibergur um málið. Fréttablaðið fékk þó senda ljós- mynd af þvagprufu Jamals og sam- skiptum þar sem því er haldið fram að hann hafi fallið á lyfjaprófi. – hó Segist hafa verið borinn röngum sökum um fall á lyfjaprófi Jamal er ósáttur við hegðun forráðamanna Grindavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY HANDBOLTI Íslenska liðið fékk sannkallaða draumabyrjun gegn Rússum í gær og gekk leikáætlunin eins og í sögu í 34-23 sigri í Malmö. Íslenska liðið er því með fullt hús stiga eftir tvær umferðir og dugar jafntefli gegn Ungverjum í lokaum- ferðinni til að halda toppsæti riðils- ins. Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari landsliðsins, gat leyft sér að dreifa álaginu vel og ættu menn því að koma fullfrískir inn í leikinn gegn Ungverjum annað kvöld og með örlögin í eigin höndum. Þetta er tíunda Evrópumótið í röð sem Ísland kemst á en í fyrsta sinn sem Ísland er með fullt hús stiga eftir tvo leiki. Rússarnir vilja stýra hraða leiks- ins og koma í veg fyrir að flæði kom- ist í leikinn eins og sást snemma í leiknum. Boltinn var dæmdur af Rússum strax í fyrstu sókn vegna tafa og þá fengu þeir þrisvar til við- bótar hendurnar á loft á upphafs- mínútum leiksins. Á hinum enda vallarins reyndu Strákarnir okkar að keyra hratt, koma í veg fyrir að Rússarnir næðu að stilla upp varn- arleiknum og fundu fjölmargar glufur á vörn andstæðinga sinna. Íslenska liðið náði níu marka for- skoti á 22. mínútu sem neyddi Rúss- ana til að breyta leik sínum. Þeir fóru í að reyna að klippa Aron Pálm- arsson úr leiknum og auka hraðann sóknarlega og með því tókst aðeins að laga stöðuna á næstu mínútu. Það truflaði ekki lið Íslands sem setti aftur í gír og kom muninum aftur upp í sjö mörk áður en liðin gengu inn til búningsklefa. Í seinni hálf leik hélt íslenska liðið góðri stjórn á leiknum, rússneska liðið sýndi aldrei neinar tilraunir til að gera atlögu að forskoti Íslands sem hélt 6-10 marka forskoti eftir því sem líða tók á seinni hálfleikinn. Guðmundur nýtti tækifærið og kippti Aroni, Alexander Peterssyni og Björgvini Páli Gústavssyni út af en íslenska liðið sló ekki af og bætti hægt og bítandi við forskotið þar til leikurinn var flautaður af. Viggó Kristjánsson nýtti tækifærið vel í fjarveru Alexanders líkt og Viktor Gísli Hallgrímsson sem varði fimm af sex skotum Rússa eftir að Björg- vin Páll tók sér sæti á bekknum og munurinn fór upp í ellefu mörk. Heilt yfir getur Guðmundur verið afar ánægður með spilamennsku Íslands á báðum endum vallarins í gær. Öflug vörn Íslands aðstoðaði Björgvin Pál og Viktor Gísla sem stóðu vakt sína í markinu með prýði. Í sókninni hélt Ísland sjó þrátt fyrir tilraunir Rússa til að brjóta upp sóknaratlotur Íslands með því að klippa á Aron eftir að hafa horft upp á sýningu Arons í fyrsta leik. kristinnpall@frettabladid.is Reykspóluðu fram úr Rússunum Hornamaðurinn Bjarki Már Elísson kom inn í íslenska liðið í gær þegar Guðjón Valur Sigurðsson fékk hvíld og nýtti tækifærið vel. Árbæingurinn fagnar hér einu af sex mörkum sínum í leiknum í gær en hann og þeir Alexander Petersson og Sigvaldi Guðjónsson voru markahæstir. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Íslenska liðið fagnar ógurlega í leikslok og myndatökumanninn langar að slást í hópinn. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Strákarnir okkar stungu af strax á upphafsmín- útum leiksins í 34-23 sigri á Rússum í öðrum leik E-riðils á Evrópu- mótinu í handbolta. Rússarnir réðu illa við hraðan sóknarleik Ís- lands og voru snemma komnir í eltingarleik.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.