Fréttablaðið - 21.01.2020, Page 2

Fréttablaðið - 21.01.2020, Page 2
Veður Suðvestan 13-23 m/s, hvassast um landið norðvestanvert. Víða él, en yfirleitt skýjað með köflum austanlands. Hiti kringum frost- mark. SJÁ SÍÐU 14 NÁNAR Í SÍMA 585 4000 EÐA Á UU.IS SUMARDVÖL VIÐ GARDA ÍTALÍA HEILLAR GISTING Á 4* HÓTELI, GÖNGUFERÐIR OG SKOÐUNARFERÐIR, VIÐ EITT FALLEGASTA STÖÐUVATN ÍTALÍU 10. - 17. JÚNÍ 7 NÆTUR OG 8 DAGAR Viðurkenning frá UNICEF ÍÞRÓTTIR Óvenjulegar nágranna- erjur skekja nú Faxafen 12 sem leng i hef u r ver ið höf uðv íg i íslenskrar skáklistar. Þar hafa Tafl- félag Reykjavíkur og Skáksamband Íslands verið til húsa í áratugi en að auki hefur fjölbreytt atvinnustarf- semi verið rekin í húsinu. Skáklistin er iðja sem krefst mik- illar einbeitingar og því eru skák- menn mjög viðkvæmir fyrir hvers kyns hávaða. Forsvarsmenn skák- hreyfingarinnar hrósuðu því happi þegar líkams- og hugræktarstöðin Primal f lutti í næsta rými við aðal- keppnissal Taflfélags Reykjavíkur. Ástæðan var sú að sá kvittur komst á kreik að stöðin hygðist leggja áherslu á hugrækt og jóga, sem í huga leikmanna ætti jú að þýða ró og frið. Tvær grímur runnu þó á skákmenn þegar í ljós kom að um líkamsræktarstöð væri að ræða þar sem hávær tónlist spilaði stóra rullu. Botninn tók þó endan- lega úr þegar dýrsleg öskur fóru að berast úr salarkynnum nágrannans á meðan mikilvægasta mót ársins var í gangi. Undanfarin misseri hafa for- svarsmenn Taflfélags Reykjavíkur og Primal reynt að höggva á hnút- inn án þess að niðurstaða hafi feng- ist. Eins og áður segir sauð í raun upp úr í fjórðu umferð Skákþings Reykjavíkur, elsta og virtasta móts ársins í íslensku skáklífi, sem fram fór í síðustu viku. Á meðan tæplega sextíu skák- menn á öllum aldri börðust til síð- asta blóðdropa í huganum fór fram tvöfaldur tími í því sem skákmenn töldu að væri öskurjóga í salnum við hliðina. „Ég hef bara uppi efasemdir um hvert við erum komin sem samfélag,“ segir skákmeistarinn Sigurbjörn Björnsson aðspurður um hans upplifun af öskrunum. Alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjart- ansson var beygður eftir umferð- ina. „Þetta voru eins og óhljóð í dýrum,“ segir Davíð. Ríkharður Sveinsson, formaður Taf lfélags Reykjavíkur, vildi þó ekki gera mikið úr málinu og sagð- ist bjartsýnn á að lausn fyndist. Þór Guðnason, einn eigenda Pri- mal, segir að forsvarsmenn líkams- ræktarstöðvarinnar séu allir af vilja gerðir til þess að leysa málið. „Ég veit ekki hvaðan sá misskilningur kom að við værum jógastöð. Það eru vissulega kenndir jógatímar hjá okkur en fyrst og fremst erum við líkamsræktarstöð,“ segir Þór. Hann segir að öskrin megi rekja til námskeiðs í leikrænni tjáningu sem hafi farið fram í salarkynnum þeirra en því námskeiði sé lokið. „Vandamálið er fyrst og fremst það að salurinn sem við erum í var áður í eigu taf lfélagsins. Þegar rýmið var hólfað niður var ekki nægilega vel gætt að hljóðeinangrun og því er mjög hljóðbært á milli þessara salarkynna. Það er eitthvað sem ég vona að verði bætt úr,“ segir Þór. bjornth@frettabladid.is Skákmenn ósáttir við hávært öskurnámskeið Höfuðvígi skáklistarinnar í Faxafeni nötrar vegna háværrar tónlistar og öskra frá fjölbreyttu námskeiðahaldi líkamsræktarstöðvarinnar Primal sem er í sama húsi. Þetta voru eins og óhljóð í dýrum, segir bugaður skákmeistari. Ég hef bara uppi efa- semdir um hvert við erum komin sem samfélag. Sigurbjörn Björnsson, skákmeistari Hávær öskur hafa sett strik í reikninginn hjá Taflfélaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR VELFERÐARMÁL Þrjú smáhýsi fyrir skjólststæðinga velferðarsviðs Reykjavíkurborgar mega standa á horni Kjalarvogs og Kleppsmýrar- vegar í hinni nýju Vogabyggð sam- kvæmt ákvörðun stjórnar Faxa- flóahafna sem tók vel í erindi um að breyta deiliskipulagi í þessu skyni. „Svæðið sem um ræðir er tún á borgarlandi og ekki í formlegri notkun,“ segir í tillögu um breyt- inguna á deiliskipulaginu. „Ekki er gert ráð fyrir að búseta sé varanleg notkun á lóðinni,“ segir þar enn- fremur. – gar Smáhýsi á túni við Elliðavog Horft yfir Elliðaárvoginn úr suðri. SAMFÉLAG „Það hefur náðst alveg ótrúlegur árangur í forvörnum á Íslandi hjá unglingum. Þessi árang- ur er orðinn heimsþekktur. Við megum ekki sofna á verðinum og glutra þessu niður,“ segir Ársæll Már Arnarson, prófessor við menntavís- indasvið Háskóla Íslands. Ársæll er einn fyrirlesara á málþingi á vegum IOGT sem haldið verður á Grand Hóteli á morgun, aðgangur er frír en skráningu lýkur í dag. „Við höfum fylgst með þróuninni frá því við byrjuðum að taka þátt í Evrópsku vímuefnarannsókninni árið 1995. Í fyrra var fyrsta árið þar sem við sáum örlitla aukningu í unglingadrykkju. Núna stöndum við frammi fyrir þeirri áskorun að glutra ekki niður okkar stórkostlega árangri,“ segir Ársæll. Hvert ár sem líður þar til unglingur fer að drekka skiptir miklu fyrir heilsu út ævina. Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisaug- lýsingum, heldur einnig erindi. Hann segir áfengisframleiðendur beina auglýsingum að ungmennum í gegnum samfélagsmiðla. „Þetta er heimur sem fullorðna fólkið sér ekki mikið inn í. Ég efast um að allir átti sig á því hversu mikið er um þetta, það er ekki verið að beina þessum auglýsingum að fullorðnu fólki í sama mæli.“ Árni telur að vaxandi unglinga- drykkju megi rekja til auglýsinga á samfélagsmiðlum. „Við þurfum að taka það mjög föstum tökum. Fíkn er góð söluvara.“ – ab Megum ekki glutra niður árangrinum Í fyrra var fyrsta árið þar sem við sáum örlitla aukningu í unglingadrykkju. Ársæll Már Arnarson, prófessor Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra, voru í gær af hentar undirskriftir á tólfta þúsund Íslendinga úr of beldisvarnarátaki UNI- CEF. Við sama tilefni af henti Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri samtakanna, Gísla Arnóri Víkingssyni, eiginmanni Guðrúnar Ögmundsdóttur sem er nýlátin, viðurkenningu Henriettu Fore, framkvæmdastjóra UNICEF, fyrir störf Guðrúnar í þágu barna heimsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 2 1 . J A N Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.