Fréttablaðið - 21.01.2020, Side 14
Margir stjórnendur kannast við það álag sem fylgir skiladags-
etningum bókhalds eins og vegna
virðisaukaskatts og ársuppgjörs.
Tímaskortur vegna mikils álags í
starfi, veikindi lykilstarfsmanna,
breytingar á skattareglum og
skilafrestir geta aukið á þessar
áhyggjur. Útvistun bókhalds er
því góður kostur til að létta af sér
álagi og skapa aukinn tíma fyrir
stjórnendur.
„PwC Bókhald & laun kynnir nú
nýjar rafrænar lausnir við færslu
bókhalds,“ segir Vilborg Jóns-
dóttir, sviðsstjóri PwC Bókhalds &
launa. „Þar er bókhaldinu sinnt á
einfaldan og öruggan hátt á meðan
stjórnendur geta einbeitt sér að
rekstrinum og fengið góða yfirsýn
yfir stöðuna.“
Víðtæk reynsla PwC
„Hjá PwC á Íslandi starfa um 120
manns við endurskoðun, bók-
hald, fyrirtækja- og skattaráð-
gjöf. Bókhald & laun er vaxandi
þáttur í starfsemi PwC og nú starfa
um 30 starfsmenn við bókhald
og launavinnslur á skrifstofum
okkar víða um land,“ segir Vil-
borg. „Þessi hópur býr yfir langri
og fjölbreyttri reynslu af bók-
haldi, launavinnslu, uppgjöri og
skattskilum. Fyrirtækið hefur lagt
áherslu á nálægð við viðskipta-
vini og þjónustunni er sinnt á
starfsstöðvum PwC í Reykjavík,
Selfossi, Hvolsvelli, Vestmanna-
eyjum, Reykjanesbæ, Akureyri og
Húsavík.
Þjónustan er auk þess persónu-
leg, þar sem hver viðskiptavinur
fær úthlutað sínum bókara,“ segir
Vilborg. „Með því byggist upp
þekking og reynsla á starfsemi við-
skiptavinarins, þjónustan verður
persónulegri og hún er löguð að
þörfum hvers og eins.“
Rafræn bókhaldsþjónusta
„PwC Bókhald & laun kynna nú
nýja leið í bókhaldsþjónustu sem
byggir á rafrænum lausnum og
pappírslausu bókhaldi,“ segir
Vilborg. „Við erum gríðarlega
spennt fyrir þessari nýju þjónustu,
sem mun opna ýmsa möguleika
á aukinni þjónustu við viðskipta-
vini okkar.
Þjónustan felst í færslu fjár-
hags-, viðskiptamanna- og lánar-
drottnabókhalds,“ segir Vilborg.
„Í grunninn byggir þjónustan á
móttöku og sendingu rafrænna
reikninga, innlestri reikninga og
gagna á tölvutæku formi ásamt
rafrænu samþykktarkerfi og
bankalausnum.
Stefnan er sett á pappírslaust
bókhald, en gögn og reikningar
á rafrænu formi eru um og yfir
90% allra færslna í bókhaldi í dag.
Möppurnar heyra því sögunni til,“
segir Vilborg. „Þessi nýja þjónusta
okkar býður upp á færslu bókhalds
í rauntíma í stað bókunar á tveggja
mánaða fresti í kringum virðis-
aukaskattsskil eins og algengt er.
Stjórnendur fá því betri yfirsýn
og tækifæri til að bregðast hratt
við þeim frávikum sem kunna að
koma fram.
Kerfið er hýst í skýjalausn og
því aðgengilegt fyrir viðskipta-
vini okkar hvar sem er í gegnum
örugga innskráningu,“ útskýrir
Vilborg. „Í þjónustunni felst einnig
að skjalaskipti milli viðskiptavina
og bókara verða einföld, þægileg
og örugg.
Mikilvægt er fyrir rekstraraðila
að hafa góða yfirsýn yfir rekstur-
inn á hverjum tíma og stjórnend-
um býðst að hafa mælaborð með
lykilupplýsingum úr rekstrinum
sem hægt er að laga að þörfum
hvers viðskiptavinar og uppfærist
reglulega,“ bætir Vilborg við.
Nánari upplýsingar um þjónust-
una má finna á pwc.is/bokhald.
Launavinnsla og uppgjör
„Viðskiptavinahópur PwC Bók-
halds & launa er mjög fjölbreyttur
og verkefnin margbreytileg,“ segir
Vilborg. „Auk þess að sinna bók-
haldi sjáum við um útreikning
launa og innsendingu skilagreina
til skattyfirvalda og lífeyrissjóða
fyrir fjölda fyrirtækja, stofnana og
einstaklinga.
Enn fremur sinnum við sér-
fræðiþjónustu á sviði uppgjörs-
mála, hvort sem um er að ræða
gerð ársreikninga eða árshluta-
reikninga,“ segir Vilborg. „Í
tengslum við gerð ársreikninga
bjóðum við upp á gerð skattfram-
tala og skil á öllum þeim skýrslum
sem skattyfirvöld óska eftir frá
lögaðilum.
Í stuttu máli má segja að við
bjóðum upp á alla þjónustu til
viðskiptavina sem þeir þurfa
varðandi bókhald, laun, uppgjör
og skattskil,“ útskýrir Vilborg.
Ávinningur viðskiptavina
„Það eru spennandi tímar fram
undan hjá okkur með nýju raf-
rænu lausninni,“ segir Vilborg.
„Okkar ávinningur er að geta
bætt þjónustu við viðskiptavini,
minnkað kolefnisspor með papp-
írslausu bókhaldi og að geta nýtt
öflugan hóp okkar og þekkingu
og reynslu starfsfólks óháð stað-
setningu þess.
Ávinningur viðskiptavina er
margvíslegur, hann fær stöðu
bókhaldsins uppfærða með
reglubundnum hætti, tryggt er að
gögnum sé skilað á réttum tíma,
minni tími fer í utanumhald gagna
og hann hefur tækifæri til að hafa
betri yfirsýn yfir stöðu rekstursins
á hverjum tíma,“ segir Vilborg.
„Þannig léttum við álagi af við-
skiptavinum okkar.
Að lokum vil ég segja líkt og
kynningarorð okkar um þjónust-
una hljóma:
Taktu skrefið inn í framtíðina
með okkur, útvistaðu bókhaldinu
og njóttu þess að hafa meiri tíma
fyrir þig.“
Hjá PwC á Íslandi starfa um 120 manns við endurskoðun, bókhald og fyrirtækja- og skattaráðgjöf. Þar af starfa um 30 starfsmenn við bókhald og launavinnslu á skrifstofum PwC víða um land.
Þau búa yfir langri og fjölbreyttri reynslu af bókhaldi, launavinnslu, uppgjöri og skattskilum og veita persónulega þjónustu sem er löguð að þörfum hvers og eins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
PwC Bókhald &
laun kynna nú
nýja leið í bókhalds
þjónustu sem byggir á
rafrænum lausnum og
pappírslausu bókhaldi.
Við erum gríðarlega
spennt fyrir þessari nýju
þjónustu, sem mun opna
ýmsa möguleika á auk
inni þjónustu við við
skiptavini okkar.
Ávinningur
viðskiptavina er
margvíslegur, hann fær
stöðu bókhaldsins
uppfærða með reglu
bundnum hætti, tryggt
er að gögnum sé skilað á
réttum tíma, minni tími
fer í utanumhald gagna
og hann hefur tækifæri
til að hafa betri yfirsýn
yfir stöðu rekstursins á
hverjum tíma.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . JA N ÚA R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R