Fréttablaðið - 21.01.2020, Síða 18
Ef neglur eru inn-
grónar þarf að leita
til fótaaðgerðasérfræð-
ings. Sömuleiðis ef
sveppasýning hefur
komist í nögl og hún
þykknað.
Margir venja sig á að ganga mikið berfættir, sérstak-lega í góðu veðri á sólar-
strönd. Það getur krafist heilmik-
illar umhirðu. Fótsnyrting er ekki
dekur heldur nauðsynleg til að
fjarlægja harða og sprungna húð
og þurr naglabönd. Einnig þarf að
klippa neglurnar reglulega. Það er
mjög gott að fara annað slagið til
fótasérfræðings og gæta svo vel að
umhirðunni þess á milli.
Þegar fótsnyrtingin hefst byrjar
hún á góðu fótabaði með mýkjandi
sápu. Fæturnir eru í baði í tíu
mínútur áður en snyrtingin hefst.
Baðið mýkir húðina. Ef góð sápa
er sett í vatnið hefur hún mjög góð
áhrif á harða húð en mjög gott ráð
er að setja líka smávegis af ólífu-
eða kókosolíu út í vatnið.
Eftir baðið þarf að fjarlægja
alla harða húð en gæta verður
þess að fjarlægja ekki of mikið
svo ekki myndist sár. Vinna þarf
á sprunginni og harðri húð með
mjúkum höndum. Ekki er gott
að vera of harðhentur. Til að laga
naglaböndin er hægt að nota
þurrt handklæði og nudda vel yfir
neglurnar. Einnig er hægt að nota
sérstök naglabandaskæri. Loks
Huga þarf
að tánum í
vetrarkulda
Þegar kólnar í veðri þarf að gæta vel
að húðinni. Andlitið er viðkvæmt
fyrir frosti en fæturnir þurfa ekki síð-
ur umhirðu. Þeir verða oft þurrir eða
sprungnir. Þá getur fagfólk bjargað.
Það getur verið
afslappandi
og þægilegt
að leggjast
í stólinn hjá
fótaaðgerðar-
fræðingi eða
snyrtifræðingi í
fótadekur.
MYND/GETTY
Fæturnir verða mjög mjúkir og fínir eftir heimsókn til fótaaðgerðafræðings sem kann réttu tökin við umhirðuna.
þarf að klippa fallega allar neglur
en ekki má klippa þær of stuttar.
Það getur verið sársaukafullt ef
klippt er ofan í skinnið. Klippið
neglurnar beint yfir en ekki í boga.
Ef neglur eru inngrónar þarf að
leita til fótaaðgerðasérfræðings.
Sömuleiðis ef sveppasýning hefur
komist í nögl og hún þykknað.
Best er að sýna húðlækni sveppa-
sýkingu því mikilvægt getur verið
að fara á sérstakan lyfjakúr til að
koma í veg fyrir að sýkingin breiði
úr sér.
Þegar naglasnyrtingunni er
lokið þarf að nudda fæturna með
góðu fótakremi þannig að þeir
verði mjúkir. Kókosolía er góð á
fæturna. Fallegt naglalakk setur
endapunktinn á fótsnyrtinguna.
Þá er rétt að minna á að eftir hverja
sturtu þarf að þurrka vel á milli
tána.
Margir ganga alltaf berfættir
heima hjá sér. Það er miklu þægi-
legra að ganga þannig um þegar
maður veit að fæturnir eru vel
hirtir og neglurnar fallega lakk-
aðar. Það á auðvitað líka við í
sundi, leikfimi eða á sólarströnd.
DAG HVERN LESA
96.000
ÍSLENDINGAR
FRÉTTABLAÐIÐ
AÐ MEÐALTALI
HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP APR-JÚN 2019, 12-80 ÁRA,
ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019
FRÉTTABLAÐIÐ - MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . JA N ÚA R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R