Fréttablaðið - 31.01.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 31.01.2020, Blaðsíða 6
Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Folaldakjöt af nýslátruðu ... hjá ok ku r í d a g H já b ó nd a í gær ... 2199 kr.kg Folalda Piparsteik innralæri AÐALFUNDUR Félags atvinnurekenda fer fram í Nauthóli, Nauthólsvegi 106, kl. 16.30 þriðjudaginn 11. febrúar næstkomandi. Dagskráin er eftirfarandi, skv. lögum FA: 1. Skýrsla stjórnar um starf félagsins árið 2019. 2. Ársreikningur lagður fram til samþykktar. 3. Fjárhagsáætlun lögð fram til samþykktar. 4. Lagabreytingar. 5. Kjör þriggja meðstjórnenda í stjórn félagsins. 6. Kjör skoðunarmanns. Við vekjum athygli á opnum fundi sem fram fer á undan aðalfundinum, kl. 14, undir yfirskriftinni „Grænt frumkvæði fyrirtækja“. Skráning á báða fundina á atvinnurekendur.is Dagskrá 14.00 Setning fundarins Magnús Óli Ólafsson, formaður FA 14.05 Allir elska Ísland Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra 14.15 Gagnvart hvaða vörumerkjum eru Íslendingar jákvæðastir? Ólafur Elínarson, sviðsstjóri markaðsrannsókna hjá Gallup 14.35 Tryggð og ást í viðskiptasamböndum Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri geoSilica Iceland Aðalfund Félags atvinnurekenda ber að þessu sinni upp á Valentínusardaginn 14. febrúar og þá er vel við hæfi að opinn fundur, sem haldinn er á undan aðalfundarstörfum, fjalli um tilfinningasamband neytenda og fyrirtækja. Við fræðumst meðal annars um tryggð neytenda við vörumerki og heyrum í nokkrum frumkvöðlum, sem hafa ýmist fundið óvænta syllu á markaðnum eða breytt viðkomandi markaði. Fundurinn fer fram á Nauthóli kl. 14-16. 14.55 Eins og heitar lummur Ágúst Einþórsson, framkvæmdastjóri Brauð & co. 15.15 Elskar ríkið samkeppni? Ómar Hjaltason, framkvæmdastjóri Baseparking 15.35 Endalok heimsins Óli Rúnar Jónsson, framkvæmdastjóri Borg brugghúss 15.55 Ást á frelsinu í 90 ár Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Skráning á vef Félags atvinnurekenda, www.atvinnurekendur.is Fundarstjóri er Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Hvíta hússins. Aðalfundur FA hefst kl. 16.30 að loknu ka‘hléi MARKAÐURINN HV AÐ ELSKAR Aðalfundur Félags atvinnurekenda 14. febrúar 2019 Bretar ganga út Andstæðingar Brexit efndu til mótmæla fyrir utan breska þinghúsið í London í gær þar sem útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu var mótmælt. Bretland og Norður-Írland munu ganga úr sambandinu klukkan ellefu í kvöld, 188 vikum eftir að Brexit var samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 23. júní árið 2016. NORDICPHOTOS/GETTY DÓMSMÁL Héraðssaksóknari hefur ákært fjárfestinn Bjarna Ákason fyrir meiriháttar brot gegn skatta- lögum með því að hafa stungið um 44 milljónum króna undan skatti. Forsaga málsins er löng. Bjarna er gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum gjaldárin 2008, 2010 og 2011 vegna tekna sem var aflað árin á undan. Í ákæru er haldið fram að Bjarni hafi tekið út fjárhæðir sem nemur sam- tals 115 milljónum króna á þessum árum úr tveimur eignarhaldsfélög- um og hafi hann látið undir höfuð leggjast að gefa tekjurnar upp til skatts. Þannig hafi hann komist hjá því að greiða tæpar 44 milljónir króna í skatt. Að sögn Bjarna má rekja málið til þess að hann hafi haft frumkvæði af því að leiðrétta skattframtöl sín og fyrirtækja sinna á sínum tíma. „Það liggur fyrir að endurskoð- endur mínir gerðu mistök á sínum tíma. Ég hafði sjálfur frumkvæði að því að óska eftir leiðréttingu fram- talanna á sínum tíma,“ segir hann. Niðurstaða skattsins hafi verið sú að heimila leiðréttingu á skatt- framtölum eignarhaldsfélaganna en ekki á hans persónulega framtali. „Í framhaldinu var ég dæmdur til þess að greiða fjármagnstekjuskatt af upphæðinni sem ég og gerði,“ segir Bjarni. Hann hafi þar með talið mál- inu lokið en það var öðru nær. „Síðan þá hefur þessi vitleysa gengið fram og til baka. Síðan var úr skurðað um að ég þyrfti að borga tekjuskatt af upphæðinni og það gerði ég. Ég hef síðan tvisvar fengið endurgreitt frá Ríkisskattstjóra með leiðréttingum eftir úrskurð yfir- skattanefndar,“ segir Bjarni sem er afar ósáttur við „norna veiðarnar“ sem síðan hafi haldið áfram. „Þessi ákæra héraðssaksóknara er því í raun tilraun til þess að dæma mig í þriðja sinn fyrir mál sem ég hafði frum- kvæði að að tilkynna sjálfur. Það á ekki að þekkjast í réttar ríkjum.“ Hann gagnrýnir einnig harðlega hvað málið hefur velkst lengi um í kerfinu. „Ég var 47 ára gamall þegar ég hóf þetta mál og er að verða sex- tugur núna. Samt er málinu hvergi nærri lokið,“ segir Bjarni. Hann seg- ist ætla að verjast af hörku í réttarsal og síðan muni hann kæra málsmeð- ferðina. „Ég ætla að fara í skaðabóta- mál. Ég fer með þetta mál alla leið.“ björnth@frettabladid.is Boðar bótakröfu eftir langdregið skattamál Héraðssaksóknari hefur ákært fjárfestinn Bjarna Ákason fyrir 44 milljóna skattsvik. Bjarni segir málið réttarfarslegan skandall. Hann muni fara með það alla leið. Tekist verður á um frávísunarkröfu málsins í héraðsdómi í dag. Þessi ákæra héraðs- saksóknara er því í raun tilraun til þess að dæma mig í þriðja sinn fyrir mál sem ég hafði frumkvæði að að tilkynna sjálfur. Bjarni Ákason JARÐHRÆRINGAR Enn mælist land- ris vestan við fjallið Þorbjörn en lítil jarðskjálftavirkni var í gær við Grindavík að því er fram kom í færslu jarðvísindamanns hjá Veður- stofunni um kvöldmatarleytið í gær. „Með auknu eftirliti berast nú f leiri gögn í hús sem gefa skýrari mynd af þróun mála við Þorbjörn. Nýjasta GPS-úrvinnslan sýnir áframhaldandi landris á svæðinu vestan við Þorbjörn. Í heildina hefur land risið um 3 sentimetra frá 20. janúar,“ segir á vedur.is. „Búast má við áframhaldandi skjálftavirkni á svæðinu og að áfram finnist stærstu skjálftarnir í hrinunni í grennd við Grindavík. Líklegasta skýring þessarar virkni er kvikuinnskot á þriggja til fimm kílómetra dýpi rétt vestan við Þor- björn. Algengast er að kvikuinn- skotavirkni ljúki án eldsumbrota.“ – gar Lítil skjálftavirk i í gær en áfram mælist landris 3 1 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.