Skessuhorn - 14.08.2019, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 14. áGúSt 20198
Aflatölur fyrir
Vesturland
3. – 9. ágúst
tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 11 bátar.
Heildarlöndun: 8.570 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 2.784
kg í einni löndun.
Arnarstapi: 8 bátar.
Heildarlöndun: 8.286 kg.
Mestur afli: Vísir SH: 2.898
kg í einni löndun.
Grundarfjörður: 9 bátar.
Heildarlöndun: 11.469 kg.
Mestur afli: Margrét SH:
2.049 kg í þremur löndun-
um.
Ólafsvík: 23 bátar.
Heildarlöndun: 171.505 kg.
Mestur afli: Júlli Páls SH:
62.981 kg í átta löndunum.
Rif: 14 bátar.
Heildarlöndun: 39.286 kg.
Mestur afli: Kári SH: 13.314
kg í fjórum löndunum.
Stykkishólmur: 17 bátar.
Heildarlöndun: 55.122 kg.
Mestur afli: Blíða SH:
15.477 kg í fimm löndunum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Dögg SU – RIF: 10.817
kg. 9. ágúst.
2. Brynja SH – ÓLA: 10.072
kg. 8. ágúst.
3. Júlli Páls SH – ÓLA:
10.055 kg. 8. ágúst.
4. Júlli Páls SH – ÓLA:
9.929 kg. 6. ágúst.
5. Júlli Páls SH – ÓLA:
9.676 kg. 7. ágúst.
-arg
Farfuglar stóðu í síðustu viku fyr-
ir Vatnsdögum í þeim tilgangi að
vekja athygli gesta farfuglaheimila á
mengun af völdum plasts og hvetja
þá til að nota brúsa í stað þess að
kaupa vatn í einnota plastflöskum.
Einnig var tilgangurinn að benda
ferðamanninum á góða kranavatnið
okkar og gildi þess að vera ábyrg-
ir ferðamenn. á síðasta ári vöktu
Farfuglaheimilin athygli á plast-
pokalausa deginum sem var haldin
í júlí. Það var gert með því að gefa
gestum sem komu á Farfuglaheim-
ilin taupoka. Í Vatnsvikunni fengu
gestir afhenta fjölnota álbrúsa sem
auðvelt er að hafa með sér og fylla
á hvar sem er. Þá hvöttu farfugla-
heimilin ferðamenn að nota brúsa
í stað þess að kaupa vatn í einnota
plastflöskum, sem enda langflestar í
landfyllingu, sagði í tilkynningu frá
farfuglaheimilunum á Íslandi.
mm
Möns vagninn á Arnarstapa hlaut
fyrir skömmu frábæra viðurkenn-
ingu frá trip Advisor en álitsgjaf-
ar á vefnum gefa matarvagning-
um fimm stjörnur af fimm mögu-
legum. Guðjón Jóhannesson rek-
ur Möns vagninn ásamt foreldrum
sýnum, þeim Herdísi Þórðardóttur
og Jóhannesi S Ólafssyni frá Akra-
nesi. „Við höfum verið með vagn-
inn hérna á Arnarstapa frá árinu
2016,“ segir Guðjón og segir hann
reksturinn hafa gengið mjög vel öll
þessi ár. „Það hefur verið stígandi í
gestafjölda til okkar og í ár er áber-
andi að íslensku ferðafólki hefur
verið að fjölga, enda veðrið hér um
vestanvert landið verið upp á sitt
allra besta í sumar,“ segir Guðjón.
„Við kaupum fiskinn af Hraðfrysti-
húsi Hellissands og gerum sjálf
orly deigið,“ bætir hann við. Einn-
ig er hægt að kaupa hamborgara og
franskar í Möns vagninum.
af
Jón Sindri Emilsson hefur verið
ráðinn í starf aðstoðarmanns bæj-
arstjóra í Stykkishólmsbæ og tekur
hann við starfinu af Hermanni Her-
mannssyni. Starfið var auglýst í vor
og barst 41 umsókn. Jón Sindri er
fæddur og uppalinn í Stykkishólmi,
giftur Heiðu Maríu Elfarsdóttur og
saman eiga þau tvö börn. Jón Sindri
gekk í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
í Grundarfirði og útskrifaðist það-
an árið 2010. Þá fluttu þau hjón-
in norður á Akureyri þar sem Jón
Sindri lagði fyrir sig fjölmiðlafræði
í Háskólanum á Akureyri og Heiða
María lærði hjúkrunarfræði. „árið
2015, þegar við áttum von á barni
númer tvö ákváðum við að flytja aft-
ur heim í Stykkishólm og bara taka
þá vinnu sem okkur myndi bjóðast
á þeim tíma. Heiða fór að vinna á
sjúkrahúsinu hér og ég fékk vinnu
á Hótel Egilsen. Þar fékk ég að-
eins að pota mér inn í markaðsmál
og vera með puttana í samfélags-
miðlum hótelsins, svona aðeins að
nýta menntunina sem ég hef,“ segir
Jón Sindri sem einnig var á þessum
tíma sjálfstætt starfandi blaðamað-
ur fyrir Skessuhorn. „Ég tók að mér
að skrifa nokkrar fréttir þegar eitt-
hvað var um að vera hér í Hólmin-
um,“ segir hann kátur.
Hóf störf á
sunnudagskvöldi
árið 2017 ákvað Jón Sindri að
skipta um starfsvettvang og færði
sig yfir í Arion banka þar sem hann
hefur starfað síðan. Núna tekur
hann enn á ný aðra stefnu og segist
mjög spenntur fyrir komandi tím-
um. „Þegar ég sá þessa stöðu sem
aðstoðarmann bæjarstjóra aug-
lýsta þurfti ég í rauninni ekkert að
hugsa mig um, það kom ekki ann-
að til greina en að sækja um,“ seg-
ir Jón Sindri. „Þetta er áhugavert
og spennandi starf þar sem ég mun
fá að nýta mína menntun. Ég hef
lítið fengið að nota menntunina
mína fram til þessa svo ég er mjög
spenntur,“ heldur hann áfram.
En hvað gerir aðstoðarmaður
bæjarstjóra? „Ég á í rauninni enn
eftir að komast almennilega að því,“
svarar Jón Sindri og hlær. „Þetta er
fjölbreytt starf sem er einmitt það
sem ég er hvað spenntastur fyrir.
Ég mun sjá um ýmis markaðs- og
kynningarmál auk þess sem sam-
félagsmiðlar verða í mínum hönd-
um. Ég mun sjá um upplýsinga-
veitu bæjarins og sjá um að miðla
upplýsingum bæði hér innan ráð-
hússins, til bæjarbúa og annarra,“
bætir hann við. Fyrsta verkefni Jóns
Sindra í nýju starfi var að mæta
í umhverfisgöngu á sunnudags-
kvöldið síðasta þar sem íbúar gátu
gengið um bæinn ásamt fulltrúum
bæjarins og farið yfir þá hluti sem
huga þarf að í bænum. „Þetta er
mjög skemmtilegt fyrsta verkefni,“
segir Jón Sindri.
arg
Guðjón kátur með fiskréttinn sem gestir eru yfir sig hrifnir af.
Möns fær fimm stjörnur á Trip Advisior
Jóhannes S Ólafsson, Herdís Þórðardóttir og Guðjón sonur þeirra framan við vagninn.
Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri í Stykkishólmi t.v. ásamt Jóni Sindra Emilssyni nýráðnum aðstoðarmanni sínum.
Ljósm. sá.
Nýr aðstoðarmaður bæjarstjóra í Stykkishólmi
Farfuglar stóðu fyrir vatns-
viku og gáfu vatnsbrúsa