Skessuhorn


Skessuhorn - 14.08.2019, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 14.08.2019, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 14. áGúSt 201930 Mt: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Hvenær byrjar haustið? Spurni g vikunnar (Spurt á Akranesi) Ingi Björn Róbertsson „Þegar ég sé graða bændur á haustin, nei, ég meina glaða.“ Árný Stefanía I. Ottesen „Þegar skólinn byrjar.“ Katla Lind Björnsdóttir „Í september því þá fara laufin að detta af trjánum.“ Erna Guðnadóttir „Í október.“ Birkir Guðmundarson „Það var að byrja.“ Undir lok júlí var Flemming pútt- mótið haldið á Hvammstanga. Leiknar voru tvisvar sinnum 18 holur. Að sögn Flemming Jessen mótsstjóra gekk mótshald vel, þrátt fyrir að veður hafi verið heldur leiðinlegt, vindur og kalt. „Þátttak- endur í ár voru þremur færri en síð- asta ári. á meðan að á mótinu stóð gæddu þátttakendur sér á gulrótum og ídýfu og virtust allir njóta vel,“ sagði Flemming. Um skráningu, útreikning, ljósmyndum, veitingar og verðlaunaafhendingu sáu Elín Jóna Rósinberg, Guðrún Ýr Pét- ursdóttir, Kristianna Jessen, Krist- ín Ingibjörg Baldursdóttir og Þór- dís Benediktsdóttir. Helstu úrslit urðu þau að í karla- flokki varð Guðmundur Bachmann í fyrsta sæti og Indriði Björnsson í öðru sæti eftir bráðabana við Þor- berg Þórðarson. Í flokki 16 ára og yngri drengja varð Gunnar Erik Guðmundsson á Hvammstanga í fyrsta sæti og Hrafnhildur Í Harð- ardóttir í stúlknaflokki. Í kvenna- flokki sigraði Þóra Stefánsdóttir, Lilja Ólafsdóttir varð önnur og El- ínborg Ólafsdóttir þriðja. mm Drífa Harðardóttir úr Badminton- félagi Akraness ásamt Erlu Björg Hafsteinsdóttur úr Badminton- félagi Hafnarfjarðar keppti fyrir Ís- lands hönd og stóðu uppi sem sigur- vegarar á heimsmeistaramóti 40 ára og eldri í tvíliðaleik kvenna í bad- minton. Þær stöllur sigruðu Hel- enu Abusdal frá Noregi og Kötju Wengberg frá Svíþjóð í úrslitaein- víginu sem fram fór á sunnudaginn. Erla og Drífa unnu fyrstu lotuna 24-22 eftir mjög spennandi leik og unnu svo seinni lotuna mjög sann- færandi 21-10. Mótið fór fram í Póllandi dagana 4.-11. ágúst. glh Hið árlega Hreppslaugarhlaup verður fimmtudaginn 15. ágúst. Hlaupið hefst kl. 18:00 við Hrepps- laug í Skorradal. Að hlaupi loknu er boðið í sund í hina gömlu og margrómuðu Hreppslaug. Nán- ari upplýsingar og skráning er á hlaup.is Vegalengdir í hlaupinu verða 14,2 km, 7 km og 3 km með tíma- töku. Drykkjarstöð verður í lengra hlaupinu. Verðlaun verða veitt fyr- ir fyrsta sæti karla og kvenna í eft- irfarandi aldursflokkum: 18 ára og yngri, 19-39 ára og 40 ára og eldri. mm Knattspyrnufélag ÍA hefur samið við Sindra Snæ Magnússon um að leika með liði Skagamanna til ársins 2021. Hann kemur til ÍA frá ÍBV. Sindri Snær er fæddur árið 1992 og leikur stöðu miðjumanns. Hann hefur á sínum ferli leikið 200 leiki fyrir ÍBV, Keflavík og Breiðablik og skorað 19 mörk í þeim leikjum. kgk/ Ljósm. Eyjafréttir. Snæfellingar unnu stórsigur á KM í 12. umferð fjórðu deildar karla í knattspyrnu og hrifsuðu í leiðinni toppsætið til sín á ný frá Hvíta ridd- aranum. Leikið var á Stykkishólms- velli á laugardaginn. Fyrsta mark leiksins kom hjá Hólmurum á 27. mínútu. Sigurjón Kristinsson kom þá sínum mönnum yfir. tveimur mínútum síðar jafnaði Orats Reta Garcia metin fyrir KM. Rétt und- ir lok fyrri hálfleiks kom Alfredas Skroblas heimamönnum yfir á ný og leiddu þeir 2-1 í hálfleik. Í byrjun síðari hálfleiks var nokk- uð jafnræði með liðunum. Það var ekki fyrr en á 61. mínútu þegar næsta mark kom. Þá bætti Mat- teo tuta við þriðja marki Stykkis- hólmsliðisins. Níu mínútum síðar kom fjórða markið, þá frá Lovre Krncevic. á 82. mínútu skoraði Mi- los Janicijevic fimmta mark þeirra rauðklæddu og Lovre Krncevic bætti við tveimur mörkum á 87. og 89. mínútu. Matteo tuta skoraði svo annað mark sitt í uppbótartíma og kórónaði stórsigur með því að setja boltann í netið. Öruggur 8-1 sigur Hólmara staðreynd. Hólmarar fá kærkomin þrjú stig í B-riðli fjórðu deildar en mik- il barátta er á milli Stykkishólms- liðisins, Hvíta Riddarans og Kor- máks/Hvatar um hvert þeirra fær sæti í úrslitakeppni fjórðu deildar. Einungis þrjú stig skilja að Snæfell sem er í efsta sæti og Hvíta ridd- arann sem eru í því þriðja en efstu tvö liðin fara áfram í úrlsitakeppn- ina. tvær umferðir eru eftir af hefðbundnum deildarleikjum og fá Snæfellingar botnlið Afríku til sín á Stykkishólsvöll næsta laugardag. Leikurinn hefst klukkan 16:00. glh Skallagrímur tapaði gegn KH í 16. umferð þriðju deildar karla í knattspyrnu þegar liðin mættust á Valsvelli í Reykjavík síðasta föstu- dag. Borgarnesliðið hefur átt erfitt tímabil til þessa og úrslit umferð- arinnar því á pari við árangur liðs- ins í sumar. Einu mörk leiksins komu ekki fyrr en í síðari hálfleik. Mías Ólaf- arson skoraði þau bæði á þriggja mínútna millibili. Fyrsta markið kom á 68. mínútu og það síðara á 71. mínútu. Ekki náðu Borgnes- ingar að svara fyrir sig og KH sigur staðreynd þegar leikurinn var flaut- aður af. Eftir 16 umferðir verma Skalla- grímsmenn botnsætið með ein- ungis sex stig eða heilum sjö stig- um minna en KH sem eru í næst- neðsta sæti. Í næstu umferð spila þeir gul- klæddu gegn Sindra frá Höfn. Leikið verður í Borgarnesi á laug- ardaginn og hefst leikurinn klukk- an 14:00. glh Flemming púttmótið á Hvammstanga Hreppslaugarhlaupið framundan Snæfell tók toppsætið á ný Drífa og Erla eftir sigurinn á HM. Ljósm. Badmintonsamband Íslands. Heimsmeistarar í tvíliðaleik í badminton Sindri Snær til ÍA Tap hjá Skallagrími

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.