Skessuhorn - 14.08.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 14. áGúSt 2019 17
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Þekking
Gæði
Þjónusta
Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388
Upphaf haustannar 2019
Fjölbrautaskóli Vesturlands verður
settur föstudaginn 16. ágúst.
Móttaka fyrir nýnema verður á sal skólans kl. 10.
Gert er ráð fyrir dagskrá með nýnemum til kl. 14 þennan dag.
Kennsla samkvæmt stundatöflu
hefst mánudaginn 19. ágúst.
Kynningarfundur fyrir nemendur sem hefja
nám með vinnu verður haldinn
þriðjudaginn 27. ágúst kl. 17.
Skólameistari
Fjölbrautaskóli Vesturlands
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til greiðslu fasteigna-
skatts til aðila með starfsemi á sviði menningar-, íþrótta-,
æskulýðs-, tómstunda- eða mannúðarmála.
Sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar á
þar til gerðu eyðublaði.
Umsóknarfrestur er til og með 8. september 2019.
Nánari upplýsingar er að finna á www.akranes.is
Styrkir til greiðslu
fasteignaskatts 2019
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
tindur Ólafur Guðmundsson á
Grund í Reykhólasveit útskrifað-
ist úr Reykhólaskóla síðastliðið vor
ásamt bekkjarfélögum sínum. Hann
er einn af þeim sem hneigist ekki
til bóknáms en er hæfileikamaður á
öðrum sviðum. tindur hefur mik-
inn áhuga á bílum og tækjum, kann
sitthvað fyrir sér í viðgerðum og
er margfalt fróðari um hvers kyns
ökutæki og vélar en flestallir sem
eru eldri en hann. Hann fékk því
í samráði við kennara að taka val í
bílasmíði í 10. bekk. Gerði hann sér
lítið fyrir og gerði upp Ford Rang-
er pallbíl, árgerð 2001. „Ég byrj-
aði að vinna í honum í fyrrasumar.
Þá reif ég pallinn af bílnum og tók
í gegn, sauð í götin og málaði svo
pallinn með svona bedliner. Síðan
gerði ég bílinn kláran fyrir spraut-
un, skar í brettin, gerði hann til-
búinn fyrir brettakanta og setti þá
síðan upp,“ segir tindur, sem nýtti
tækifærið og setti stærri dekk und-
ir bílinn en voru fyrir. „Bíllinn var
í svona sæmilegu ástandi þegar ég
fékk hann, en frekar ryðgaður. Aðal
verkið var að koma stærri dekkjum
undir hann,“ segir tindur.
Bíllinn í ágætu
standi núna
Hann varði fjórum klukkustundum
á viku í bílasmíðarnar, eða tveimur
tvöföldum kennslustundum í Reyk-
hólaskóla. „Síðan vann ég nú líka í
honum um helgar og á kvöldin,
þegar ég átti lausan tíma og nennti
því,“ segir hann léttur í bragði. Við
verkefni sitt naut tindur leiðsagnar
Bergs Þrastarsonar, bónda á Reyk-
hólum, sem jafnframt er bílasmíða-
meistari. Hilmir Hjaltason bifvéla-
virki og mágur tinds, aðstoðaði
hann við smá vélarbilun sem kom
upp. „Það var öryggi sem bilaði,
einhver tölvukubbur. En ég tók það
bara úr og beintengdi það. Þetta
var eina vélarbilunin sem ég veit
af,“ segir hann og hlær við. „Síð-
an var bara skipt um síur og olíur
og svona. Bíllinn er í ágætu standi
núna. Ég þarf að skipta um stýris-
stöng til að koma honum í gegn-
um skoðun og seinna meir að kíkja
á kúplinguna. Það hefur örugglega
aldrei verið skipt um hana og fer að
koma tími á það,“ segir tindur.
Ætlar að leggja
fagið fyrir sig
Aðspurður segir tindur að hon-
um hafi líkað vel að fá svona verk-
efni í skólanum. „Þetta var mjög
fínt og skemmtilegt bara. Ég klár-
aði bílinn reyndar á síðustu stundu.
Endaði á því að sprauta hann og var
síðan tvo daga að setja hann sam-
an aftur, þrífa hann og taka gólfið í
gegn,“ segir hann. „En mér fannst
miklu betra að fá að vera í þessu en
í handavinnu eða bóklestri,“ seg-
ir tindur, sem hefur í hyggju að
leggja fagið fyrir sig. „Ég ætla í
Borgarholtsskóla í haust að læra
bílasmiðinn, það er planið. Fyrstu
önnina verða reyndar einhver fög
sem gilda til stúdentsprófs, en eftir
það fæ ég að einbeita mér að verk-
legu,“ segir tindur Ólafur Guð-
mundsson að endingu. kgk
Tindur Ólafur fyrir framan Ford Ranger pallbílinn, árgerð 2001, sem hann gerði upp í 10. bekk.
Gerði upp bíl sem
verkefni í grunnskólanum
Byrjar í Borgarholtsskóla í haust og stefnir á bifreiðasmíði