Skessuhorn - 14.08.2019, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 14. áGúSt 201926
Verkefnið Umhverfisganga hefur
staðið yfir í Stykkishólmi síðan á
sunnudag og lýkur í dag, miðviku-
dag. Í göngunni fer Jakob Björg-
vin Jakobsson bæjarstjóri, ásamt
formönnum umhverfis- og nátt-
úrverndarnefndar og skipulags- og
byggingarnefndar Stykkishólms-
bæjar og öðrum fulltrúum bæjar-
ins, með íbúum um hverfi Stykk-
ishólmsbæjar og huga að nánasta
umhverfi. „tilgangur umhverfis-
göngu um hverfi Stykkishólmsbæj-
ar er að efna til samtals um nán-
asta umhverfi, hvað megi betur
fara í frágangi og umhirðu bæjar-
ins, auk þess að miðla upplýsing-
um frá Stykkishólmsbæ um fram-
kvæmdir,“ sagði í tilkynningu frá
Stykkishómsbæ í síðustu viku um
verkefnið.
mm
Unglingalandsmót UMFÍ var
haldið í 22. skipti á Höfn í Horna-
firði um Verslunarmannahelgina.
Þar komu saman börn, unglingar
og fjölskyldur til að skemmta sér
og taka þátt í hinum ýmsu íþrótta-
greinum, hefðbundnum og öðr-
um. Um 5.000 þátttakendur voru
skráðir í greinar þegar mótið hófst
formlega á föstudeginum en ung-
menni á aldrinum 11-18 ára gátu
tekið þátt. Héraðssamböndin þrjú á
Vesturlandi; Héraðssamband Snæ-
fells- og Hnappadalssýslu, Ung-
mennasamband Borgarfjarðar og
Ungmennasamband Dalamanna
og Norður-Breiðfirðinga, sendu
flottan og efnilegan hóp þátttak-
enda á mótið sem stóðu sig með
prýði.
Öflugur hópur
frá UMSB
Öflugur hópur um fimmtíu barna
og unglinga fór frá UMSB á mót-
ið og voru skráð í flestar þeirra
íþróttagreina sem boðið var upp á,
þar með talið frjálsar íþróttir, fót-
bolta, kökuskreytingar, strandblak,
strandhandbolta, körfubolta og
sund. árangur keppenda var stór-
góður þar sem UMSB átti fjöl-
marga sigurvegara á mótinu sem og
marga sem komust á pall. „Það var
gaman að sjá keppendur spreyta sig
í greinum sem þeir hafa ekki áður
stundað til gleði og gamans. Aðdá-
unarvert var að fylgjast með dygg-
um hópi foreldra sem stóð þétt-
ur við bakið á börnum sínum frá
morgni til kvölds en stuðningur
foreldra skiptir sköpum varðandi
íþróttaáhuga og -ástund barna,“
sagði Sigurður Guðmundsson,
framkvæmdastjóri UMSB í samtali
við Skessuhorn. á laugardagskvöld-
inu efndi UMSB til sameiginlegr-
ar grillveislu þar sem hópurinn átti
skemmtilega kvöldstund saman.
„UMSB fagnar því ákaft að
ákveðið hefur verið að Unglinga-
landsmót UMFÍ árið 2022 verði
haldið á sambandssvæði UMSB
í Borgarnesi. Næg verkefni eru
því framundan hjá UMSB þar
sem Landsmót UMFÍ 50+ verður
einnig haldið af UMSB árið 2020.
Gaman verður að taka vel á móti
keppendum og fylgdarmönnum
þeirra á næstu árum,“ bætir Sig-
urður við stoltur.
Flottur árangur
hjá HSH
Stór hópur frá Héraðssambandi
Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu
tók virkan þátt í Unglingalands-
mótinu. Kepptu krakkarnir meðal
annars í frjálsum íþróttum, körfu-
bolta og fótbolta, glímu, strandblaki
og kökuskreytingum svo fátt eitt sé
nefnt. Gekk hópnum almennt vel í
sínum greinum og skemmtu krakk-
ar, foreldrar og aðrir aðstandendur
sér stórvel á mótinu.
Efnileg ungmenni
hjá UDN
tuttugu og þrír keppendur tóku
þátt fyrir UDN og komust fimm
þeirra á verðlaunapall á mótinu.
ásamt góðri mætingu ungmenna
voru margir foreldrar og aðrir
stuðningsmenn sem gerðu sér ferð
á Höfn. Þá mættu 50 frá Reykhól-
um. Aníta Hanna Kristjánsdótt-
ir varð í 1. sæti í frisbígolfi og 2.
sæti í spjótkasti í flokki 14 ára. Jas-
mín Hall Valdimarsdóttir varð í 1.
sæti í glímu í flokki 11 ára og Borg-
hildur Birna Eiríksdóttir var einn-
ig í 1. sæti í pílukasti í flokki 11-18
ára. Katrín Einarsdóttir náði 2. sæti
í hástökki og 3. sæti í kúluvarpi í
flokki 13 ára og Grétar Jónatan
Pálmason vann til brons í 600 m í
11 ára flokki.
glh. Ljósm/ aðsendar.
Umhverfisganga stendur yfir í Stykkishólmi
Svipmynd frá göngunni sl.
mánudagskvöld. Ljósm. sá.
Jasmín Hall hreppti gullið í glímu í
flokki 11 ára.
Vestlendingar á Unglingalandsmóti UMFÍ
Keppnishópur frá UMSB.
Á laugardagskvöldinu efndi UMSB til sameiginlegrar grillveislu á tjaldsvæðinu.
Birkir Ísak lenti í 2. sæti í glímu í flokki
13-15 ára fyrir HSH.
Keppnishópur HSH að skrúðgöngu lokinni.
Hópur UDN eftir skrúðgöngu.