Skessuhorn


Skessuhorn - 14.08.2019, Side 9

Skessuhorn - 14.08.2019, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 14. áGúSt 2019 9 SÁPUBOLTAMÓT f BJÖSSI OG DAÐI LISTASMIÐJA FYRIR BÖRN TUNNULEST f HLJÓMSVEITIN ÞRÍR BÚNINGAHLAUP f DORGVEIÐIKEPPNI DAÐI FREYR f FROÐURENNIBRAUT ÆBLESKIVER f SNOBRØD GRILL STUÐLABANDIÐ Í REIÐHÖLLINNI BRJÓSTSYKURSGERÐ f ANDLITSMÁLNING HVERFAGRILL f MARKAÐSTORG OG MARGT FLEIRA 15.-18. ágúst facebook.com/danskirdagar #danskirdagar2019 Fjör fyrir alla fjölskylduna! Héraðið, ný íslensk kvikmynd eft- ir leikstjórann Grím Hákonar- son, verður frumsýnd í bíóhúsum landsins í dag. Eins og kunnugt er var myndin að stórum hluta tekin upp á Erpsstöðum í Dölum, en auk þess á Hvammstanga og Blönduósi. Héraðið fjallar um samskipti Ingu, miðaldra kúabónda, við kaupfélag- ið og kerfið. Hún reynir að fá aðra bændur í lið með sér í baráttu sinni en það gengur erfiðlega þar sem kaupfélagið hefur sterk ítök í sveit- inni. Myndin var forsýnd fyrir þátt- takendur og aðstoðarfólk í árbliki í Dölum á sunnudaginn, en auk þess í samkomuhúsinu á Hvamms- tanga. Vildi Grímur þannig sýna samfélögunum sem fóstruðu upp- tökurnar virðingarvott og þakklæti. Samkvæmt heimildum Skessuhorns vakti myndin mikla lukku meðal gesta á forsýningum. Myndin verð- ur sem fyrr segir tekin til sýningar í íslenskum kvikmyndahúsum í dag og fer í kvikmyndahús víðs vegar um Evrópu í haust. Það er Arndís Hrönn Egilsdóttir sem fer með hlutverk Ingu í mynd- inni og skrifaði Grímur handritið með hana í huga. Arndís Hrönn hefur meðal annars leikið í sjón- varpsþáttunum Pressu og Föngum og í kvikmyndinni Þröstum en hún var tilnefnd til Edduverðlaunanna fyrir hlutverkið í þeirri síðast- nefndu. Með önnur burðarhlutverk í myndinni fara þau Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sigurður Sigurjóns- son, Hinrik Ólafsson, Hannes Óli ágústsson og Edda Björg Eyjólfs- dóttir. mm Skemmtiferðaskipið Roald Amund- sen kom nýverið í jómfrúarferð sína til Stykkishólms. Þetta er hið glæsi- legasta skip eins og sjá má á mynd sem Sumarliði ásgeirsson ljós- myndari tók við komu skipsins í Hólminn. mm ábendingar hafa að undanförnu borist Neytendasamtökunum vegna innheimtu á ólöglegum smá- lánum frá Almennri innheimtu ehf. Lántakendum er af fyrirtæk- inu neitað um sundurliðun á kröf- um og innheimta ólögmætra lána heldur áfram. „Það er stóralvarlegt að innheimtufyrirtæki í eigu lög- manns (og er því ekki undir eftir- liti FME) skuli komast upp með að neita að afhenda gögn um stöðu lántakenda sem í einhverjum til- fellum sýna að fólk er löngu búið að greiða upp sína skuld. En til þess er jú leikurinn gerður,“ segir í til- kynningu frá Neytendasamtökun- um. „Neytendasamtökin hafa dæmi undir höndum þar sem lántakandi var búinn að greiða 750.000 meira en honum bar og átti að greiða um 400.000 kr. til viðbótar. Þegar hann gerði kröfu á Almenna innheimtu um endurgreiðslu hætti fyrirtæk- ið frekari innheimtu og felldi niður kröfu sínu. Neytendasamtökin telja því fullreynt að höfða til samvisku Gísla Kr. Björnssonar lögmanns og eiganda Almennrar innheimtu ehf. Mikilvægt er að Lögmannafélag Ís- lands rannsaki hið fyrsta hvort hátt- semi lögmannsins kunni að stríða gegn lögum eða siðareglum LMFÍ. Þar sem félagið tekur ekki við kvörtunum Neytendasamtakanna eru lántakendur sem standa í stappi við Almenna innheimtu ehf. hvattir til að senda kvörtun á Lögmanna- félag Íslands,“ segir í tilkynningu Neytendasamtakanna vegna máls- ins. mm Vara við Almennri innheimtu ehf Héraðið frumsýnt í bíóhúsum í dag Kom í jómfrúarferð sína í Hólminn

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.