Skessuhorn - 14.08.2019, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 14. áGúSt 201922
Lestrarbókin Gagn og gaman, 2.
hefti, hefur verið endurútgefin, en
bókin hefur verið ófáanleg um ára-
tuga skeið. Það er Bókaútgáfan Sæ-
mundur sem gefur út en áður hafði
Sæmundur gefið 1. hefti Gagns og
gamans út. „Hlaut sú útgáfa af-
burða viðtökur lesenda,“ segir í til-
kynningu frá útgáfunni.
„Gagn og gaman kom fyrst út
haustið 1933 og þá í einu hefti.
Bókin var samvinnuverkefni Ísaks
Jónssonar og Helga Elíassonar sem
fengu tryggva Magnússon listmál-
ara til að gera teikningar. Bókin var
þá enn í mótun og við endurskoðun
hennar árið 1941 var henni skipt í
tvö hefti. Með nýrri og breyttri
útgáfu árið 1955 var fyrra heftið
prentað í lit. Var það fyrsta skyldu-
námsbók landsmanna sem var lit-
prentuð. Þórdís dóttir tryggva
teiknaði nýjar myndir við þá kafla
sem bætt var við. Seinna heftið
var litprentað 1959. Var verkið þá
komið í endanlega gerð,“ segir í til-
kynningunni.
„Gagn og gaman var áhrifarík
kennslubók. Hún var nær einráð
við lestrarkennslu yngstu barna í
hálfa öld. Bókin byggðist á hljóð-
aðferð við lestrarkennslu sem þar
með var innleidd í íslenskum skól-
um. talið er að um 200 þúsund ein-
tök hafi verið prentuð af fyrra hefti
bókarinnar og 120 þúsund eintök
af því síðara. Bækurnar voru ófáan-
legar um rúmlega 30 ára skeið, en
fyrra heftið kom aftur út haustið
2017. Gagn og gaman, 2. hefti, er
framhaldslesbók þar sem áhersla er
lögð á að æfa stafasambönd, saman-
ber ábendingar neðanmáls. Nokk-
ur þyngdarmunur er á heftunum
og því voru börnin oft látin æfa sig
á léttu lesefni áður en byrjað var á
síðara heftinu.
Gagn og gaman, 2. heftið, er
hér gefið út til að vekja athygli á
merkri lestrarkennslubók. Margt
hefur breyst frá því bókin var al-
mennt notuð og er hún því einnig
skemmtilegur aldarspegill og góð
heimild um veröld sem var.“ kgk
Járngerðarhátíðin verður hald-
in á Eiríksstöðum í Dölum dag-
ana 30. ágúst til 1. september næst-
komandi. Eiríksstaðir ásamt Hurs-
twic bjóða gestum að koma á há-
tíðina þar sem þeim gefst tækifæri
til að kynnast lífi fólks á víkinga-
öld með því að sjá, snerta, prófa
og gera hluti á þann hátt sem fólk
gerði fyrir þúsund árum. á hátíð-
inni verða innlendir sem erlendir
sérfræðingar sem þekkja vel til og
hafa rannsakað járngerð og ætla að
gera tilraunir til að endurgera ofn-
ana sem notaðir voru, í því augna-
miði að búa til járn, en búast má
við sannkallaðri veislu í tilrauna-
fornleifafræði að sögn skipuleggj-
enda. ásamt tilraunastarfseminni
þá verður á staðnum góð blanda
af sérfróðum aðilum sem kynna
handverk og matargerð sína ásamt
því að kynna menningu víkinga. „á
Eiríksstöðum gengur gesturinn inn
í framandi heim fortíðar og fær að
taka þátt í að skapa, elda, smíða og
læra allt um víkingana,“ segir í til-
kynningu frá skipuleggjendum há-
tíðarinnar.
Aðgangur að hátíðinni verður
1.200 krónur fyrir 12 ára og eldri
en frítt verður fyrir yngri börnin.
Aðganginum fylgir leiðsögn um
langhúsið. Eins gildir miðinn sem
einskonar gjaldmiðill sem hægt er
að nota til að fá að taka þátt í því
sem verður í boði á staðnum. Mat-
ur og drykkur verður í boði á staðn-
um og fyrirlestrar um sértæk um-
fjöllunarefni tengd járngerð og til-
rauna-fornleifafræði verða í boði á
föstudags- og laugardagskvöldinu.
glh. Ljósm/ aðsendar.
Listahátíðin Plan-B Art Festival
var haldin í þriðja sinn um síðustu
helgi í Borgarnesi og gekk hátíðin
vonum framar í ár að sögn skipu-
leggjenda. Sýnt var á alls ellefu
stöðum víðsvegar um bæjarpláss-
ið og nágrenni og voru listamenn
á um þriðja tug sem tók þátt í há-
tíðinni.
Fjölbreytt list
Plan-B hófst með opnun samsýn-
ingar í aðalsýningarrými hátíð-
arinnar sem í ár var jarðhæð Ar-
ion banka hússins við Digranes-
götu 2. Í kjölfar opnunarinnar var
innsetning í Borgarneskirkju þar
sem Anna Kolfinna Kuran sýndi
verk sitt „Yfirtaka“ og naut þar
liðsinnis meðal annarra kvenna úr
Borgarnesi á öllum aldri. Að auki
voru smærri viðburðir og opnan-
ir víðsvegar um bæinn. Snæfríður
Rós Gunnarsdóttir sviðshöfund-
ur sýndi innsetningu í Íþróttamið-
stöð Borgarness sem vakti hrifn-
ingu og umtal gesta og gangandi
og listahópurinn IYFAC setti svip
sinn á bæinn með litríkum flöggum
sem voru hluti af gjörningi sem fór
fram á laugardeginum. Hápunktur
hátíðarinnar var svo á laugardags-
kvöldinu í gamla fjósinu í Einars-
nesi, sem hlotið hefur nafnið Space
of Milk, þegar gjörningakvöld
Plan-B fór fram. Gjörningakvöld-
ið er orðinn fastur liður á hátíðinni
og þar komu fram alls þrjú atriði
eftir listatríóið útvarp Krísuvík,
Hildi Elísu Jónsdóttur, sem einnig
sýndi á Sögulofti Landnámsseturs-
ins, og Þröstur Valgarðsson. Þröst-
ur var jafnframt með sýningu í hús-
næði Arion banka, en Þröstur ólst
upp í Borgarnesi og var nú að sýna
list sína á heimaslóðum.
Útilistaverk
hafa vakið athygli
útilistaverk hátíðarinnar vöktu
einnig athygli. Veglegt verk eftir
Krot & Krass má nú sjá á húsnæði
Borgarverks í Brákarey, en skipu-
leggjendur hafa fengið símtöl frá
ánægðum íbúum með verkið. Auk
þess hefur verk tobia Zambotti
vakið athygli í fjörunni við Mennta-
skóla Borgarfjarðar. Metaðsókn var
á alla viðburði að sögn skipulags-
nefndar hátíðarinnar sem sér mikla
fjölgun í aðsókn gesta en mikill
fjöldi fólks utan Borgarness mætti
og segja skipuleggjendur tækifæri
fólgin í nálægð við höfuðborgar-
svæðið vegna hátíðar sem þessarar.
Fagleiki áberandi
á hátíðinni
„Við skipuleggjendur hátíðarinnar
erum í sjöunda himni með hvern-
ig gekk. Verkin voru af miklum
gæðum og fagleiki þátttakenda var
áberandi. Frágangi er næstum lok-
ið en þó er starfi nefndarinnar ekki
lokið. Við tekur vinna við upp-
gjör, greiðslu reikninga og gerð
lokaskýrslna. Vinna við þessa há-
tíð hófst í janúar á þessu ári og ég
áætla að henni ljúki í september,
október, þannig hún er í huga okk-
ar meirihlutann af árinu! Fátt kom
okkur á óvart, enda hefur mótast
gott handrit að hátíðinni frá fyrri
árum,“ sagði Sigursteinn Sigurð-
arson, arkitekt og einn af skipu-
leggjendum hátíðarinnar, nú eftir
helgina. glh
Verk eftir Tobia Zambotti í fjörunni við Menntaskóla Borgarfjarðar vakti athygli á
hátíðinni. Ljósm. Tobia Zambotti.
Listahátíðin Plan-B Art Festival gekk vonum framar
Skipuleggjendur í skýjunum með vel heppnaða hátíð
Sigursteinn er einn af skipuleggjendum Plan-B.
Annað hefti Gagns
og gamans í verslanir
Járngerðarhátíð á
Eiríksstöðum um mánaðamótin