Skessuhorn


Skessuhorn - 04.12.2019, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 04.12.2019, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 20196 Árekstur við Brúartorg BORGARNES: Árekstur varð í Borgarnesi kl. 14:30 síð- asta miðvikudag. Bíl var ekið frá Grillhúsinu við Brúartorg í Borgarnesi yfir götuna í átt að Olís, í veg fyrir aðra bifreið sem ekið var norður Vesturlands- veg. Báðir bílarnir eru nokkuð skemmdar, að sögn lögreglu, en engin slys urðu á fólki. Út- afakstur varð á Holtavörðuheiði 1. desember um kl. 14:00. Öku- maður missti stjórn á bifreið sinni sem flaut upp í krapa, með þeim afleiðingum að hann fór út af og valt. Ökumaður og far- þegi voru fluttir með sjúkrabíl frá Hvammstanga, sem átti leið um vettvang, til aðhlynningar á HVE á Akranesi. Óhöpp vegna færðar BORGARBYGGÐ: Ökumað- ur missti stjórn á bifreið sinni þegar hann ók um Vesturlands- veg í Norðurárdal með þeim af- leiðingum að hann missti bíl- inn út af veginum þar sem hann endaði ofan í skurði. Óhappið varð um kl. 9 á laugardagsmorg- un. Þrír voru í bílnum en sluppu allir ómeiddir, að sögn lög- reglu, þrátt fyrir að hafa feng- ið töluvert högg þegar bifreið- in lenti á frosnum skurðbakk- anum. Ökumaður og farþegar voru fluttir með lögreglubíln- um á heilsugæslustöðina í Borg- arnesi til aðhlynningar. Bíll valt á Bröttubrekku laust fyrir kl. 16:00 á sunnudag. Ökumaður missti stjórn á bílnum í hálku og krapa á veginum svo bíllinn valt á toppinn. Fjórir voru í bíln- um og reyndust allir sleppa án meiðsla, en farþegi í framsæti kenndi sér eymsla eftir bílbelti. Bílvelta varð á Uxahryggjavegi um kl. 15:00 á föstudag. Öku- maður missti stjórn á bifreið sinni eftir að hún rann til á ís á veginum. Bíllinn endaði á hlið- inni en engin slys urðu á fólki. -kgk Ökumaður ekki viðræðuhæfur HVALFJSV: Haft var sam- band við lögreglu um áttaleyt- ið á fimmtudagskvöld. Öku- maður sem ók eftir Vestur- landsvegi skammt norðan Öl- vers hafði mætt bíl og fund- ið þungt högg. Hann sagðist þá hafa áttað sig á að ekki væri allt með felldu og stöðvað för sína. Þá sá hann bíl utan veg- ar, sem hafði að öllum líkindum keyrt utan í hann og þaðan út af. Skömmu síðar hringdi mað- urinn aftur og greindi lögreglu frá að hann teldi að hinn öku- maðurinn hefði hugsanlega ver- ið ölvaður. Lögregla fór á stað- inn og gekk illa að spyrja mann- inn sem fór út af í aðdraganda slyssins. Hann var því hand- tekinn, grunaður um ölvun við akstur og færður til læknisskoð- unar, auk þess sem honum var gert að veita blóðsýni. Reynd- ist hann ekki hafa meiðst al- varlega, en kvaðst vera stífur í bakinu. Morguninn eftir, þegar hann hafði sofið úr sér, var tekin skýrsla af manninum og honum sleppt að því loknu. -kgk Tvisvar á tveimur dögum STYKKISH: Um kaffileytið á sunnudag var ökumaður stöðv- aður í Stykkishólmi, grunaður um ölvun við akstur. Maðurinn var handtekinn en brást ókvæða við og sparkaði af öllu afli í hurð lögreglubifreiðar, sem skemmd- ist við það. Að sögn lögreglu var viðkomandi fluttur á Akra- nes þar sem hann gisti fanga- geymslur þar til hægt var að taka af honum skýrslu. Kvöld- ið eftir, mánudaginn 2. desem- ber, var maðurinn aftur stöðv- aður ölvaður við akstur í Stykk- ishólmi og færður í fangaklefa á Akranesi í annað skiptið á tveimur dögum. Þegar Skessu- horn ræddi við lögreglu í gær- morgun beið lögregla þess enn að hægt yrði að ræða við mann- inn öðru sinni. -kgk Flogist á AKRANES: Lögreglu var til- kynnt um slagsmál við Gamla Kaupfélagið á Akranesi laust fyrir miðnætti á fimmtudag. Dyraverðir höfðu þá mann í tökum. Lögregla fór á staðinn og hitti dyraverðina sem héldu manninum. Þá hafði komið til einhverra átaka en einhver sem átti hlut að máli var farinn af vettvangi. -kgk Spólað á planinu AKRANES: Haft var sam- bandvið lögreglu rétt eftir mið- nætti á laugardag. Einhverjir ökumenn gerðu sér það þá að leik að spóla í hringi á planinu fyrir utan verslun Krónunnar á Akranesi. Lögregla fór á vett- vang og skarst í leikinn. -kgk Fíkniefnafundur AKRANES: Á mánudagskvöld var haft samband við Neyðar- línu vegna fíkniefna sem fundust á Akranesi. Tilkynnandi kvaðst hafa fundið hvítt duft í poka og litla vog og taldi að um fíkniefni væri að ræða. Lögregla mætti á staðinn og haldlagði efnið. Ekki er vitað hver eigandi þess er, en málið er til rannsóknar. -kgk Í slippnum í Vestmannaeyjum er nú verið að leggja lokahönd á lag- færingar á farþegaskipinu Akra- nesi. Skipið er í eigu Loðnu ehf. en að því félagi standa Gunnar Leifur Stefánsson og viðskipta- félagar hans. Að sögn Gunnars Leifs fer skipið úr slipp í þess- ari viku. „Þetta er skip sem hefur leyfi til að flytja 100 farþega og við hyggjumst gera það út á sjóstang- veiði og hvalaskoðun frá Akranesi. Þetta er gríðarlega gott sjóskip og hentar prýðilega til ferðaþjónustu af þessu tagi,“ segir Gunnar Leif- ur í samtali við Skessuhorn. Hann segir að áætlað sé að sigla Akranesi til heimahafnar á Akranesi með hækkandi sól. „Nú verður far- ið að vinna að markaðsmálum og undirbúningi fyrir útgerð skipsins og ferðir frá Skaganum. Þá eigum við von á öðrum báti til viðbótar frá Póllandi, en sá verður einn- ig gerður út til hvalaskoðunar. Ég trúi á, eins og ég hef lengi gert, að framtíðin sé í ferðaþjónustu. Hér á Akranesi byrjaði sjóstangveiðin hér við land, með útgerð Andreu fyrir þrjátíu árum eða svo,“ segir Gunn- ar Leifur sem segja má að hafi ver- ið frumkvöðull á þessu sviði ferða- þjónustu hér á landi. Skipið Akranes er sterkbyggt skip en það var upphaflega smíðað til að þola siglingar í ís. „Skipið var fyrst notað sem slökkvibátur fyrir sænska herinn og var einnig skóla- skip um tíma. Því var svo breytt í túristaskip fyrir rúmum áratug. Hét þá í fyrstu Ísafold en eftir það Víkingur og gert út frá Vest- mannaeyjum. Það hefur nú fengið nafnið Akranes og verður gert út af Loðnu ehf. á Akranesi.“ Gunnar Leifur kveðst bjartsýnn á að nú sé ferðaþjónusta á Akranesi að taka við sér og því sé lag að auka þjónustu. „Við sjáum hvað gamli vitinn hefur verið að laða til sín marga gesti og nú Guðlaug á þessu ári. Ég hef enn fulla trú á að Akra- nes eigi mikið inni þegar ferða- þjónusta er annars vegar og skora á fólk að flýta annarri uppbygg- ingu og styrkja þannig stoðirnar. Það vantar til dæmis hótel og ýmsa aðra þjónustu í bæjarfélagið,“ segir Gunnar Leifur að endingu. mm Akranes í skipalyftunni í Vestmannaeyjum. Ljósm. Facebook/ Óskar P Friðriksson. Farþegaskipið Akranes verður gert út á sjóstangveiði og hvalaskoðun

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.