Skessuhorn - 04.12.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019 17
Smiðjuvellir 32 - 300 Akranes - Sími 431 5090 - Fax 431 5091 - www.apvest.is
Bráðum koma blessuð jólin...
Mikið úrval af allskyns gjafavöru
Apótek Vesturlands verður með fjölbreytt
úrval af allskyns gjafavöru fyrir jólin.
Mikið úrval af bað- og ilmvöru auk ýmissa
annarra góðra kosta.
Komdu og kannaðu úrvalið.
Afgreiðslu
tími:
Virka da
ga
9–18
Laugar
daga
10–14
Sunnud
aga
12–14
Eldvarnarátak Landssambands
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna og slökkviliða landsins
stendur nú yfir. Sem fyrr fræða
slökkviliðsmenn börn í 3. bekk
víða um land um um eldvarnir og
starf slökkviliðanna. Á fimmtu-
dagsmorgun mætti vel á sjöunda
tug nemenda í 3. bekk Grunda-
skóla í heimsókn á slökkviliðsstöð-
ina á Akranesi. Þráinn Ólafsson,
slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akra-
ness og Hvalfjarðarsveitar, tók á
móti krökkunum áður en fræðsl-
an hófst. Hún var í höndum Sig-
urðar Þórs Elíssonar sem naut við
hana liðsinnis Sigurðar Inga Grét-
arssonar og Karls Jóhanns Haagen-
sens. Krakkarnir fengu m.a. að sjá
nýja teiknimynd um Loga og Glóð,
heyra muninn á biluðum reyk-
skynjara og þeim sem er í lagi og
fengu kynningu á útbúnaði slökkvi-
liðsmanna, svo fátt eitt sé nefnt. Að
lokinni kynningu fengu krakkarn-
ir að skoða sig um á slökkvistöð-
inni, máta sig við bílana og spyrja
slökkviliðsmennina út í hvaðeina
sem þeim lá á hjarta.
kgk
Krakkarnir höfðu ýmsar spurningar um búnað og fleira að kynningunni lokinni.
Hér situr Karl Jóhann fyrir svörum.
Fræddust um eldvarnir
og starf slökkviliðsins
Sigurður Þór Elísson segir krökkunum frá búningum og búnaði slökkviliðsmanna. Við það naut hann liðsinnis Sigurðar Inga
Grétarssonar og Karls Jóhanns Haagensens, sem klæddu sig í fullan skrúða við fræðsluna.
Á sjöunda tug 3. bekkinga Grundaskóla heimsóttu slökkviliðsstöðina á Akranesi á fimmtudag.